Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2017, Síða 8

Skessuhorn - 19.07.2017, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 20178 Vegna umræðu um stöðu skólpmála og mengun á höfuðborgarsvæðinu að undanförnu hafa íbúar í Borgar- nesi og Akranesi kallað eftir upplýs- ingum um stöðu skólphreinsimála á þessum stöðum. Ólöf Snæhólm upplýsingafulltrúi Veitna, dóttur- fyrirtækis Orkuveitu Reykjavíkur sem annast þessi mál á Akranesi og Borgarnesi, segir að nú sé búið að gangsetja hreinsistöðina á Akranesi og prófanir og gangsetning í Borg- arnesi verði í ágúst. Þannig sér fyr- ir endan á verkefni sem upphaflega átti að ljúka við haustið 2009. Ólöf segir að á Akranesi hafi still- ingar og prófanir staðið yfir á kerf- inu undanfarnar vikur. „Hreinsi- stöðin mun leysa af hólmi allar þær fjölmörgu útrásir sem hafa verið í fráveitukerfinu síðustu áratugi. Frá 3. júlí síðastliðnum hefur stöðin verið í gangi allan sólarhringinn,“ segir Ólöf. Þó segir hún að dælu- brunnar við Faxabraut og Hafnar- braut á Akranesi hafi ekki verið enn tengdir við stöðina. „Skólp sem mun verða dælt frá þeim rennur nú út um þær útrásir sem verið hafa í notkun síðustu áratugi. Gert er ráð fyrir að dælubrunnur við Faxabraut komist í gagnið þegar nær dregur haustinu og brunnurinn við Hafnarbraut verður gangsettur þegar fyrirtæki í bænum hafa lokið við að gera nauðsynlegar ráðstafanir til að geta tengst hreinsi- stöðinni.“ í Borgarnesi segir Ólöf að prófanir á búnaði í nýrri hreinsistöð í Brák- arey séu langt komnar. „Gert er ráð fyrir að skólpi verði hleypt á dælu- stöðina í Borgarnesi í ágúst. Gera má ráð fyrir að stillingar og prófanir eftir það taki nokkurn tíma og að stöðin verði ekki komin í fullan rekstur fyrr en að þeim loknum.“ mm Andlát - Ólafur H Torfason Ólafur H. Torfa- son, rithöfundur, fjölmiðlamaður og kvikmyndafræð- ingur, er látinn, tæplega sjötug- ur að aldri. Ólafur fæddist í Reykjavík 27. júlí 1947. Hann varð stúdent frá MR 1969 og stundaði nám í kvikmynda- og fjölmiðlafræði við Kaupmanna- hafnarháskóla 1970-73. Ólafur starfaði meðal annars sem kenn- ari, fjölmiðlamaður, kvikmynda- fræðingur og kvikmyndagagnrýn- andi. Auk þess lagði hann stund á myndlist og fékkst við fræðistörf og ritstörf af ýmsu tagi. Ólafur var kennari í Stykkishólmi 1975-82 og fréttaritari DV og Þjóðvilj- ans þar. Eftir það starfaði hann sem blaða- og fréttamaður á Ak- ureyri 1982-86, sá um útgáfu á tímaritinu Heima er bezt og Ár- bók Akureyrar, var dagskrárgerð- armaður fyrir RúVAK og frétta- maður Ríkissjónvarpsins á Ak- ureyri. Hann var forstöðumað- ur Upplýsingaþjónustu landbún- aðarins 1986-89, ritstjóri Þjóð- viljans 1989-91, dagskrárgerð- armaður hjá RúV 1991-92 og kvikmyndagagnrýnandi Rásar 2 frá 1987 og textavarps Ríkissjón- varpsins frá upphafi 1993. Hann starfaði einnig að kynningarmál- um fyrir listasafn íslands. Auk þessara starfa vann Ólafur við gerð stuttmynda, sjónvarpsþátta og gerði fjölda útvarpsþátta, hélt átta myndlistarsýningar og tók þátt í samsýningum. Hann kynnti íslenska kvikmyndagerð í ræðu og riti, jafnt hérlendis sem erlendis, var einn aðstandenda Heimildar- og stuttmyndahátíðar í Reykjavík, sat í dómnefnd Kvikmyndaverð- launa Norðurlandaráðs og var um hríð formaður Hins íslenska kvik- myndafræðafélags. -mm Aflatölur fyrir Vesturland dagana 8.-14. júlí Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu: Akranes, 13 bátar. Heildarlöndun: 71. 421 kg. Mestur afli: Ebbi AK: 37.689 kg í 6 róðrum. Arnarstapi, 12 bátar. Heildarlöndun: 17.085 kg. Mestur afli: Bárður SH: 3.390 kg í 3 löndunum. Grundarfjörður, 12 bátar. Heildarlöndun: 26.442 kg. Mestur afli: Vinur SH: 3.238 kg í 4 löndunum. Ólafsvík, 33 bátar. Heildarlöndun: 81.944 kg. Mestur afli: Egill SH: 20.927 kg í 2 róðrum. Rif, 23 bátar. Heildarlöndun: 55.692 kg. Mestur afli: Askur SH: 4.355 kg í 1 róðri. Stykkishólmur, 26 bátar. Heildarlöndun:108.988 kg. Mestur afli: Hanna SH: 9.705 kg í 4 róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Egill SH - ÓLA: 13.464 kg. 11. júlí. 2. Egill SH - ÓLA: 7.463 kg. 10. júlí. 3. Klettur ÍS - AKR: 7.319 kg. 11. júlí. 4. Ebbi AK - AKR: 7.188 kg. 11. júlí. 5. Ebbi AK - AKR: 6.865 kg. 10 júlí. -kgk Skólphreinsistöðvar teknar í notkun á Akranesi og í Borgarnesi Á meðfylgjandi loftmynd er búið að merkja inn þær útrásir á Akranesi sem enn eru virkar samkvæmt upplýsingum frá Veitum. Ein þeirra er tengd tveimur húsum þar sem starfsemi er lítil, þ.e. Fiskmarkaðinum og útrás frá rotþró Sementsverk- smiðjunnar. Skólphreinsistöðin við Ægisbraut á Akranesi hefur nú verið tekin í notkun en ennþá hafi tveir dælubrunnar, við Faxabraut og Hafnarbraut, ekki verið tengdir við hana. Dælustöðin í Brákarey í Borgarnesi verður tekin í notkun í ágúst og verði komin í fullan rekstur eftir prófanir og stillingar í haust. Bæði á Akranesi og í Borgarnesi hefur þetta risastóra verkefni verið í gangi um árabil, en mikil seinkun var vegna hrunsins og slæmrar fjárhagsstöðu Orkuveitu Reykjavíkur. Hér er unnið við niðurlagningu skólplagnar í Borgarbraut í Borgar- braut vorið 2009. Ljósm. úr safni Skessuhorns. Í fjörunni í Höfðavík á Akranesi var haustið 2015 unnið við að festa steinsteypta klossa á fráveitulögnina, en þeir halda lögninni á hafsbotni. Auk þess var leiðslan grafin niður að hluta en einnig fest með ankerum við botninn. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.