Skessuhorn


Skessuhorn - 19.07.2017, Qupperneq 14

Skessuhorn - 19.07.2017, Qupperneq 14
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 201714 Ferðaþjónusta sem atvinnugrein hefur vaxið mjög undanfarin ár. Síðasta ár var metár í komu ferða- manna hingað til lands og hafa fréttir sem tengjast ferðaþjónustu verið áberandi á öllum miðlum síð- astliðið ár. Bæði hafa verið dregnar upp jákvæðar og neikvæðar mynd- ir aukins straums ferðamanna um landið. Má þar nefna fréttir af upp- byggingu ferðaþjónustu í fámenn- ari sveitarfélögum landsins og fleiri atvinnutækifæri í ferðatengdri þjón- ustu. Einnig hefur verið sagt frá of háu verðlagi og of miklum ágangi á náttúru landsins. Sterk staða krón- unnar virðist þó vera helsti óvin- ur ferðaþjónustunnar um þess- ar mundir. Menn kalla einfaldlega eftir nýjum og stöðugri gjaldmiðli. Það er rauði þráðurinn eftir að Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkr- um þeirra sem standa í eldlínu vest- lenskrar ferðaþjónustu í dag. En hvernig skyldi sumarið hafa verið? Stay Akranes: „Erfitt að gera áætlanir“ Eggert Herbertsson, eigandi Stay Akranes, segir árið hafa gengið prýðilega hjá sér. „Árið hófst afar vel og það var mikið bókað fram í tímann í sumar. Það voru laus gisti- rými nokkra daga inn á milli sem ekki voru bókuð og við bjuggumst við að þau myndu fara þegar líða færi að sumri. Það gerðist hins veg- ar ekki og gistirýmin sem eftir voru seldust lítið. Ég tel það stafa af háu verðlagi hérlendis og setur staða krónunnar strik í reikninginn. Hún er sterk núna og þessar tíðu sveifl- ur gjaldmiðilsins hafa það í för með sér að erfitt er að áætla nokkuð fram í tímann. Bókanir nú ganga hægar en í fyrra og afbókanir tíðari. Það er klárlega einhver samdráttur í greininni,“ segir Eggert. Eggert segir að ferjan Akranes geti haft góð áhrif á ferðaþjónustu á Akranesi en tilraunaverkefnið sem snerti hana hafi ekki verið nógu vel skipulagt. „Það var alltof margt óljóst varðandi ferjuna í ár og hún fór of seint af stað í sumar. Ég gat ekki notað ferjuna í minni mark- aðssetningu í ár sökum þess hve allt var óljóst. Ég mun heldur ekki geta notað hana í markaðssetningu fyrir næsta ár þar sem aðeins er um til- raunaverkefni fram að áramótum að ræða og ég er nú þegar farinn að selja fyrir næsta ár. Þessi ferja getur haft verulega góð áhrif, ekk- ert endilega fyrir mig, heldur fyr- ir t.d. kaffi- og veitingahús á Akra- nesi. Akranes getur sótt enn frek- ar í ferðaþjónustu og ferjan getur spilað sinn þátt þar en þá verður að standa betur að þessu,“ segir Egg- ert að endingu. Hótel Borgarnes: „Getum ekki selt landið endalaust sama hvað það kostar“ „Það hefur gengið alveg þokkalega í ár en aðeins minna en í fyrra,“ segir Pétur Geirsson eigandi Hót- el Borgarness. Pétur segir að hann hafi það á tilfinningunni að ferða- menn stoppi styttra við á íslandi og nýti sér í auknum mæli ódýr- ari gistirými en þó hafi hann engin töluleg gögn um það. „Maður sér marga ferðamenn keyra um land- ið á litlum sendiferðabílum sem fyrirtæki hérlendis leigja út sem gistirými. Ég verð að segja að ég er undrandi á því hve fá skilyrði gilda um þessi gistirými. Þegar ég bý til herbergi á hótelinu til þess að leigja ferðamönnum þarf ég að uppfylla ýmis skilyrði sem varða m.a. lágmarks fermetrafjölda eft- ir fjölda gesta á herberginu, hrein- lætisstaðla og margt fleira. Þeir sem leigja út þessa bíla virðast fá nokkuð frjálsar hendur. Gistirým- ið er afar lítið og engin hreinlæt- isaðstaða er í bílnum svo að ferða- mennirnir ganga örna sinna þar sem þeir eru þegar náttúran kallar. Svo virðist vera sem þessum ferða- mönnum sé ekki gert grein fyrir þeim reglum sem hér gilda gagn- vart náttúru okkar.“ Pétur tekur í sama streng og Eggert og segir sveiflur í gengi krónunnar lita ferðamannabrans- ann. „Krónan er sterk núna en það er erfitt að segja hvernig hún verð- ur eftir ár. Þessar sveiflur krónunn- ar eru vissulega óþægilegar upp á viðskiptin,“ segir Pétur en hann játar því að hann hafi áhyggjur á því hvernig verðlagið hérlendis er orðið. „Við erum að verða dýrasta land heims og ferðamenn fara að leita annað, á ódýrari staði, ef fram heldur sem horfir. Fólk sem hing- að kemur er að leita að einstakri náttúru og við búum vissulega yfir henni, en það er einnig hægt að finna magnaða náttúru í Norður- Noregi, Nýja-Sjálandi og víða í Suður-Ameríku sem dæmi. Ef ís- land verður ekki samkeppnishæft við þessa staði gæti hér orðið veru- legur samdráttur. Það er misskiln- ingur ef einhverjir halda að magn- aða náttúru sé ekki að finna ann- ars staðar, það væri bara íslenskur hroki. Við getum ekki selt landið endalaust sama hvað það kostar,“ segir Pétur að endingu. Hótel Glymur: „Mikið af ungu og þróttmiklu fólki að koma inn í greinina“ Ragna ívarsdóttir er hótelstjóri á Hótel Glymi í Hvalfirði. Hún seg- ir að það hafi komið sér á óvart hve vorið gekk vel í ár. „Fyrr á þessu ári leit upphaf ferðasumarsins ekki vel út þar sem mikið var um afbókan- ir frá erlendum ferðaskrifstofum. Það getur verið erfitt fyrir lítið sveitahótel eins og okkar að fá slík- ar afbókanir. Það rættist hins veg- ar mjög vel úr því og við náðum að selja þær gistinætur sem losnuðu. Vorið í ár gekk ögn betur en í fyrra sem er mjög jákvætt, síðan hafa bókanir út árið gengið vel,“ segir Ragna en hún telur að ástæður fyr- ir afbókunum geta verið margþætt- ar. „Ég get ekki svarað fyrir hönd erlendra ferðaskrifstofa en eflaust hefur styrking krónunnar eitthvað að segja í þeim efnum.“ Aðspurð segist Ragna hafa tekið eftir mikilli umfjöllun að undan- Sterk staða krónunnar hefur mikil áhrif á ferðaþjónustuna í ár Lausleg úttekt á stöðu ferðaþjónustu á Vesturlandi á miðsumri Ferðaþjónustuaðilar á Vesturlandi kvarta helst undan óstöðugu gengi krónunnar og erfiðleikum við rekstur fyrirtækja við þær aðstæður. Myndin er tekin neðan við Barnafoss í Hvítá, skammt ofan við Hraunfossa. Ljósm. mm. Hjónin Eggert Herbertsson og Ingibjörg Valdimarsdóttir reka Stay Akranes. Pétur Geirsson er einn reynslumesti ferðaþjónustumaður á Vesturlandi. Hótel Glymur í Hvalfirði hlaut árið 2014 evrópsk verðlaun í flokki lítilla nýmóðins hótela, frá World Travel Awards. Á myndinni tekur Ragna Ívarsdóttir, hótelstjóri á Hótel Glymi, við verðlaununum. Það var Graham Cooke, forseti stjórnar World Travel Awards sem afhenti henni þau ásamt grískri blómarós.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.