Skessuhorn - 19.07.2017, Blaðsíða 18
MIÐVIKUDAGUR 19. júlí 201718
Körfuboltamaðurinn Bjarni Guð-
mann jónsson er einn af efni-
legri íþróttamönnum Vesturlands
um þessar mundir. Bjarni er átj-
án ára en þrátt fyrir ungan aldur
hefur hann verið fastamaður í liði
Skallagríms síðustu tvö tímabil en
hann hóf að leika með liðinu árið
2015, þá aðeins sextán ára gamall.
Bjarni Guðmann var valinn í U18
ára landslið íslands í sumar sem
hefur nýlokið leik á Norðurlanda-
mótinu í Finnlandi, þar sem liðið
varð í fjórða sæti. liðið hefur svo
leik á EM U18 í næstu viku í Eist-
landi. Þetta er í fyrsta skipti sem
Bjarni er valinn í lokahóp landsliðs
en hann hefur áður verið í æfinga-
hópum. „Ég hef aldrei verið og er
ekki frábær körfuboltamaður. Það
eru margir í þessu landsliði sem
geta gert mikið meira með boltann
en ég nokkur tímann. Ég gæti ekki
skotið til að bjarga lífi mínu,“ segir
Bjarni léttur í bragði, en hann tel-
ur sig búa yfir öðrum hæfileikum
sem bæti það upp. „Ég er dugleg-
ur, ég legg mig allan fram í leikinn
hverju sinni. Ég hef aðallega spil-
að sem framherji og ég kann vel
við mig þar; að djöflast undir körf-
unni,“ segir hann.
Lærði mikið á
síðasta tímabili
Það var árið 2015, þegar Bjarni
Guðmann var aðeins sextán ára,
sem hann hóf að leika með meist-
araflokki Skallagríms. „Ég hef
verið að spila með þremur flokk-
um hjá Skallagrími undanfarin ár;
drengjaflokki, unglingaflokki og
meistaraflokki. Ég byrjaði að fá
tækifæri hjá Skallagrími árið sem
við fórum upp úr fyrstu deildinni
fyrir tveimur árum. Þegar við spil-
uðum svo í Domino‘s deildinni
veturinn 2015-2016 fékk ég minna
að spila fyrst um sinn en náði að
vinna mig inn í liðið þegar fór að
líða á mótið,“ segir Bjarni sem
vakti töluverða athygli á síðasta
tímabili Skallagríms. Skallagrím-
ur byggir nú aðallega á ungum og
efnilegum heimamönnum í bland
við reynslumeiri erlenda leikmenn.
Þessi stefna Skallagríms bar oft á
góma í umræðum um Domino‘s
deildina í fyrra. „Það hefur verið
frábært að spila með Skallagrími
síðasta árið. Stemningin í hópnum
er mjög góð og við erum allir fé-
lagar. Við erum flest allir ungir og
tengjum vel við hvorn annan. Það
er verið að byggja upp sterkt lið
og það getur tekið tíma. Við lærð-
um allir rosalega mikið á síðustu
leiktíð þar sem spilatími okkar var
mikill,“ segir Bjarni en Skallagrím-
ur féll þó niður um deild og mun
því leika í þeirri fyrstu í vetur.
Erlendu leikmennirnir
mikil hvatning
Bjarni segir að hann hafi mikinn
metnað til að bæta sig og þakk-
ar erlendum leikmönnum Skalla-
gríms fyrir að hafa styrkt sig sem
leikmann. „Þegar maður æfir dag-
lega með jafn öflugum leikmönn-
um og Darell Flake og Flenard
Whitfield verður maður betri. Þeir
eru hvatning fyrir mann að gera
betur. Maður þarf að æfa auka-
lega á öllum sviðinu; bæði styrk-
inn og körfuboltann til að eiga
roð í þá á æfingum. Þeir eru einn-
ig duglegir að leiðbeina manni svo
maður verði betri leikmaður. Það
er ómetanlegt að fá að umgang-
ast svona menn,“ segir Bjarni sem
hefur tekið umtalsverðum fram-
förum undanfarin ár. „Ég var alltaf
fínn í körfubolta en það voru alltaf
strákar í flokknum betri en ég. Ég
hef lagt mikið á mig til að reyna að
bæta mig og hef verið duglegur að
taka aukaæfingar. Ég hef verið við-
loðandi yngri landsliðin í körfu-
bolta og það hafa alltaf verið von-
brigði þegar ég hef ekki komist í
lokahóp. Ég ætlaði mér að kom-
ast í landsliðshóp og það hefur lík-
lega kveikt svolítið á mér. Undan-
farið hef ég lagt mesta áherslu á
að bæta skotin mín sem hafa ekki
verið góð. Ég var kominn í gott
skotform í byrjun sumars og vænti
þess að vera búinn að bæta mig á
því sviði þegar átökin í fyrstu deild
hefjast.“
Komst í yngri landslið
í badminton
Bjarni hefur verið mikið í íþrótt-
um allt frá unga aldri. Hann hóf
ungur að æfa körfubolta en æfði
einnig lengi badminton og fót-
bolta. „Ég komst í yngri landslið
í badminton en þrátt fyrir það var
ég aldrei í vafa um hvaða íþrótt ég
vildi leggja fyrir mig. Ég vissi það
að árgangurinn minn í badminton
var ekki jafn góður og árgangurinn
minn í körfu svo það var auðveld-
ara að komast í landsliðið í bad-
minton. lengi vel var ég líka einn
á mínu reki í Borgarnesi að æfa
badminton og það gat verið leið-
inlegt. Að spila körfubolta er það
skemmtilegasta sem ég geri svo
það var í raun það eina sem komst
að,“ segir hann.
Vill spila fleiri
landsleiki
leikmannahópur U18 ára landsliðs
íslands var valinn fyrir allt sumar-
ið. Strákarnir æfa því saman í tvo
mánuði og keppa bæði á Norður-
landamótinu sem lokið er í Finn-
landi og EM í Eistlandi sem hefst
í næstu viku. „Ferðin til Finnlands
var frábær. Það var vel hugsað um
okkur og við spiluðum þokkalega
á mótinu. Við vorum þó sammála
um það að við hefðum ekki alveg
verið tilbúnir sem lið á Norður-
landamótinu en munum mæta full-
mótaðir á EM. Það er frábært að fá
að taka þátt í móti eins og EM. Við
komum inn í mótið sem minnsta
liðið og hinar þjóðirnar búast ekki
við neinu frá okkur. Það verður
því okkar að sanna okkur og stríða
þessum liðum,“ segir Bjarni sem
hlakkar til komandi tíma.
„Ég ætla að reyna að hjálpa
Skallagrími upp úr fyrstu deild
á komandi tímabili. Það verð-
ur skemmtilegt verkefni þar sem
fyrsta deildin er frábrugðin Dom-
ino‘s deildinni. Fyrsta deildin
snýst meira um líkamlegan styrk
og minna um taktík og því um
líkt. Það verður því mikil bar-
átta á næsta tímabili. Ég klára svo
Menntaskóla Borgarfjarðar næsta
vor og hvað tekur við eftir það er
óljóst. Ég horfi eins og margir til
háskólanáms í Bandaríkjunum þar
sem ég get farið á körfuboltastyrk.
Það er þó ekkert fast í hendi með
slíkt en það væri draumur. Ég er
ekki kominn langt í huganum og
hef ekki sett mér langtímamark-
mið. Ég ætla að reyna að halda sæti
mínu í landsliðum íslands. Á næsta
ári er ég gjaldgengur í U20 og það
verður krefjandi verkefni að kom-
ast í það lið þar sem ég verð á yngra
ári. Síðan reyni ég bara að einbeita
mér að því að bæta minn leik og
njóta þess að spila körfubolta,“
segir Bjarni að endingu.
bþb
„Ég ætlaði mér að komast í landsliðshóp og
það hefur líklega kveikt svolítið í mér“
Rætt við hinn efnilega körfuboltamann Skallagríms; Bjarna Guðmann Jónsson
Í leik með landsliði U18 á Norðurlandamótinu í Finnlandi á dögunum.
Bjarni Guðmann Jónsson heldur út til Eistlands í næstu viku að keppa á EM.