Skessuhorn - 20.09.2017, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 20174
Kirkjubraut 54-56 - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 2.835 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 2.457. Rafræn áskrift kostar 2.226 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.058 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 750 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Emilía Ottesen emilia@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Tinna Ósk Grímarsdóttir tinna@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
„Þeir vilja ekki vera memm“
„Pff-shhh.“ Þannig var hljóðið sem heyrðist þegar ríkisstjórn Íslands
varð loftlaus aðfararnótt síðasta föstudags. Það var ekkert svona alvöru
„BÚMM“ eins og þegar Dagur sprengir milljónirnar upp að kvöldi
menningarnætur. Engir svona hurðaskellir, formælingar eða læti líkt og
þegar stjórnmálamenn fyrir vestan tókust á forðum daga. Nei, það var
alltaf einhvern veginn minni reisn yfir þessu stjórnarsamstarfi en ger-
ist og gengur, svona letilegt hálfkák, sem ég kann ekki að skýra af því
ég þekki svo fáa sem taka að sér stór verk án þess að ætla sér að ljúka
þeim.
Fráfarandi stjórn var rétt að ná sér eftir þynnku hveitibrauðsdag-
anna, búin að máta stólana, ráða hóp aðstoðarfólks og kaupa nýja ráð-
herrabíla á línuna. Þá er bara hætt. Búið, basta, „Pff-shhh,“ eins og ekk-
ert væri sjálfsagðara. Sögðu bara eins og litlu börnin; „ég vil ekki vera
memm.“ Þeir létu eins og þeim væri stórlega misboðið, Proppé og fé-
lögum, staddir í miðju partýi vestur í bæ eina nóttina. Undarlegast var
þó að þeim var misboðið af því að pabbi forsætisráðherrans hafði gert
eitthvað sem orkar tvímælis. Ekki Bjarni, nei pabbi hans! Í stað þess að
Proppé-veislan héldi áfram fram í bjarta framtíð datt einhverju í hug að
láta geimið snúast yfir í dökka fortíð og föttuðu ekki að þeirra pólitísku
framtíð lyki um leið. Þeir gáfu því frá sér yfirlýsingu, svefndrukknir og
vafalaust ekki ökufærir þegar þarna var komið sögu. Notuðu einu sam-
skiptaaðferðina sem þeir kunnu og létu vita af því á Facebook að þeir
nenntu ekki að láta renna af sér. Í dagrenningu varð því uppi fótur og
fit. Gamlir sjallar gátu vart trúað eigin augum. Misbauð svo enn meira
þegar vinirnir og náfrændurnir í Viðreisn gáfu sömuleiðis frat í allt sam-
an. Í ljósi bágrar stöðu og engra flóttaleiða var því brunað á Bessastaði
og forsetanum tjáð að nú væri þetta búið. „Þeir vilja ekki vera memm,“
sagði Bjarni með tár á hvarmi. Ekki er ég hætis hót hissa á því að for-
setinn hafi daginn eftir þurft að ná sér niður, öðlast jafnvægi á sálina og
brunað því í réttir vestur á Snæfellsnes. Hann veit það manna best að
sauðfjárbændur láta ekkert hagga sér, eru farnir að þekkja hvernig eigi
að taka mótlæti, halda áfram sinni vinnu þótt buddan sé tóm.
Nú voru góð ráð dýr. Eftir mjög ígrundaða skoðun og viðræður við
alla stjórnmálaforyngja í þrjár mínútur var ákveðið að kjósa upp á nýtt
eftir mánuð og þangað til skipuð starfsstjórn. Tæpu ári eftir að síðast var
talið upp úr kössunum skal freista þess að nógu margir kjósi annað en
þeir gerðu síðast til að skarpari línur fáist til stjórnarmyndunar.
Eins og þið sjáið gjörla, hafið þið lesið alla leið hingað, er mér alls
ekki skemmt yfir því hvernig þeir sem vilja láta flokka sig í hóp virðu-
legra alþingismanna eru að haga sér þessa dagana. Þetta er náttúrlega
alls ekki í lagi. Menn taka ekki að sér að mynda ríkisstjórn með minnsta
mögulega meirihluta án þess að vera búnir að undirbúa slíkt af kost-
gæfni og geti tekið minnsta mótlæti. Meirihlutasamband, líkt og hjóna-
band, á einmitt að kalla á að fólk vandi sig í hvívetna, gangi heiðarlega
og hreint til verks, og láti af öllum barnaskap. Mér finnst það lykta af
linku að hlaupa frá illa unnu verki og boða bara til kosninga. Við erum
nýbúin að kjósa og menn hljóta að gera sér grein fyrir því að ómótuð-
um stjórnmálaöflum vinnst ekki tími til að brýna sverðin og bjóða fram
gegn hundrað ára gömlum flokkum sem nægir að ýta á starttakkann til
að kosningavélin hrökkvi í gang.
En það verður kosið. Kannski um heiðarleika? Kannski um peninga og
völd? Hvað veit ég. Eina sem ég óttast er að síbylja kosninga slævi enn
frekar vilja fólks til þátttöku og raunverulegra áhrifa. Fólk sitji heima og
láti tiltölulega fáa ráða hvernig framtíðin verður mótuð.
Magnús Magnússon
Leiðari
Sýningar á fjórðu þáttaröð Biggest
Loser Ísland hefjast í opinni dag-
skrá í Sjónvarpi Símans á morg-
un, fimmtudaginn 21. september.
Þáttaröðin hefur á liðnum árum
fengið mikið áhorf, en í þáttunum
er fylgst með keppendum há harða
baráttu við aukakílóin.
Þáttaröðin var sem kunnugt
er tekin upp í Borgarfirði á liðnu
sumri og höfðu keppendur aðsetur
á Bifröst á meðan tökur stóðu yfir.
Umhverfi Borgarfjarðar mun leika
stórt hlutverk í nýjustu þáttaröð-
inni. „Við ætlum að nýta umhverfið
eins og við getum og er stefnan sú
að fara í þrautir á svæðinu um kring.
Það er sama hvert maður snýr í
Borgarfirði. Þar eru fallegir töku-
staðir,“ sagði Jón Haukur Jensson,
leikstjóri hjá Saga Film sem fram-
leiðir þættina, í samtali við Skessu-
horn í vor.
Keppendur í Biggest Loser verða
sem fyrr tólf talsins, skipt upp í tvö
sex manna lið sem þjálfuð eru af
Evert Víglundssyni annars vegar
og Gurrý Torfadóttur hins vegar.
Þegar líður að lokum keppninnar
verða liðin síðan leyst upp og við
tekur einstaklingskeppni þar sem
einn keppandi stendur að lokum
uppi sem sigurvegari. kgk
Sýningar á Biggest Loser
hefjast á morgun
Skjáskot úr kynningarstiklu þáttaraðarinnar á Facebook-síðu Biggest Loser Ísland
með Bifröst í baksýn.
Gríðarlega mikill munur, eða 819
milljónir króna, var á hæsta og
lægsta tilboði sem barst í niðurrif
bygginga og búnaðar Sementsverk-
smiðjunnar á Akranesi. Alls bár-
ust tólf tilboð í verkið og voru þau
opnuð í síðustu viku.
Tilboðin eru eftirfarandi, lægsta
boð efst:
Work North ehf., 175.297 þús. kr.
ABLTAK ehf., 274.790 þús. kr.
Ellert Skúlason ehf., 279.620 þús. kr.
Skóflan hf., 378.000 þús. kr.
G. Hjálmarsson hf., 460.838 þús kr.
Háafell ehf., 495.048 þús. kr.
Þróttur ehf., 509.585 þús. kr.
Ístak hf., 556.088 þús. kr.
Wye Valley, 618.969 þús. kr.
Íslandsgámar hf., 666.575 þús. kr.
Húsarif ehf., 794.210 þús. kr.
Sérfélag stofnað um verkefni,
994.790 þús. kr.
Kostnaðaráætlun verkfræðistof-
unnar Mannvits gerir ráð fyrir því
að niðurrifið muni kosta rúmar
326 milljónir króna. Alls verða 16
mannvirki rifin í fyrsta áfanga nið-
urrifsins.
Næst á dagskrá málsins er að
ganga til samninga við verktaka.
Reiknað er með því að niðurrif-
ið hefjist nú í haust og áætlað er
að fyrsta áfanga þess ljúki haustið
2018. kgk
Tólf vilja rífa Sementsverksmiðjuna
Blásið var til ljósmyndasamkeppni
í tengslum við hátíðina Hval-
fjarðardaga, sem haldin var í lok
ágústmánaðar. Stóð hún yfir alla
helgina og þemað var: Gleði og
náttúra í Hvalfjarðarsveit.
Dómnefnd kom saman í byrj-
un septembermánaðar til að
velja vinningsmyndina úr þeim
sem bárust í keppnina. Við valið
á verðlaunamyndinni fékk dóm-
nefnd einungis upplýsingar um
innsendingarnúmer myndanna.
Eftir að hafa farið vel yfir þær all-
ar var það einróma álit dómnefnd-
ar að mynd númer 23 væri sigur-
myndin í ljósmyndasamkeppni
Hvalfjarðardaga 2017. Mynd-
ina tók Guðjón Guðmundsson á
Akranesi. Var dómnefnd sammála
um að viðfangsefni myndarinnar
fangaði í senn gleði og náttúru í
Hvalfjarðarsveit, í samræmi við
þema keppninnar. „Dómnefnd
vill færa vinningshafa og öllum
þeim sem sendu inn myndir í ljós-
myndasamkeppnina bestu þakkir
fyrir þátttökuna,“ segir í tilkynn-
ingu sem Ása Líndal Hinriksdótt-
ir, umsjónaraðili Hvalfjarðardaga,
ritaði á íbúasíðu Hvalfjarðarsveit-
unga á Facebook.
kgk
Fangaði gleði og náttúru
Hvalfjarðarsveitar á filmu
Guðjón tekur við viðurkenningu og verðlaunum fyrir bestu ljósmyndina úr hendi
Ásu Líndal Hinriksdóttur, umsjónaraðila Hvalfjarðardaga.
Verðlaunamynd Guðjóns Guðmundssonar í ljósmyndasamkeppni Hvalfjarðar-
daga 2017.