Skessuhorn - 20.09.2017, Síða 6
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 20176
Undirbúa
stefnu-
mótunarfund
BIFRÖST: Stjórn Háskól-
ans á Bifröst hefur ákveðið
að halda sérstakan stefnu-
mótunarfund á Bifröst
laugardaginn 21. október
nk. Til fundarins er boðið
fulltrúaráði skólans, starfs-
fólki, nemendum og fulltrú-
um aðstandenda skólans,
þ.e. Borgarbyggðar, Sam-
taka atvinnulífsins, Sam-
bands íslenskra samvinnu-
félaga og Hollvinasamtaka
Háskólans á Bifröst. Við-
fangsefni fundarins verð-
ur að fjalla um mikilvæg-
ar spurningar um stöðu og
framtíð skólans og vísa veg-
inn í stefnumótun hans til
lengri tíma. Í frétt frá skól-
anum segir að hann hafi
breyst ört á undanförnum
árum. 80% nemenda eru
nú í fjarnámi og 70% nýrra
nemenda í háskólanámi nú
á haustönn 2017 komu inn
í nám eða námsfyrirkomu-
lag sem ekki var til staðar
skólaárið 2013-2014. Skól-
inn stendur frammi fyrir
mikilvægum ákvörðunum
um framtíð sína nú þegar
hann nálgast aldarafmæli
sitt á næsta ári. Á fundin-
um verður m.a. fjallað um
stefnupýramítann, hvernig
skólinn verður eftir tíu ár,
alþjóðavæðingu, fjarnám
vs. staðnám, staðsetningu
skólans, hugsanlega sam-
einingu sjálfstæðra skóla,
teninginu við atvinnulífið
og símenntun.
-mm
Eva Pandóra
sækist eftir
forystusæti
NV-KJÖRD: „Ég tilkynni
hér með að ég sækist eftir
að leiða lista Pírata í Norð-
vesturkjördæmi í komandi
kosningum,“ segir Skag-
firðingurinn Eva Pandóra
Baldursdóttir, alþingis-
maður. Hún er 27 ára við-
skiptafræðingur og bú-
sett á Sauðárkróki. „Í að-
draganda síðustu kosn-
inga hlaut ég brautargengi
til að leiða lista Pírata og
var kjörin til setu á Al-
þingi í kosningunum sem
fram fóru á haustmánuð-
um 2016. „Í þeim kosning-
um sem í hönd fara sækist
ég eftir áframhaldandi um-
boði kjósenda til að láta til
mín taka á vettvangi stjórn-
málanna og mun berjast af
einurð gegn þeirri leynd-
arhyggju, frændhygli, sér-
hagsmunagæslu og spill-
ingu sem einkennir íslensk
stjórnmál og stjórnsýslu,“
segir Eva Pandóra.
-mm
Sveitamarkaður í
Æðarodda
AKRANES: Laugardaginn 7.
október næstkomandi verð-
ur slegið upp sveitamark-
aði í Æðarodda, félagsheimili
Hestamannafélagsins Dreyra
á Akranesi. Eins og jafnan á
sveitamörkuðum verður ým-
iss konar varningur boðinn
til sölu, allt frá handverki til
matar. Markaðurinn hefst kl.
13:00 og stendur til kl. 17:00.
Áhugasömum er bent á að
ekki verður posi á öllum bás-
um markaðarins og gestum
því ráðlagt að hafa reiðufé
meðferðis.
-kgk
Sveitarfélagið
kaupir
hitaveituhlut
EYJA- OG MIKL: Hrepps-
nefnd Eyja- og Miklaholts-
hrepps samþykkti á síð-
asta fundi sínum kaup sveit-
arfélagsins á hlut Sigurðar
Hreinssonar og Félagsbúsins
Miðhrauni í Hitaveitu Eyja-
og Miklaholtshrepps. Oddviti
fór yfir drög að kaupsamn-
ingnum og kynnti yfirlýsingu
Félagsbúsins Miðhrauni um
að öll réttindi sem það hafði
fengið með samningi frá 2004
flytjist yfir til sveitarfélagsins.
Jafnframt kynnti hann drög að
samningi við Eiðhús ehf. Lagt
var til að drögin að samningn-
um yrðu samþykkt með eftir-
farandi fyrirvörum: Að Eiðhús
ehf. kaupi hlutafé og vatn af
sveitarfélaginu í samræmi við
það sem kynnt var á fundin-
um. Einnig að Hitaveita Eyja-
og Miklaholtshrepps komi að
kaupum á hlutafé og vatni af
sveitarfélaginu.
-kgk
Pétur Pétursson, útgerðarmaður
og skipstjóri á Arnarstapa, skrif-
aði á fimmtudag undir samning við
dönsku skipasmíðastöðina Bredga-
ard Bådeværft um smíði á nýjum
báti. Samningurinn var undirrit-
aður á Íslensku sjávarútvegssýn-
ingunni sem haldin var í Kópavogi
í síðustu viku. Nýi báturinn mun
leysa af hólmi hinn fengsæla Bárð
SH-81 sem Pétur hefur gert út síð-
an 2001.
Pétur hóf útgerð frá Arnarstapa
árið 1983 á sínum fyrsta Bárði, sem
var rúmlega tveggja tonna trébátur.
Síðan þá hafa bátarnir farið stækk-
andi. Nýr Bárður verður þann-
ig stærsti trefjaplastbátur sem ís-
lenskur útgerðarmaður hefur lát-
ið smíða; 25,18 metra langur, sjö
metra breiður og mun rista 2,5
metra. Verður hann því umtals-
vert stærri en sá Bárður sem gerð-
ur er út nú. Sá er 15 metra langur
plastbátur, rúmlega fjögurra metra
breiður og ristir 1,5 metra.
„Mikið
tilhlökkunarefni“
Pétur kveðst í samtali við Skessu-
horn fullur eftirvæntingar fyrir nýj-
um Bárði. „Báturinn sem við róum
á í dag er orðinn full lítill, okkur
hefur vantað pláss bæði fyrir afla
og veiðarfæri. Við það að fá stærri
bát með góðu plássi verður væntan-
lega hægt að auka gæði aflans enn
frekar. Á þessum nýja báti verður
bæði gott pláss fyrir afla og veið-
arfæri en ekki síst betri aðbúnað-
ur fyrir mannskapinn,“ segir Pét-
ur og bætir því við að skipverjum
komi til með að fjölga um einn, úr
þremur í fjóra, með tilkomu nýja
bátsins. Veiðimunstrið verður hins
vegar með svipuðum hætti og verið
hefur. „Þetta verður fyrst og fremst
netabátur en hannaður með þann
möguleika að einnig verði hægt að
gera hann út á dragnót. Við höfum
ekki möguleika á því í dag,“ seg-
ir hann. „Að fá nýjan bát er mikið
tilhlökkunarefni og vonandi endist
maður lengur í þessu á stærri bát
sem fer betur með bæði menn og
afla,“ segir Pétur ánægður að end-
ingu.
Eitt ár í smíðum
Skipasmíðastöðin Bredgaard Både-
værft hefur smíðað trefjaplastbáta
í hálfa öld, eða frá árinu 1967. Er
stöðin þekkt fyrir smíði sterkra og
vandaðra plastbáta. Fyrirtækið Afl-
hlutir ehf. er umboðsaðili dönsku
skipasmíðastöðvarinnar á Íslandi.
Koma Afhlutir til með að útvega
allan vélbúnað í nýjan Bárð, allt frá
aðalvél bátsins til rafala og skrúfu-
búnaðar.
Smíði á bátnum mun hefjast á
næstu misserum og reiknað er með
því að hún taki um það bil eitt ár.
Áætlaður afhendingartími nýs
Bárðar SH er í desember 2018.
kgk
Samið um smíði á nýjum Bárði
Verður stærsti trefjaplastbátur landsins
Pétur Pétursson, útgerðarmaður og skipstjóri á Bárði SH, með fulla lest af fiski.
Ljósm. úr safni/ af.