Skessuhorn - 20.09.2017, Side 7
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2017 7
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Matarauður Vesturlands –
í næstu viku!
Auglýsendur eru eindregið hvattir til þátttöku. Hægt er að panta auglýsingar í síma 433-5500 eða
á netfangið: auglysingar@skessuhorn.is Auglýsingafrestur rennur út föstudaginn 22. september.
Með Skessuhorni í næstu
viku fylgir veglegt sérblað
sem nefnist Matarauður
Vesturlands. Það er geð
út í samstar við verkefnis-
stjórn á vegum Sóknaráætl-
unar Vesturlands. Í efnis-
tökum verður lögð áhersla
á mat og matarupplifun í
október með yrskriftinni;
„Veisla á Vesturlandi.“ Í
blaðinu verður m.a. kynnt
matvælaframleiðsla á Vest-
urlandi, fullvinnsla hráefnis,
sala beint frá býli, hráefnis-
notkun úr heimahéraði á
veitingastöðum, matartengd
upplifun í landshlutanum og
margt eira.
Auk venjubundinnar dreif-
ingar verður blaðinu öl-
dreift til allra heimila og
fyrirtækja á Vesturlandi í
10.000 eintökum.
Sjúkraliði óskast á Dvalarheimili
aldraðra Stykkishólmi
Dvalarheimili aldraðra í Stykkishólmi óskar eftir að
ráða sjúkraliða til starfa við aðhlynningu. Unnið er á
morgun- og kvöldvöktum og aðra hvora helgi.
Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Umsóknareyðublöð er hægt að nálgast á heimasíðu
Stykkishólmsbæjar – www. stykkisholmur.is og
á skrifstofu Stykkishólmsbæjar. Umsók má skila
undirritaðri á Dvalarheimili aldraðra, Skólastíg 14,
340 Stykkishólmi eða á netfangið
krishan@stykkisholmur.is.
Umsóknarfrestur til 30. september nk.
Allar nánari upplýsingar á staðnum eða
í síma: 433-8165 alla virka daga.
Kristín Hannesdóttir
Forstöðumaður Dvalarheimilis aldraðra
Stykkishólmi
Stykkishólmsbær
Hafnargötu 3
340 Stykkishólmur
Sími: 433-8100
netfang: stykkisholmur@stykkisholmur.is
KT.: 620269-7009
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
7
Aðalfundur Snæfells, svæðisfélags
Landssambands smábátaeigenda, fór
fram í Grundarfirði á sunnudaginn.
Fundurinn var vel sóttur og mik-
ill hugur í mönnum. Þar voru sam-
þykktar ályktanir sem beint verður til
aðalfundar Landssambands smábáta-
eigenda. Annars vegar um að króka-
aflamarksbátar fái leyfi til að veiða
með þorskanetum og svo að Lands-
sambandið vinni að því að krókaafla-
markið verði sameinað aflamarki.
Mikil umræða var um þessar tillögur
og kom fram að nú væri aðsteðjandi
rekstrarvandi vegna mikillar hækk-
unar á veiðigjaldi fyrir þorsk og ýsu
sem knýju fram breytingar. Einnig
vegna þess að á sama tíma hefði fisk-
verð farið lækkandi.
Á fundinum var framtak nokk-
urra strandveiðisjómanna í Grund-
firðinga um útflutning í ágúst síðast-
liðinum lofað og jákvæður tónn var
vegna fyrirætlana LS um skipulagn-
ingu á sölu afla á erlenda markaði. Þá
var einnig samþykkt að hvetja stjórn-
völd til þess að veita kvótaívilnun til
þeirra sem landa á fiskmörkuðum.
Grásleppumálin voru einnig rædd
á fundinum enda eru veiðarnar gríð-
arlega mikilvægar fyrir félagsmenn
í Snæfelli. Samþykkt var að mæla
með að grásleppuveiðar skyldi fara í
kvótasetningu, að því gefnu að við-
miðunarárin verði að lágmarki sjö.
Ef niðurstaðan verður sú að leggja
til kvóta á grásleppuveiðar myndi
verða greidd atkvæði um hana með-
al grásleppuveiðimanna. Á fundinum
var rætt um bann á veiðum á hvítl-
úðu og var samþykkt að óska eftir
gögnum frá Hafrannsóknastofnun
um hvernig þróun stofnstærðar hef-
ur verið frá því bannið kom til fram-
kvæmda. Áskorun var einnig sam-
þykkt um að leyfa löndun og sölu á
hvítlúðu sem veiðist sem meðafli við
línuveiðar. Að lokum var samþykkt
að mótmæla harðlega hækkun veiði-
gjalda, að strandveiði verði heim-
iluð tólf daga í mánuði og aukning
línuívilnunar. Að áfram verði knúið
á um 16% hlutdeild í heimildum til
makrílveiða, rætt um öryggismál sjó-
manna, markaðsmál og margt fleira.
Allar tillögur Snæfells, sem voru alls
30 á fundinum, munu koma til um-
ræðu á 33. aðalfundi Landssambands
smábátaeigenda sem fram fer 19. og
20. október næstkomandi.
Örvar Már Marteinsson í Ólafs-
vík var kosinn formaður félagsins.
Tekur hann við af Guðlaugi Gunn-
arssyni sem hefur verið formaður
undanfarin ár en gaf ekki kost á sér
til endurkjörs. Í stjórn Snæfells auk
Örvars sitja: Ásmundur Guðmunds-
son Stykkishólmi, Bergsveinn Sævar
Guðmundsson Grundarfirði, Klem-
ens Sigurðsson Arnarstapa og Run-
ólfur Kristjánsson Grundarfirði.
þa
Snæfellskir sjómenn héldu aðalfund Snæfells