Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Page 12

Skessuhorn - 20.09.2017, Page 12
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 201712 Sveitarstjórn Borgarbyggðar tók á síðasta ári ákvörðun um að hefja undirbúningsvinnu við ljósleiðara- væðingu í sveitarfélaginu. Sú vinna er nú komin vel á veg, en hófst eins og kunnugt er með því að Guð- mundur Daníelsson ráðgjafi var ráð- inn til að annast ákveðna undirbún- ingsvinnu, hanna ljósleiðarakerfi og ákveðna undirbúningsvinnu sem nauðsynleg er þegar hafist er handa við undirbúning svo umfangsmik- ils verkefnis. „Hönnun ljósleiðara- kerfis fyrir Borgarbyggð er nú lokið. Alls eru formlegir tengipunktar yfir 500 í dreifbýli Borgarbyggðar. Und- ir það flokkast heimili með fasta bú- setu í dreifbýli, fyrirtæki og aðrir staðir sem þurfa slíka tengingu svo sem fjarskiptastaðir, virkjanir, dælu- stöðvar og önnur álíka starfsemi. Ljósleiðarakerfið í sveitarfélaginu verður nálægt 600 km. Hér er því um að ræða eitt stærsta samfellda verkefni á landinu af þessu tagi. Þar fyrir utan eru rúmlega 1.200 sumar- bústaðir í sveitarfélaginu sem koma líklega með að tengjast ljósleiðara- kerfinu í töluverðum mæli sé miðað við reynslu annarra sveitarfélaga,“ segir Gunnlaugur A. Júlíusson sveit- arstjóri í pistli sem hann hefur rit- að um stöðu verkefnisins í Borgar- byggð. Fjármagnað á þrennan máta Lagning ljósleiðara í hvern tengi- punkt í dreifbýli landsins er fjár- mögnuð á þrennan hátt. Hluti kostnaðar er fjármagnaður með styrkjum frá Fjarskiptasjóði, hluti með greiðslu frá þeim sem taka tengingu heim og hluti er fjármagn- aður með framlagi sveitarfélagsins. Árlegt afnotagjald rennur síðan til að endurgreiða það fjármagn sem sveitarfélagið hefur lagt til verks- ins á einhverjum árafjölda, til dæm- is áratug. Þeir sem taka ljósleiðara í sumarhús greiða allan kostnað af því sjálfir og njóta t.d. ekki styrks úr Fjarskiptasjóði sem styrkir heldur ekki tengingar sem eru frágengnar áður en styrkurinn er veittur. Byrjað í Andakíl Borgarbyggð hlaut á síðasta ári styrk úr Fjarskiptasjóði til að leggja ljós- leiðara í 12 tengipunkta í Andakíls- hreppi á þessu ári. Innan skamms verður ákveðið hverjir það verða. Einnig fékkst styrkur upp á rúmar 12 milljónir króna frá Byggðasjóði til þessa verkefnis í ársbyrjun. „Það voru vonbrigði að ekki hafi fengist styrkur til að vinna stærra verkefni á þessu ári. Vonir standa hins vegar til að í næstu úthlutun Fjarskipta- sjóðs, sem fer fram í október næst- komandi, fáist styrkur til að vinna að umtalsvert stærri áfanga. Í sum- ar hafa verið lagðir um 25 km af rörum í Reykholtsdal og nágrenni með rafstrengjum sem Rarik hefur lagt í jörð. Það er gert til að flýta fyrir verkinu og sparar einnig fjár- muni,“ segir Gunnlaugur sveitar- stjóri. Hann segir að stefnt sé að ljúka þessu verkefni eigi síðar en á árinu 2020. „Til að það gangi eins og best verður á kosið þarf að undir- búa verkefnið vel, kynna það vel fyrir öllum hlutaðeigandi, tryggja gott samstarf við landeigendur um lagnaleið þar sem það á við og hafa tryggt að farið sé eftir öllum lögum og reglum sem málið varðar,“ segir Gunnlaugur. Lítið byrjað í þéttbýli Varðandi stöðu ljósleiðaralagn- ar í þéttbýli Borgarbyggðar seg- ir Gunnlaugur að árið 2015 hafi verið skrifað undir samkomu- lag um að Gagnaveita Reykjavík- ur myndi leggja ljósleiðara í þétt- býli Borgarbyggðar; Borgarnes og Hvanneyri. Verkinu skyldi lok- ið árið 2018. „Fram til þessa hef- ur verkinu ekki þokað mikið áfram svo sýnilegt er og kemur margt til. Þó hefur ýmislegt gerst og margt í undirbúningi. Ljósleiðari hefur verið lagður í alla skurði sem hafa verið grafnir í Borgarnesi. Kveld- úlfsgatan er t.d. frágengin. Búið er að semja um afnot Gagnaveitunn- ar af aðstöðu í Íþróttamiðstöðinni þar sem sett verður upp miðstöð fyrir ljósleiðarakerfið í Borgarnesi. Vinna við uppsetningu hennar er að hefjast svo og tenging stöðvar- innar við lagnakerfið. Gagnaveit- an er síðan að hefja frekari fram- kvæmdir í Borgarnesi þannig að sjá má þess merki innan tíðar að kominn sé aukinn þungi í fram- kvæmdir. Ekkert hefur verið unnið á Hvanneyri enn sem komið er, en Gagnaveitan stefnir að því að ljúka lagningu ljósleiðara í Borgarnes og Hvanneyri fyrir árslok 2018,“ segir Gunnlaugur. mm Hönnun ljósleiðarakerfis er lokið í Borgarbyggð Framundan eru talsverðar breyt- ingar á verslun Samkaupa í Búð- ardal og verður henni á næstunni breytt í Kjörbúð og opnuð sem slík síðar í haust. Í frétt Skessuhorns í byrjun nóvember á síðasta ári sagði frá að öllum Samkaup Úrval og Samkaup strax verslunum á landinu yrði breytt yfir í önnur vörumerki. Samkaup rak fyrir breytingarnar um fimmtíu verslanir víðsvegar um landið. Þær spönnuðu allt frá lág- vöruverðsverslunum til þæginda- verslana. Byrjað var að breyta versl- unum í Garði og Sandgerði fyrir tíu mánuðum síðan. „Kjörbúðinni er ætlað að þjónusta íbúa með því að bjóða gott úrval, lágt verð og fersk- ar vörur á hverjum stað. Með því vill Samkaup gera viðskiptavinum sínum um allt land kleift að versla daglega allar helstu nauðsynjavör- ur á samkeppnishæfu verði,“ sagði í tilkynningu frá Samkaupum í nóvember sl. Frá því í nóvember í fyrra hafa sambærilegar breytingar verið gerðar á verslununum á hátt í tuttugu stöðum allt frá Bolungarvík í vestri til Neskaupstaðar í austri. Heiðar Róbert Birnuson rekstr- arstjóri Kjörbúðanna segir í samtali við Skessuhorn að breytingarnar í Búðardal séu gerðar til að koma til móts við íbúa með lækkuðu vöru- verði og auknu vöruúrvali. Sam- hliða breytingunum verður fram- boði veitinga breytt sem og opn- unartíma. Aðspurður segir Heiðar Róbert að opnunartíminn í Kjör- búðinni í Búðardal verði fyrst í stað frá klukkan 9 til 19 virka dag, 10-18 á laugardögum og 12 til 18 á sunnudögum. Nú er talvert mikil umferð í gegnum Búðardal þar sem þjóðvegurinn í gegn er tengingin við Vestfirðina. Heiðar Róbert seg- ist á þessari stundu ekki geta fullyrt um aukinn opnunartíma verslunar- innar t.d. á sumrin, tíminn verði að leiða það í ljós. Samhliða breytingunum verður framboði veitinga breytt í Kjörbúð- inni í Búðardal. „Við munum bjóða upp á skyndiréttakonsept. Áfram verður grillaður kjúklingur í boði, pylsur, gott úrval skyndirétta og þá verðum við með útgáfu af bakaríi á staðnum til að fólk geti nálgast nýja vöru daglega.“ Umfram allt segir Heiðar Róbert að Dalamenn geti vænst betri versl- unar í Búðardal síðar í haust, en þeir hafa í dag. „Við ætlum að opna góða verslun sem ég vona að allir geti verið sáttir með. Við reynum alltaf að koma til móts við óskir við- skiptavina okkar á hverjum stað og ég er sannfærður um að það muni takast í Búðardal eins og á öðrum stöðum víðsvegar um landið,“ segir Heiðar Róbert að endingu. Áfram verður eldsneytissala á vegum N1 á planinu við Kjörbúðina. mm Samkaupsverslun í Búðardal verður reytt í Kjörbúð Fyrsta Kjörbúðin var opnuð í Garði fyrir um tíu mánuðum síðan. Ljósm. Víkurfréttir. Svipmynd úr Samkaupsversluninni í Búðardal. Ljósm. úr safni Skessuhorns.Svipmynd úr Samkaupsversluninni í Búðardal. Ljósm. úr safni Skessuhorns.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.