Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2017, Síða 20

Skessuhorn - 20.09.2017, Síða 20
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 201720 Nú í haust hófst í fyrsta sinn í Grunnskólanum í Borgarnesi kennsla í slökun og vellíðan. Er það Elín Matthildur Kristinsdóttir sem hefur umsjón með kennslunni. Fyr- irkomulag kennslunnar er þannig að allir árgangar skólans hafa aðgang að slökun einn tíma á viku. „Í upphafi er kynningartími og þá koma nem- endur í litlum hópum, ekki fleiri en fimm í senn. Þar kynni ég fyrir þeim jóga og svo leggjast þau á dýnu, breiða teppi yfir sig ef þau vilja og hefja slökunina. Þau læra djúpönd- un til að losa spennu og athyglis- öndun til að hvíla hugann. ég segi þeim frá áhrifum slökunar á hugann og jafnframt hvaða áhrif stress, kvíði og vanlíðan hefur á hann,“ segir Elín í samtali við Skessuhorn. „Þeg- ar allir nemendur bekkjarins hafa sótt kynningartíma hafa þeir val um að koma í slökun á tíma síns bekkj- ar og þá koma þau fleiri í einu. Ekk- ert eitt hentar öllum og því þurfum við að taka tillit til þess ef nemend- ur vilja ekki koma. Þeir fá ósköp lít- ið úr því að vera settir í slökun gegn vilja sínum,“ segir Elín brosandi og bætir við: „En þegar nemendur sjá jákvæða upplifun þeirra sem velja að taka þátt aukast líkurnar á að þeir ákveði sjálfir að prófa að fara aftur. Um leið aukast líkur á því að þeir fái það út úr slökuninni sem við vonumst eftir, sem er aukin vellíð- an. Markmiðið er að krakkarnir geti notað sér það sem þau læra hér til að auka eigin vellíðan, ekki bara í skól- anum heldur almennt í sínu daglega lífi,“ segir hún og leggur áherslu á að slökunin og vellíðunarstundirnar séu ætlaðar öllum, ekki aðeins þeim sem búa við vanlíðan. „Okkur get- ur nefnilega öllum liðið betur, sama hvernig okkur líður fyrir.“ Góð líðan forsenda náms Elín hefur starfað sem deildarstjóri sérkennslu undanfarin ár, fyrst í Stykkishólmi en síðan í Borgarnesi. „Í því starfi hef ég orðið vör við tals- verða aukningu á vanlíðan, kvíða og þunglyndi nemenda. Vanlíð- an vindur upp á sig og hefur meðal annars þau áhrif að það verður erf- iðara að sinna náminu, svo úr verð- ur námsvandi. Góð líðan er því for- senda þess að nám geti átt sér stað,“ segir hún. „Fyrir nokkrum árum vorum við Signý Óskarsdóttir, þá- verandi skólastjóri Grunnskólans í Borgarnesi, að ræða hvernig við gætum stuðlað að betri líðan nem- enda okkar. Við deilum meðal ann- ars áhuga á núvitundarhugleiðslu og jóga og ég sagði við hana að ég sæi fyrir mér að nota einhvern þess háttar vinkil sem hluta af úrræði til að bæta líðan nemenda. Signý sagðist vilja að slíkt hefði mun meira vægi innan skólakerfisins en sem hluta af sérkennsluúrræði. Það þyrfti hreinlega að vera sér kenn- ari sem sæi um þetta, færi inn í alla bekki og kynnti fyrir nemendum þannig að allir ættu þeir kost á að nýta sér það. Helst þyrfti þetta að vera í boði fyrir starfsfólk líka. Mér fannst hún ansi stórhuga, þó svo að ég væri sammála henni, en ég sá ekki fyrir mér hvernig þetta gæti verið gerlegt,“ segir Elín en bætir því við að þarna hafi ákveðnu fræi verið sáð. „Þegar ég fór í námsleyfi síðasta vetur ákvað ég að sökkva mér ofan í velferðarfræðin og valdi mér fræðasvið sem kallast jákvæð sálfræði. Út frá þeim fræðum vann ég meistaraverkefni mitt sem fjallar einmitt um innleiðingu jákvæðrar sálfræði í daglegt skólastarf. Þetta meistaraverkefni er ég í raun að prufukeyra í vetur í Grunnskólan- um í Borgarnesi. Skólastjórnendur hér voru tilbúnir að gefa mér svig- rúm til að prófa þessa leið, höfðu trú á henni og einnig nýtur þetta fulls stuðnings fræðslustjóra. Það er ég afskaplega þakklát fyrir og gott að finna hve margir hafa trú á verk- efninu,“ segir hún. Vellíðan skiptir máli Valfög í vellíðan eru í boði á mið- og unglingastigi Grunnskól- ans í Borgarnesi. Koma nemend- ur þá vikulega í lengri tíma í senn. Í þeim tímum er farið dýpra í slök- unina og fræðin á bakvið hana, nú- vitund og hugleiðslu ásamt því að gera meira jóga. Í brautavali á ung- lingastigi, sem samanstendur af nokkrum mismunandi námskeið- um á hverri braut, er fræðslupakki um velferð og vellíðan skyldufag á öllum brautum. „Það er eini hlut- inn af þessu verkefni sem fer fram í hefðbundinni skólastofu þar sem skrifleg sjálfsskoðunarverkefni sem stuðla að aukinni þrautseigju eru unnin,“ segir Elín. Einnig er í boði að sækja um einstaklingsvinnu í vel- líðan með börnum. Þá er kastljós- inu beint að sjálfseflingu, rætt um styrkleika, það sem gengur vel og hvað viðkomandi eru þakklátir fyr- ir. Síðast en ekki síst eru opnir tímar bæði fyrir skóla og í hádeginu fyrir nemendur á mið- og unglingastigi. Starfsfólki er sömuleiðis velkomið að taka þátt í þeim tímum, en einn- ig eru sér tímar fyrir starfsfólk í lok dags. „Í tímunum fyrir skóla og í hádeginu nýta nemdendur sér þá öndunartækni sem þeir hafa lært til að láta sér líða vel, eða slaka á með sínum eigin aðferðum. Eina reglan í vellíðunarstofunni er að þar inni er ró og friður. Þeir sem koma inn koma þangað í rólegheitum, finna sér lausa dýnu og slaka á. Engir símar eða spjall. Bara hver og einn með sjálfum sér,“ segir Elín. „Ekki hentar öllum að liggja við slökun og því er einnig í boði þegar nem- endur koma í opinn tíma að sitja við borð og lita í mandölulitabók, skoða styrkleikaspjöld eða draga falleg skilaboð til að hafa með sér inn í daginn,“ bætir hún við. Mikið er lagt upp úr því að skapa notalegt og afslappað andrúmsloft í vellíðunarstofunni. Kom Elín með ýmsa hluti að heiman til að ná því fram. „Á sama tíma er ég að skapa sjálfri mér notalega vinnuaðstöðu. Það er eitt sem við þyrftum flest að huga betur að, bæði börn og full- orðnir; að gera vinnuumhverfið okkar þannig að okkur líði vel. Þar verjum við stórum hluta dagsins og það skiptir svo miklu máli að við látum okkur líða vel.“ Það sem koma skal Aðspurð segir hún verkefnið fara vel af stað og viðtökurnar séu afar góðar, þó stutt sé liðið á haustönn- ina. „Þetta fer mjög vel af stað. Þó svo að ég hafi frá upphafi haft trölla- trú á að þetta hefði jákvæð og góð áhrif þá eru viðbrögðin eiginlega vonum framar. Tímarnir hafa nýst mjög vel og í flestum bekkjum er stór meirihluti nemenda sem velur að fara í slökun, í sumum árgöngum mæta allir,“ segir Elín. „Viðbrögðin hafa því aðeins verið jákvæð og vak- ið athygli út fyrir veggi skólans. Við höfum frétt af því að kallað hafi ver- ið eftir því af foreldrum og kenn- urum í öðrum skólum að eitthvað svipað verði tekið upp. Ég vona að svo verði því ég held að þetta sé það sem koma skal. Það er vel gerlegt að taka upp svipað fyrirkomulag í öðr- um skólum, nóg er til af efni í vellíð- unarfræðunum. Það eina sem þarf er vilji, rými og einhver áhugasam- ur til að stýra verkefninu,“ segir Elín og vonast til þess að þetta verði senn tekið upp í fleiri skólum. „Ég vona það því ég tel okkur þurfa á þessu að halda. Bæði börn og fullorðnir búa orðið við mikið áreiti. Með því að ná að slaka á og auka vellíðan erum við betur í stakk búin að takast á við daglegt líf,“ segir hún. „Lengi hef- ur verið kallað eftir einhverju inn í skólakerfið til að auka vellíðan nem- enda. Flestir eru sammála um að það þurfi að gera betur í ýmsu sem snýr að andlegri heilsu og fyrirbyggj- andi aðgerðum. Þetta er tilraun til að svara því kalli. Fólk er sammála um hvað þarf að gera en það hefur reynst snúnara að finna út hvernig. Ég held að kúnstin sé að flétta vel- líðun og slökun inn í þann strúkt- úr sem fyrir er í skólakerfinu,“ segir Elín Matthildur að endingu. kgk Grunnskólabörn í Borgarnesi læra slökun og vellíðan „Okkur getur öllum liðið betur, sama hvernig okkur líður fyrir“ Elín Matthildur Kristinsdóttir kennir slökun, velferð og vellíðan í Grunnskólanum í Borgarnesi. Styrkleikaspjöld sem nemendur geta skoðað. Á þeim eru leiðbeiningar og ráð um hvernig má efla þennan styrkleika hjá hverjum og einum. Hér bendir Elín á styrkleikaspjald sem segir frá þrautseigju, eða „resilience“ eins og það heitir á spjaldinu sem er á ensku. Það er að hennar sögn einn mikilvægasti styrkleikinn, sem hjálpar fólki að takast á við áföll og það sem kemur upp á í lífinu.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.