Skessuhorn - 05.09.2018, Síða 25
MIÐVIKUDAGUR 5. SEpTEMbER 2018 25
Borgarbyggð -
miðvikudagur 5. september
Félagsstarf Félags aldraðra í
Borgarfjarðardölum hefst í Brún
í Bæjarsveit. Fundirnir hefjast
venju samkvæmt kl. 13:30.
Akranes -
miðvikudagur 5. september
Lýðheilsuganga kl. 18.00. Lagt
verður af stað frá bílastæðinu
við Akrafjall kl. 18:00 og gengið
áleiðis að flugvélarflakinu í
fjallinu. Gangan tekur um 90
mínútur. Fararstjórar eru Eydís
Líndal Finnbogadóttir og Anna
Bjarnadóttir.
Snæfellsbær -
miðvikudagur 5. september
Lýðheilsuganga í Snæfellsbæ kl.
18:00. Lagt af stað frá íþróttahúsi
Snæfellsbæjar, gengið upp
í Ennið og farið brúnirnar.
Komið niður í Krókabrekku.
Leiðsögumaður er Árni Guðjón.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 5. september
Lýðheilsuganga í Grundarfirði
kl. 18:00. Gengið upp í Arnardal.
Upphafsstaður er gönguleiðin
hjá vatnstankinum ofan
byggðar.
Stykkishólmur -
miðvikudagur 5. september
Lýðheilsuganga kl. 18:00.
Grettisttak undir hlíðum
Kerlingarfjalls. Mæting á
bílastæðið við íþróttahúsið þar
sem göngugarpar sameinast í
bíla.
Snæfellsbær -
laugardagur 8. september
Sérganga Þjóðgarðsins
Snæfellsjökuls kl. 13:00.
Gestir hittast við Miðhús í
Breiðuvík. Gengið verður um
Jaðragötu. Lengd göngunnar
er þrjár til fjórar klukkustundir.
Leiðsögumaður er Sæmundur
Kristjánsson.
Akranes -
föstudagur 7. september
Opnun sýningar á Bókasafni
Akraness á Bókasafnsdegi.
Sýningin „Þetta vilja
börnin sjá“ verður opnuð á
Bókasafni Akraness. Um er
að ræða farandsýningu sem
Borgarbókasafnið stendur að.
Efnistök sýningarinnar eru
myndskreytingar í íslenskum
barnabókum sem gefnar eru
út á árinu 2017. Alls taka 14
myndhöfundar þátt í sýningunni
að þessu sinni. Sýningin verður
opin til 26. september nk.
Akranes -
laugardagur 8. september
Vesturlandsslagur í boltanum.
ÍA og Víkingur Ó. mætast í
þýðingarmiklum toppslag í
1. deild karla í knattspyrnu.
Leikurinn hefst kl. 14:00 á
Akranesvelli.
Akranes -
mánudagur 10. september
ÍA tekur á móti Aftureldingu/
Fram í mikilvægum leik í 1. deild
kvenna í knattspyrnu. Leikurinn
hefst kl. 19:15 í Akraneshöllinni.
Snæfellsbær -
miðvikudagur 12. september
Lýðheilsuganga í Snæfellsbæ
kl. 18:00. Göngugarpar hittast
við íþróttahús Snæfellsbæjar,
safnast saman í bíla og aka út á
Hellissand. Lagt af stað í göngu
frá íþróttahúsinu á Hellissandi kl.
18:10 og gengið út í Krossavík.
Grundarfjörður -
miðvikudagur 12. september
Lýðheilsuganga í Grundarfirði.
Gengið upp að Grundarfossi
kl. 18:00. Upphafsstaður er
bílastæðið við þjóðveginn.
Akranes -
miðvikudagur 12. september
Lýðheilsuganga á Akranesi -
Þróun byggðar. Lagt af stað frá
Akratorgi kl. 18:00 og gengið
um gamla bæinn. Skoðað verður
hver þróun byggðarinnar hefur
verið með hliðsjón af fyrsta
staðfesta skipulagsupprættinum
fyrir Akranes, sem staðfestur var
árið 1927. Fararstjóri er Sindri
Birgisson umhverfisstjóri.
Stykkishólmur -
miðvikuadgur 12. september
Lýðheilsuganga kl. 18:00.
Helgafell - Munkaskörð. Mæting
á bílastæðið við íþróttahúsið í
Stykkishólmi þar sem göngufólk
sameinast í bíla.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 13. september
Myndamorgunn í Safnahúsi
Borgarfjarðar kl. 10:30 til 12:00.
„Þekkir þú myndina?“ Gestir
beðnir að greina óþekktar
ljósmyndir úr Hérðasskjalasafni.
Borgarbyggð -
fimmtudagur 13. september
Fyrirlestur í Safnahúsi
Borgarfjarðar kl. 21:15. Sigrún
Elíasdóttir flytur fyrirlestur um
ævintýri, fantasíubækur og
vísindaskáldskap.
Bifvélavirki/viðgerðarmaður
Okkur hjá Bílabæ í Borgarnesi
bráðvantar fólk til starfa.
Bifvélavirkja og aðila í
dekkjaviðgerðir og aðrar
smáviðgerðir. Endilega hafið
samband í síma 692-5525, Hálfdán.
Skrifstofa til leigu
Höfum til leigu skrifstofurými
á Akranesi, 13 fm að stærð.
Aðgangur að eldhúsi og
snyrtingum með annarri starfsemi í
húsinu. Upplýsingar gefur Magnús
í síma 894-8998.
Húsnæði í Brákarey
Laus eru fjögur ca. 20 fermetra
rými í Brákarey í Borgarnesi.
Sameiginlegur aðgangur að
eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.
Langtímaleiga kemur til greina.
Upplýsingar í síma 860-2032.
Leigupláss óskast á
landsbyggðinni
Hæ, ég er 34 ára drengur, fæddur
og uppalin í Búðardal, starfa í
íslenska kvikmyndaiðnaðinum
og langar að flytja úr Reykjavík
út á landsbyggðina, helst í svona
tveggja tíma fjarlægð frá bænum.
Hvorki reyki né drekk, dauðlangar
úr bænum. Uppl. í síma 820-2221.
Íbúðir í Bifröst
Nýstandsettar 3ja herbergja
íbúðir á Bifröst til leigu. Verið er
að taka þær í gegn og endurnýja
allar innréttingar. Leiguverð er
frá 115 þús. kr. á mánuði. Þriggja
mánaða trygging. Einungis
traustir, reglusamir og ábyrgir
aðilar koma til greina. Áhugasamir
sendi upplýsingar um aldur, starf,
fjölskyldustærð, meðmæli og
annað sem skiptir máli ásamt
símanúmeri og netfangi á
ritari@sagaz.is. Eingöngu þeim
sem senda upplýsingar verður
svarað. Frekari upplýsingar í síma
570-7010.
Bílaflutningar
Tökum að okkur bíla- og
smávélaflutninga á Vesturlandi
og víðar. Bílabær, sími 692-5525,
Hálfdán Þórisson.
Yoga í Borgarnesi
Yoga-námsskeið hefjast í byrjun
september. Allar upplýsingar á
yoga Mahan, Mávakletti 16, á
Fésbókarsíðu yoga Mahan eða
í tölvupósti: gerlak@simnet.
is. Fjölbreyttir tímar í boði. Góð
hreyfing, teygjur, slökun hugleiðsla
og síðast en ekki síst dásamlegur
félagsskapur.
Markaðstorg Vesturlands
ATVINNA Í BOÐI
Nýfæddir VestlendingarÁ döfinni
ÝMISLEGT
30. ágúst. Drengur. Þyngd: 3.994
gr. Lengd: 53 cm. Foreldrar: Rakel
María Eggertsdóttir og Kristinn
Bjarnason, Reykjavík. Ljósmóðir:
Valgerður Ólafsdóttir.
2. september. Stúlka. Þyngd:
2.964 gr. Lengd: 49 cm. Foreldrar:
Hera Jóhannsdóttir og Adam
Logi Halldórsson, Borgarnesi.
Ljósmóðir: Lára Dóra Oddsdóttir.
LEIGuMArkAÐur
FRUMHERJI HF. – ÞEGAR VEL ER SKOÐAÐ
www.frumherji. is
Búðardalur 2018
Bifreiðaskoðun verður hjá K.M. þjónustunni ehf.
Vesturbraut 20
Miðvikudagur 12. september
Fimmtudagur 13. september
Föstudagur 14. september
Lokað í hádeginu kl. 12.00 – 13.00
Tímapantanir í síma 570 – 9090
Allar gerðir ökutækja skoðuð
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
01
8
Húsnæði
Fjögur laus herbergi í Gallerý Brák í Brákarey í Borgarnesi.
Hvert um sig um 20 fm að stærð. Aðgangur að
sameiginlegu eldhúsi og hreinlætisaðstöðu.
Langtímasamningur kemur til greina.
Upplýsingar í síma 860-2032.