Hlynur - 15.12.1962, Qupperneq 3
Gildi verzlunarauglýsinga er. fyrst og fremst fólgið í því,
að þær vekja athygli og löngun manna til þess að eignast
þá hluti, sem þeim annars hefði ekki dottið í hug að kaupa.
Þess vegna. skila sniðugar auglýsingar ekki aðeins því fé, sem
til þeirra er eytt, heldur álitlegum gróða að auki.
Nú á dögum er það þó jólahátíðin, sem orðin er hverri aug-
lýsingu máttugri í þessum efnum. Jólin koma til kaupsýslu-
mannanna eins og af himnum send og skapa meiri sölu og
stærri ös í sölubúðunum en nokkur auglýsing getur gjört.
Allir þurfa að fá sér þetta eða hitt fyrir jólin, þarft og óþarft
— og þó einkum óþarft.
Ég sagði, að jólin kæmu til kaupsýslumannanna eins og af
himnum send. Ég tók svo til orða af ásettu ráði. Því hin sönnu
jól eru í sálum og huga mannanna, og það eru þau, sem eru
send af himnum. Allt hitt er bara umbúðir, sem mennirnir
hafa búið til um þau, að vísu fallegar og að ýmsu leyti ekki
illa viðeigandi, en víða miklu meiri en við á og skynsamleg
þörf er fyrir.
í þessum óskaplegu önnum og þreytandi umstangi okkar
við að búa til þess: fínu og íburðarmiklu jól, er nokkur hætta
á því, að það gleymist, að hin fyrstu jól voru haldin í fjárhúsi
og að hann, sem fæddist þá nótt, var ekki umvafinn jarðnesku
skraut:, heldur lagður á hálmbeð í jötu. Að öll þau ljós, sem
við kveikjum á jólunum er aðeins dauft tilbúið skin í saman-
burði við þá himnesku birtu, sem ljómaði yfir Betlehemsvöll-
um hina helgu nótt. Að jólagjafir okkar, hversu dýru verði
sem þær hafa verið keyptar á markaðinum, eru hjóm og hismi
í samanburði við sjálfa gjöf jólanna, fæðingu hans, sem var
mestur og beztur á jörð og opinberun Guðs eilífa kærleika.
HLYNUR 3