Hlynur - 15.12.1962, Síða 4

Hlynur - 15.12.1962, Síða 4
Ég er ekk: að amast við því, að við höldum jólin hátíðleg hið ytra í skynsamlegu hófi. Dýrum gimsteini hæfir fögur umgjörð. En höfuðatriðið er að finna jólin hið innra í sjálfs sín sál, vermast við hinn eilífa yl þeirra og birtu, verða börn á ný. Finna t:l þess áþreifanlegar og skýrar en endranær, hvers virði trúin og kærleikurinn er, hversu þetta tvennt verndar þig og styður í lifi og dauða, um leið og það kallar á þ:'g til fegurra lífs og göfugra starfs og vekur og glæðir það bezta sem í hjarta þínu finnst. Þá eru jólin komin til þín. Kom enn blessuð börnum glaða hátíð hátíða himinrunnin. Lyft, lífsviður, lj ósabarri hátt frá hálmi húms og dauða. GLEÐILEG JÓL! Sveinn Víkingur FIMMTUGUR varð þann 6. sept. s 1. Reynir Þ. Hörgdal, verk- stjóri hjá Skógerð Iðunnar á Akur- eyri. Hann er fæddur að Glerár- holti í Glerárhverfi (sem nú er sam- einað Akureyri) og hefir átt heima þar í hverfinu alla tíð. Foreldrar hans eru Þorsteinn G. Hörgdal umboðsmaður og kona hans, Jónína Stefánsdóttir. Reynir stundaði nám í Gagnfræða skóla Akureyrar og síðan í Mennta- skólanum á Akureyri og lauk það- an gagnfræðaprófi. Að því loknu starfaði hann um skeið hjá Síldar- verksmiðjunni í Krossanesi en hóf störf hjá Skógerð Iðunnar 1937 og starfaði þar um nokkur ár. Réðst þá sem verkstjóri hjá Skóverksmiðju J. S. Kvaran um skeið en hóf aftur störf sem verkstjóri í sníða- og saumadeild Iðunnar 1951 og hefir starfað þar síðan. Reynir er maður hóglátur og traustur, sem vinnur sér óskorað traust allra þeirra er honum kynnast. Kvæntur var Reynir, Þorgerði Jónsdóttur frá Patreksfirði, en hún andaðist s. 1. vor. 4 HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.