Hlynur - 15.12.1962, Page 11
Um félagslíf og
fleira hjá KEA
Frímann
Spjalíab við Fríman.n Guðmundsson
Þegar Frímann Guðmundsson
deildarstjóri í járn-og gelrvörudeild
K.E.A. var að gera jólainnkaupin fyr-
ir deild sína um miðjan nóvember
náði HLYNUR tali af honum litla
stund.
■— Þú ert búinn að vera lengi hjá
KEA, Frímann?
— Já, ég byriaði 1939, svo það eru
þá víst komin núna 23 ár. Ég var
fyrst í nýlenduvörudeild um tíma,
gerðist þá útibússtjóri í A.laska, fór
aftur í nýlenduvörudeildina og síðan
1957 hef ég verið deildarstjóri í
járn- og glervörudeild.
— Er margt fólk sem starfar hjá
þér?
— Við erum venjulega f jögur tvær
stúlkur og tveir karlmenn, en svo
fyrir jólin eða í desember fjölgar
starfsliðinu upp í tíu manns.
— Þið verzlið þá með mikið af
jólavarningi?
— Já, þetta heiti á deildinn er
eiginlega dálítið villandi því við
höfum á boðstólnum mikið af alls-
konar sportvörum, pappírsvörum,
filmum, myndavélum og þess hátt-
ar.
Bjarkarlundur, skáll starfsmanna K.
E.A. stendur á fögrum stað í Vagla-
skógi. ViSbyggingin sem tekin var
í notkun í sumar er til hægri
HLYNUR 11