Hlynur - 15.12.1962, Side 12
Að innan er skálinn hinn vistlegasti.
Hér sjáum við hina nýju setustofu
búna vönduðum húsgögnum sem
kiædd eru Gefjunaráklæði og Ið-
unar skinnum, sem líka prýða veggi
og gólf.
-— Svo við snúum okkur að fé-
lagslífinu hjá ykkur KEA-mönnum
á Akureyri. Hvað er helzt frá því
að segja?
— Félagslífið er nú heldur dauft
finnst mér, en þó eru þar nokkrir
góðir þættir. Bridgeklúbbur hefur
starfað undanfarið og allvel að því
ég má segja. Við höfum haft fasta
árlega keppni við Menntaskól-
ann á Akureyri, starfsmenn SÍS á
Akureyri, Dalvíkinga og svo var allt-
af árleg keppni við Sambandsmenn
í Reykjavík en hún hefur því miður
fallið niður núna undanfarin 2 eða
3 ár að því ég má segja. Það væri
mjög æskilegt að þessi þáttur yrði
endurvakinn á milli K.E.A. og Sam-
bandsins því ég má segja að ávallt
hafi vel tekist til um þessa keppni
og menn verið ánægðir með hana.
— Eitthvað gerið þið meira en að
spila Bridge?
— Jú, jú. Það er nú t. d. Bjark-
alunduir, skálinn sem við eigum
Vaglaskógi, og hefur verið vinsæll
og vel sóttur af starfsfólkinu. A s.
1. sumri varð skálinn 30 ára og var
þess minnst með því að farin var
hópferð þangað, líklega um 80
manns. Tekin var í notkun í sumar
stór og góð setustofa sem byggð hef-
ur verið við skálann. Áður voru
bar tvö herbergi og eldunarptáss á
eðri hæðinni svo þetta er kærkom-
viðbót sem áreiðanlega á eftir
njóta vinsælda enda vel búinn
úsgögum og hin vistlegasta.
— Hvað geta margir dvalið þarna
einu?
— I Bjarkarlundi geta verið tvær
ölskyldur í senn og auk þess eru
svefnpláss uppi á lofti í skálanum
þar sem 12 manns geta sofið. Dvai-
ið er í skálanum frá því 15. júní
og fram yfir miðjan ágúst, og hver
fjölskylda er viku í senn. Auk þess
kemur þarna alltaf fólk um helgar
til þess að njóta útiverunnar og
leika krokket og handbolta á túninu
við Bjarkalund.
— Er vel greiðfært heim að skál-
anum?
— Já, núna er kominn góður veg-
ur alveg að skálanum, en það hefur
áreiðanlega verið erfitt fyrir þá sem
Framh. á bls. 31
Frá vígsluhátíðinni
Gestir fá sér kaffi.
12 HLYNUR