Hlynur - 15.12.1962, Síða 20

Hlynur - 15.12.1962, Síða 20
DAGUR ÞORLEIFSSON Ríki með ólund Sólglitið eins og tindrandi síldar- hreistur í kjölsoginu og húmgráir fallbyssubátar sem mekaníseraðir hvolpar Kerberosar vakandi yfir ryðguðum fiskibátum; þessi var fyrsta aðkenning okkar af ríki Ul- brikts, mannsins, sem hefur heims- ins góðmannlegasta skegg og nærir þó kraft veldis síns á stækjunni, er leggur af rotnandi hræjum mis- heppnaðra flóttamanna í holræsum Berlínar. En hér er þó loftið hreint og lýðræðislegt næstum eins og uppi við Skánarstrendur; við siglum því vonglöð sömu slóðir og stríðsskip Absalóns biskups forðum. Þá bjó á Riigen slavneskt fólk, Vindur, sem um margra alda skeið hafði hleypt skeiðum sínum yfir til Fjóns og Lá- lands að myrða danska bændur og stela konum þeirra og búslóð; en Absalón vandi þá af þessu og nú er töluð þýzka á Riigen. Samt munu Slavar á ný hafa ráð eyjarinnar í hendi sér. Við komum að landi við borg þá, er Sassnitz heitir; mun hún vera eitthvað nálægt helmingi stærri en Akureyri Fulltrúi Sveriges Public Relations Förening, sem bauð okkur nemum við Journalistinstitutet í leið- angur þennan, upplýsti að í rauninni væri ekki ætlast til að neinn færi í land. Þetta var þó ekki tekið mjög alvarlega, enda er fulltrúinn sjálfur Skoti í móðurætt og hefur því ekki eins gaman af því að hlýða settum reglum og aðrir Svíar. Því fóru auð- vitað allir í land. Nokkrar persónur í grænum únl- formum, sjálfsagt fólkpólísar, voru á stjákli á bryggjuhausnum, en ann- að fólk sáum við ekki að sinni. Til þess að fá að labba upp í bæinn, urðum við að gegnumganga skýli eitt, er hafði inni að halda tvö úní- form, sitt af hvoru kyni. Glugguðu þau í vegabréf manna og veittu þeim síðan tveggja til þriggja tíma land- gönguleyfi. Ég otaði einnig fram mínum passa, útgefnum af Natórík- inu íslandi, og fýldi þá þýzkur grön, en lét þó kyrrt liggja. Gekk ég síðan í land í flokki sænskra hlut- leysingja. Ferjan sem gengur á milli Svíþjóðar og Sassnitz ber heiti borgarinnar. Hér er hún rétt kominn að landi í Sassnitz. 20 HLYNUR

x

Hlynur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.