Hlynur - 15.12.1962, Side 22

Hlynur - 15.12.1962, Side 22
Verðlaunahafarnir f. v. Þorlákur Ottesen, Gyða Halldórsdóttir og Reynir Snjólfsson. ALDARFJÓRÐUNGSSTARF í tilefni 25 ára afmælis KRON, sem var 6. ágúst s. 1. bauð KRON til fagnaðar öllum sínum starfs- mönnum, trúnaðarmönnum félagsins og nokkrum gestum að Bifröst í Borgarfirði þann 19. ágúst. í fagnaði þessum var þrem starfs- mönnum félagsins veitt viðurkenn- ing fyrir 25 ára störf hjá félaginu. Afhenti formaður félagsins, Ragn- ar Ólafsson, þeim Þorláki Ottesen, Gyðu Halldórsdóttur og Reyni Snjólfs syni vönduð gullúr áletruð til minn- ingar. Reynir Snjólfsson er fæddur 11. febrúar að Strýtu í Ölfusi. Kom til Reykjavíkur 1925 og vann hjá Reykjavíkurbæ en byrjaði hjá Pönt- unarfélagi Verkamanna 3. nóvember og hélt svo áfram þegar KRON varð til 1937. Reynir er verkstjóri í vöru- geymslu félagsins á Hverfisgötu. GySa Halldórsdóttir er fædd í Reykja vik 30. apríl 1916. Hóf störf hjá Pöntunarfélagi Verkamanna 6. okt- óber 1938 og hélt svo áfram hjá KRON þegar það var stofnað. Gyða hefur unnið bæði í Búsáhalda- og Vefnaðarvörudeild félagsins og er nú í Vefnaðarvörudeildinni á Sóla- vörðustíg 12. Þorlákur Ottesen er fæddur 20. júlí 1894 að Galtarholti í Skila- mannahreppi Borgarfirði. Fluttist til Reykjavíkur 1917 og hóf þá störf hjá Reykjavíkurhöfn,, þar sem hann hefur verið aðalverkstjóri frá 1925 og fram á þennan dag. Þorlákur var formaður Pöntunarfélags Verka- manna er því var ásamt Pöntunar- féiagi Verkamannafélagsins Hlífar í Hafnarfirði, Pöntunarfélagi Verka- lýðs- og sjómannafélags Keflavikur og Pöntunarfélagi Sandgerðis komið undir eitt félagsmerki — KRON. f 22 HLYNUR

x

Hlynur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.