Hlynur - 15.12.1962, Side 24
DEILDASTJDRAR I KRDN
Sigurður Geirdal hefur tekið við
deildarstjórastörfum hjá KRON á
Álfhólsvegi. Sig-
urður er fæddur í
Grímsey 4. júlí
1939, varð Gagn-
fræðingur frá
Héraðsskólanum í
Reykholti 1955,
starfaði hjá Bóka-
búð Norðra í eitt
ár en hélt að því
loknu í Samvinnu-
skólann og útskrif
SigurSur agist þaðan 19gg
Var hjá Produkt-
ion (kaupfélaginu) í Hamborg um
tíma en starfaði síðan hjá SÍS í
Austurstræti þar til hann réðist til
Kaupfélags Vestur-Húnvetninga um
áramótin 1959—60, sem sölu- og
innkaupastjóri. Aftur hóf Sigurður
störf hjá SÍS í Austurstræti sem
deildarstjóri í kjötdeild, en hvarf
til náms og starfa hjá H.B. í Kaup-
mannahöfn um s. 1. áramót. Við
forstöðu KRON á Álfhólsvegi tók
svo Sigurður í september s.l.
Þorsteinn Guðbergsson er nýorð-
inn deildarstjóri hjá KRON í Barma
hlíð. Þorsteinn er
fæddur 22. sept-
ember 1938 í
Reykjavík. Útskrif-
aðist frá Héraðs-
skólanum í Reyk-
holti 1954, fór svo
seinna meir í Sam-
vinnuskólann Bif-
röst og brautskráð
ist þaðan 1958. Að
skólavist lokinni
hvarf Þorsteinn til
verzlunarstarfa
hjá Verzl. O. Jóhannesson á Pat-
reksfirði þar sem hann gerðist svo
verzlunarstjóri þar til í sept. 1961
að hann hvarf til starfa hjá Kaup-
félagi Patreksfjarðar á Patreksfirði
og var þar unz hann réðzt til KRON
í maí s.l., fyrst á Borgarholtsbraut
en frá því í október hefur hann
verið deildarstjóri í KRON, Barma-
hlíð.
Kvæntur er Þorsteinn Þuríði Ingi-
mundardóttur frá Patreksfirði.
Þorsteinn
Sextugur
Jóhann Bjarna-
son varð sextugur
18. október. Jó-
hann, er fæddur á
Leiðólfsstöðum í
Laxárdal, Dala-
sýslu. Stundaði
nám við Lýðskól-
ann í Hjarðar-
holti 1916—17.
Kenndi við Laxár-
Jóhann
dalsskóla 1920—24 og aftur 1947—
48. Gerðist starfsmaður hjá Kaupfé-
lagi Hvamsfjarðar í Búðardal 1925
og var þar þangað til hann hóf
störf hjá SÍS 1953 sem húsvörður
í Jötni. Eftir þriggja ára veru þar
gerðist hann innheimtumaður hjá
Iðnaðardeild og síðan starfsmaður
Fjármáladeildar. Núna er Jóhann
starfandi hjá Bréfaskóla SÍS. Kvænt
ur er Jóhann Þuríði Skúladóttur og
eiga þau 4 börn.
24 HLYNUR