Hlynur - 15.10.1983, Side 34
Núverandi stjórn: F. v. Gunnar Örn Hámundartson, Aðalsteinn
Örnólfsson, Björn Jóhannsson, varamaður og Valgerður Krist-
jánsdóttir.
Starfsmannafélag Sam-
vinnubanka íslands hf.,
Reykjavík.
Stofnað 9. 11. 1963.
Fyrsti formaður: Sigurjón Jóhannsson.
Núverandi stjórn: Formaður Gunnar Örn
Hámundarson, aðalbanka, gjaldkeri Aðalsteinn
Örnólfsson, útibúi Höfðabakka 9, ritari og
varaformaður Valgerður Kristjánsdóttir, aðal-
banka.
Öryggistrúnaðarmaður er á hverjum af-
greiðslustað.
í hússtjórn Hamragarða situr Þór Símon
Ragnarsson.
Félagsmenn eru 176. Allir starfsmenn eru fé-
lagar.
Vinnustaðir eru: Aðalbankinn í Reykjavík og
17 útibú hans víða um land.
Aðstaða fyrir fundi er í matsal aðalbankans
og í Hamragörðum.
Haldin er árshátíð. Einnig jólatrésskemmtun
fyrir börn starfsmanna og þorrablót.
Farin er ein skemmtiferð á ári.
Félagsmenn hafa tekið þátt í ýmsum
íþróttamótum en stunda ekki fastar æfingar.
Félagsmenn taka þátt í námskeiðum og öðru
starfi Hamragarða.
Fréttabréf er sent út að loknum aðalfundi fél-
agsins.
Félagið á eitt orlofshús að Bifröst sem tekið
var í notkun árið 1976, húsið er 50m2 að
stærð.
Félagsmenn hafa fengið afslátt í ýmsum
verslunum, og' aðgang að starfsmannaverslun
á Kirkjusandi.
Núverandi stjórn SÖSS f. v.: Hallur Jónsson, Gunnar Alexand-
ersson, Guðmundur Geir Gunnarsson, Ásta Þorleifsdóttir og
Finnur Finnsson.
Starfsmannafélag Osta-
og smjörsölunnar sf.,
Reykjavík.
Stofnað 1. 7. 1975.
Fyrsti formaður: Pétur Sigurðsson.
Núverandi stjórn: Formaður Guðmundur Geir
Gunnarsson, gjaldkeri Gunnar Alexandersson,
ritari Hallur Jónsson, meðstjórnendur:
Ásta Þorleifsdóttir og Finnur Finnsson.
Öryggistrúnaðarmaður er Kjartan Jensson.
Fulltrúi í hússtjórn Hamragarða er Gunnar Al-
exandersson.
Félagsmenn eru 65. Allir starfsmenn eru fé-
lagar.
Á vetrum er haldin árshátíð, nokkur
skemmtikvöld og einnig spiluð félagsvist.
Farin er ein ferð á hverju sumri.
Keppt er í skák á hverjum vetri og félagið
tekur þátt í keppnum Sf. Sambandsins og
Hamragarða.
Félagið á orlofshús í landi Norðurkots í
Grímsneshreppi. Húsið er 50m2 að stærð.
Félagsmenn eiga aðgang að starfsmanna-
verslun á Kirkjusandi.
HLYNUR