Hlynur - 15.10.1983, Blaðsíða 71
AUGNABLIK
í ÖRLYGSHÖFN
Það var árið 1936 sem Sláturfélagið
Örlygur var stofnað. Á síðasta vetri
var það síðan sameinað Kf. Vestur-
Barðstrendinga sem hefur aðal-
stöðvar sínar á Patreksfirði. Síðasti
kaupfólagsstjóri var Jón Hákonar-
son.
Nú í sumar var opnuð ný verslun
að Gjögrum. Þar fæst allt sem þjónar
sveitinni en líka er fyrirhugað að
reka ferðamannaverslun yfir sumar-
ið, en ferðamannastraumur fer sí-
vaxandi á þessum slóðum. Látra-
bjarg er Paradís fuglaskoðara og þó
menn séu ekki fuglaáhugamenn þá
er ýmislegt fleira að sjá á þessu
svæði. Nú er verið að opna far-
fuglaheimili í Breiðuvík þar sem
kostur gefst á ódýru húsaskjóli,
svefnpokaplássi í tveggja til fjögurra
manna herbergjum.
Á leiðinni um Örlygshöfn á dögun-
um gat ritstjórinn ekki stillt sig um
að líta inn í Kaupfélagið og taka
meðfylgjandi mynd af starfs-
mönnum þess.
Þetta eru starfsmenn útibús Kf.
Vestur-Barðstrendinga að Gjögrum,
þau Valdimar Össurarson, útibús-
stjóri t.h. og Ágústa Jóhanna Sigur-
jónsdóttir afgreiðslustúlka.
A
SUÐUR-
EYRI
A húsinu stendur enn múrað í
Vegginn: Kaupfélag Súgfirðinga.
^að er nú samt liðin tíð, undanfarin
er hefur það verið útibú frá Kf. ís-
fkðinga.
Vegurinn liggur af há-Breiðadals-
heiðinni og er nokkuð brattur en
saemilegur. Þetta þorp er innilokað
sllan veturinn vegna snjóa. Þó
keyrði um þverbak í vetur með
snjóalögin. Ekki er það heldur í
Þjóðbraut og vafasamt er að margir
9eri sér ferð þangað að erindis-
leysu. Það ætti þó engan að skaða
að fara þennan smákrók.
Undanfarið hafa margir flutt burt
°9 hefur það verið mikil blóðtaka
fyrir staðinn, en Þóra útibússtjóri
sagði að það hefði gerst áður en
alltaf jafnað sig að einhverju leyti.
En það er erfitt að hafa verslun
með tjölbreyttan vaming, svo að
mestu verður að láta nægja dag-
legar vörur, og getur stundum verið
nógu erfitt að vera með þær. í vetur
var það svo að mjólk vantaði
dögum saman vegna snjóa, en þá
urðu þeir bændur í firðinum sem
hafa kýr, að hella niður mjólk, því
ekki var hægt að koma henni til
þorpsbúa vegna ófærðar þó ekki sé
vegalengdinni fyrir að fara.
Þóra sagði að með haustinu yrðu
einhverjar breytingar á starfsliði,
sjálf væri hún að hætta og flytja
burt, en vonaðist samt til þess að
geta áfram helgað samvinnuhreyf-
ingunni krafta sína.
ÞaS er ös viS búSarborðið hjá þeim
Ástu og Þóru.
Þær brugSu sér út fyrir búðina stelp-
urnar. F.v. Ásta Þórisdóttir, Ágústa
Jónsdóttir og Þóra Þórisdóttir, úti-
bússtjóri. Bak við þær er „kaupfé-
lagsbíllinn". Á þessari handkerru
skutla þær vörum á milli staða.
HLYNUR
71