Hlynur - 15.10.1983, Page 53
Núverandi stjórn f. v.: Andrés Óskarsson, Jóhann Jóhannsson
°9 AðalheiSur Guðmundsdóttir.
Starfsmannafélag
Kf. Stöðfirðinga,
Stöðvarfirði.
Stofnað 24. 3. 1980.
^yrsti formaður: Jóhann Jóhannsson.
^úverandi stjórn: Formaður Jóhann
Jóhannsson, verslun Stöðvarfirði, gjaidkeri
^ndrés Óskarsson, skrifstofa Stöðvarfirði, ritari
Aðalheiður Guðmundsdóttir, útibú Breiðdals-
vík.
^ryggistrúnaðarmaður er Andrés Óskarsson.
^ólagar eru 18. Flestir starfsmenn eru félag-
ar.
Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa og verslun á
Stöðvarfirði og útibú á Breiðdalsvík.
Aðstaða fyrir fundi er í fundarstofu kaup-
fe|agsins á Stöðvarfirði.
Núverandi stjórn fremri röð f.v.: Örn Magnússon og Stefán
Arnórsson. Aftari röð f.v.: Hrönn Jónsdóttir og Erla Jó-
hannsdóttir. Á myndina vantar Jón Alfreð Garðarsson.
Starfsmannafélagið
Framtíðin,
Djúpavogi.
Stofnað 18. 3. 1977.
Fyrsti formaður: Már Karlsson.
Núverandi stjórn: Formaður Örn Magnússon,
Búlandstindi, varaformaður Stefán Arnórsson,
mjólkursmlagi, gjaldkeri Jón Alfreð Garðarsson,
Búlandstindi, ritari Hrönn Jónsdóttir,
Búlandstindi, meðstjórnandi Erla Jóhannsdóttir,
verslun.
Öryggistrúnaðarmenn eru: Emma Ásgeirsdóttir
og Hjálmar Jónsson.
Félagsmenn eru 52. Ekki eru allir starfsmenn
félagar.
Helstu vinnustaðir eru: Skrifstofa og verslun,
mjólkursamlag, vélaverkstæði, rafmagnsverk-
stæði og hraðfrystihúsið Búlandstindur.
Aðstaða fyrir fundi er í kaffistofu Búlands-
tinds.
Haldin er árshátíð. Haldin útiveisla í
Hermannastekk nærri Djúpavogi í fyrsta
sinn sumarið 1983.
Félagið á sumarhús, 30m2, sem tekið var í
notkun 1978.
Starfsmannafélagið fær 10% afslátt af
viðskiptum við kaupfélagið.
Félagið hét áður starfsmannafélag Kf.
Berufjarðar en þegar starfsfólk Búlandstinds
gekk í það veturinn 1983 var nafninu breytt.
HLYNUR
53