Hlynur - 15.10.1983, Qupperneq 76
ÞaS var ekkert hik á þeim sem stofnuðu LÍS 1973. Þetta eru nokkur þeirra á gangi við Bifröst. F.v.: Jóhanna G. Erlingsson,
Jónas Jónsson, Reynir Ingibjartsson, Gunnar Sigurjónsson, Jón Kristjánsson, Snæþór Aðalsteinsson og Sigurður Björnsson.
LÍS var stofnað að Bifröst dagana 1.-2. september 1973 á fundi sem sóttur var af
fulltrúum víðsvegar að af landinu. Stofnfélög voru 15 en nú eru 44 félög innan sam-
takanna. Mörg þeirra voru stofnuð þegar á fyrsta starfsári LÍS en þá fór Reynir Ingi-
bjartsson um landið og aðstoðaði við stofnun ýmsra félaganna og hafa slíkar ferðir
verið farnar nokkrum sinnum síðan.
[ stað þess að vera með langa ræðu um starfið í þau tfu ár sem liðin eru síðan
LÍS var stofnað, fannst okkur best að bregða upp svipmyndum úr sögunni.
En þá kom vandamálið. í myndasafni Hlyns eru þúsundir mynda, en flestar þeirra
eru teknar af Kristjáni Pétri Guðnasyni sem hefur verið óþreytandi í myndatökum fyrir
LÍS og starfsmannafélögin. Og við spurðum okkur sjálf, á hvaða þætti á að leggja
áherslu? LÍS beitti sér fyrir byggingu orlofshúsa að Bifröst og átti drjúgan hlut að þeim
breytingum sem urðu á rekstri Bifrastar yfir sumarið. Samvinnulögunum hefur verið
breytt að tilstuðlan LÍS og nú eiga starfsmenn sæti í stjórnum flestra samvinnufélaga.
Sumarbúðir barna hafa verið vinsæll liður í starfinu. ( Hamragörðum hafa verið ótelj-
andi fundir og námskeið auk málverkasýninga. Hlynur hefur verið traustasti tengiliður
starfsmannafélaganna sín á milli og við LÍS. Vináttuvikur hafa verið haldnar hér á
landi og sóttar erlendis og leitt til aukinna kynna starfsmanna samvinnuhreyfingarinn-
ar á norðurlöndum. Lífeyrismálin hafa mjög komið til kasta LÍS og verið rædd á ráð-
stefnum og fundum. Ýmisskonar samskipti hafa verið milli starfsmannafélaganna með
ferðalögum og íþróttum. Við munum eftir vatnsfötusöfnuninni og eftir herferð fyrir
hreinni og betri vinnustað. Síðast en e.t.v. ekki síst er að minnast á herferðina fyrir
samvinnuvörum sem nú stendur yfir.
Örfáar myndir geta aðeins sagt dálítið brot þessarar sögu. Ef gera ætti henni verð-
ug skil þyrfti heila bók og hana sæmilega þykka. En við vonum að myndirnar á þess-
um síðum veki minningar hjá einhverjum og sýni öðrum svart á hvítu umfangið í starfi
LÍS, og er þá sleppt að minnast á allt starf einstakra félaga en það væri efni í aðrar
bækur.
76
Fyrsta framkvæmdastjórn LÍS sem kos-
in var 1973. F.v.: Sigurður Þórhallsson,
Baldvin Albertsson, Pálmi Gislason,
Reynir Ingibjartsson og Jóhanna G. Er-
lingsson.
Annað iandsþing LÍS var haldið í lok
águst 1975. Þar var kjörin ný fram-
kvæmdastjórn og hér eru f.v.: Sigurður
Þórhallsson formaður, Ann-Marí
Hansen, Pálmi Gíslason, Pétur Krist-
jónsson og Pétur Óli Pétursson.
HLYNUR