Hlynur - 15.10.1983, Page 78

Hlynur - 15.10.1983, Page 78
Orlofshúsin að Bifröst voru mikið framtak en hafa lika komið mörgum að gagni. Við byggingu húsanna sýndu menn sannan samvinnuanda og hér eru starfs- menn KEA að byggja hús fyrir Borgnesinga sumarið 1975. Það var þannig að þegar KEA menn komu suður var grunnurinn að húsi þeirra ekki tilbúinn og þá var einfaidlega gengið í að reisa næsta hús. Á þessari mynd er byggingarnefnd orlofshúsa á vegum LÍS að Bifröst. Þeir eru f.v.: Þórólfur Ágústsson, Margeir Daníelsson, Birgir ísleifsson og Pétur Kristjónsson. Reynir Ingibjartsson situr fyrir framan þá. Sumarbúðir barna í orlofshúsunum að Bifröst hafa orðið mjög vinsælar. Hér sést hluti af þátttakendum í einni af þessari sumarbúðaviku. Við gluggann stendur Sigurður Geirdal framkvstj. UMFÍ en hann og kona hans Ólafía Ragnarsdóttir sáu um fyrstu sumarbúðirnar sumarið 1977. Fjölmargir fundir hafa verið haldnir í Hamragörðum síðan þeir urðu félagsheimili samvinnumanna. Eltt þeirra mála sem mikið hefur veriíS rætt um er atvinnulýðræði. Hér er umræðuhópur að ræða þau mál. Það var mikils virði við skipulag orlofssvæð- isins að Bifröst að hafa góða skipuleggjend- ur. Hér eru þeir Reynir Vilhjálmsson, lands- lagsarkitekt standandi og Ólafur Jensson verkfræðingur en þeir áttu veg og vanda af skipulagningu Bifrastarsvæðisins. Þeir eru margir sem hafa átt góðar stundir í orlofshúsunum að Bifröst. Þessi mynd er tekin árið 1976 í húsi Sf. Kf. Rangæinga. A henni eru f.v.: Bjarni Helgason, Margrét Björgvinsdóttir, Katrín Jóns- dóttir Svavar Friðleifsson, Arngrímur Svavarsson og Marta Arn- grimsdóttir. I svarta myrkri og slagviðri söfnuðust saman i nóvember 1980 nokkrir félagar úr Byggingarsamvinnufélagl starfs- manna Sambandsins og Byggingarsamvinnufélagsins Vinnunnar til að taka fyrstu skóflustungu að húsum sem byggð voru í svokölluðum tilraunareitum í Suður-mjódd- inni í Breiðholti þar sem nú er risin samvinnubyggð. Þessir hópar hafa átt húsaskjól í Hamragörðum þar til elgin hús risu. Málverkasýningar hafa jafnan verið í Hamragörðum og á húsið nú gott safn málverka. Það vakti mikla athygli veturinn 1983 þegar hóP' ur starfsmanna samvinnuhreyfingarinnar tók sig saman og sýndi i Hamragörðum undir nafninu SAM 83. Hér er hluti þeirra sem sýndu við opnun sýningarinnar. 78 HLYNUR

x

Hlynur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlynur
https://timarit.is/publication/1407

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.