Fréttablaðið - 01.02.2017, Síða 10
Kanada Maðurinn sem myrti sex
manns í skotárás á mosku í Quebec
á sunnudagskvöld heitir Alexandre
Bissonette, er 27 ára gamall lög-
fræðinemi við Laval-háskóla í Que-
bec og var aðdáandi Donalds Trump
og Marine Le Pen.
„Hann var maður sem oft kom
með öfgakenndar athugasemdir á
samfélagsmiðlum þar sem hann tal-
aði illa um flóttafólk og femínisma,“
er haft eftir François Deschamps
atvinnuráðgjafa á fréttasíðu kanad-
íska dagblaðsins The Globe and
Mail.
„Þetta var ekki beint hatur heldur
frekar partur af þessari nýju íhalds-
hreyfingu þjóðernis og sjálfsmyndar
sem einkennist frekar af óumburð-
arlyndi en hatri,“ segir Deschamps.
Lögreglan segir að Bissonette hafi
verið einn að verki. Annar maður,
sem handtekinn var eftir skotárás-
ina, reyndist ekki hafa verið með
honum í ráðum. Honum var sleppt
úr haldi eftir yfirheyrslur og hefur
nú stöðu vitnis í málinu.
Auk þess að myrða sex manns
særði Bissonette á annan tug
manna, þar af fimm alvarlega. – gb
Var aðdáandi
Trumps og
Marine Le Pen
BandaríKin Donald Trump bíður
þess nú með mikilli óþreyju að öld-
ungadeild Bandaríkjanna samþykki
Jeff Sessions í embætti dómsmála-
ráðherra nýrrar ríkisstjórnar sinnar.
Trump rak í gær Sally Yates, starf-
andi dómsmálaráðherra, en hún
hafði sagt að ráðuneytið myndi
ekki verja nein dómsmál gegn hinu
umdeilda banni við því að fólk
komi til Bandaríkjanna frá Sýrlandi,
Íran og nokkrum öðrum múslima-
ríkjum.
Yates var aðstoðardómsmálaráð-
herra í stjórn Baracks Obama og
var fengin til að stýra ráðuneytinu
til bráðabirgða þangað til nýr ráð-
herra kæmi.
Í staðinn fyrir hana var Dana
Boente fenginn til þess að stýra
ráðuneytinu þangað til Sessions
tekur við, en Sessions er skoð-
anabróðir Trumps í innflytjenda-
málum.
Trump segir að Demókratar tefji
vísvitandi fyrir því að deildin sam-
þykki Sessions í embættið, og sama
megi raunar segja um aðra einstakl-
inga sem Trump vill hafa með sér í
ríkisstjórn.
„Demókratarnir eru að tefja fyrir
ráðherravali mínu af pólitískum
ástæðum eingöngu,“ skrifar hann
á Twitter-síðu sína. „Þeir ættu að
skammast sín. Engin furða að ekkert
virki hér í Washington.“
Í gær bættu Demókratar svo um
betur með því að mæta ekki til
atkvæðagreiðslu á nefndarfundum
um tvo aðra menn sem Trump vill
gera að ráðherrum, en það eru þeir
Steve Mnuchin sem á að verða fjár-
málaráðherra og Tom Price sem á
að verða heilbrigðisráðherra. Með
fjarveru sinni tefja Demókratar enn
fyrir staðfestingarferlinu.
Trump skýrði síðan frá því á
mánudag að hann væri búinn
að velja hvern hann vilji gera að
hæstaréttardómara í staðinn fyrir
Antonin Scalia, sem lést fyrir tæpu
ári. Trump ætlaði að tilkynna um
niðurstöðu sína í gærkvöld, en það
átti að gerast eftir að Fréttablaðið
fór í prentun.
Öldungadeild þingsins þarf
að staðfesta þá tilnefningu, rétt
eins og tilnefningar í ráðherra-
embætti, en dregist hefur í tæpt
ár að velja eftirmann Scalia í rétt-
inn vegna þess að Repúblikanar
vildu ekki láta Barack Obama
ráða valinu.
Á mánudaginn gerði Trump sér
einnig lítið fyrir og fékk helsta ráð-
gjafa sínum, Steve Bannon, sæti í
þjóðaröryggisráði Bandaríkjanna.
Þessi ráðstöfun hefur sætt harðri
gagnrýni, enda er Bannon ekki síður
umdeildur en Trump.
gudsteinn@frettabladid.is
Trump sakar Demókrata um
að flækjast fyrir sér
Segir Demókrata vísvitandi tefja fyrir því að nýir ráðherrar geti tekið til starfa. Demókratar neita að mæta
til atkvæðagreiðslu í þingnefndum þar sem ráðherravalið er til staðfestingar. Búast má við að val Trumps á
nýjum hæstaréttardómara verði ekki síður umdeilt.
Hópur fólks kom saman í Quebec í
fyrrakvöld til að minnast hinna látnu.
NordicpHotos/AFp
donald trump á fundi með fulltrúum lyfja- og líftæknifyrirtækja í Washington í gær. NordicpHotos/AFp
SVíÞJÓÐ Föngum í Svíþjóð hefur
fækkað um 24 prósent á 10 árum.
Í fyrra sátu 4.200 einstaklingar inni
en fyrir 10 árum var fjöldinn 5.500.
Fangelsum hefur einnig fækkað úr
58 í 47 á sama tímabili.
Frá því á tíunda áratug síðustu
aldar hefur verið reynt að láta þá
sem dæmdir eru fyrir minni háttar
afbrot gegna samfélagsþjónustu
eða ganga um með rafband. Vistun
ungra fanga á meðferðarheimilum
er úrræði sem einnig hefur verið
nýtt.
Að mati fyrrverandi prófess-
ors við Stokkhólmsháskóla stafar
mesta fækkunin í fangelsunum af
því að glæpamenn sem fæddir eru
á fimmta og sjötta áratug síðustu
aldar eru farnir að eldast. – ibs
Föngum fækkar
um fjórðung
Lögregla á vettvangi í Malmö.
NordicpHotos/AFp
SVíÞJÓÐ Leigumiðlun í Stokkhólmi
býður nú hótelherbergi í hverfinu
Bromma fyrir 8.495 sænskar krónur
á mánuði og er þá morgunmatur
innifalinn. Mánaðarleiga fyrir eins
herbergis íbúð í miðbæ Stokkhólms
sem er framleigð getur verið um 10
til 15 þúsund sænskar krónur.
Samkeppnin um leiguíbúðir
fer vaxandi í Stokkhólmi og hefur
meðalleiguverð hækkað um sjö pró-
sent undanfarið ár. – ibs
Hótel ódýrara
en leiguíbúð
ÚKraína Íslenska Eurovision-lagið
stígur á hið stóra svið Eurovision
þann 9. maí, á fyrra undanúrslita-
kvöldi keppninnar en það síðara fer
fram tveimur dögum síðar. Úrslita-
kvöldið fer svo fram 13. maí. Dregið
var í riðla við hátíðlega athöfn í
Kænugarði í gær en þar tók núver-
andi borgarstjóri borgarinnar og
formaður borgarráðs, Vitaly Klitsko,
við Eurovision-lyklunum af for-
manni borgarráðs Stokkhólms.
Flestir tengja þó Klitsko við box en
hann er fyrrverandi heimsmeistari
í þungavigt.
Klitsko tók við Eurovision-keflinu
Klitsko tekur við Eurovision-lyklinum úr höndum Evu Louise. NordicpHotos/AFp
Tólf lög keppa um að verða full-
trúi Íslands í Kænugarði en rúmlega
200 lög bárust í keppnina. Undan-
úrslitin fara fram í Háskólabíói,
laugardagana 25. febrúar og 4. mars
en úrslitakvöldið verður í Laugar-
dalshöll þann 11. mars. – bb
LandBÚnaÐur Stjórn Samtaka
afurðastöðva í mjólkuriðnaði
(SAM) mótmælir því harðlega að
enginn fulltrúi afurðastöðva sé til-
nefndur í samráðshóp um endur-
skoðun búvörusamninga.
Í fréttatilkynningu frá samtök-
unum segir að mótmælin komi í
kjölfar frétta um breytta skipan
í samráðshóp um endurskoðun
búvörusamninga frá atvinnuvega-
og nýsköpunarráðuneytinu.
Stjórn SAM telur að með skipan
hópsins sé ekki farið að lagaákvæð-
um um skipan samráðshópsins.
Bendir stjórn samtakanna á
að í 60. grein laga um breytingu
á búvörulögum, búnaðarlögum,
tollalögum og lögum um velferð
dýra, sem samþykkt voru á Alþingi
þann 13. september 2016, segi orð-
rétt: „Eigi síðar en 18. október 2016
skal sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra skipa samráðshóp um
endurskoðun búvörusamninga.
Tryggja skal aðkomu afurðastöðva,
atvinnulífs, bænda, launþega og
neytenda að endurskoðuninni.“
Í tilkynningu SAM segir að aðilar
sem séu taldir upp í lagagreininni
eigi fulltrúa í samráðshópnum og
sumir jafnvel marga – allir aðrir en
afurðastöðvar.
„Í ljósi þess að afurðastöðvar
eiga ekki sæti í samstarfshópnum
harmar stjórn SAM hve takmörkuð
samvinnan virðist eiga að vera og
telur að takmörkunin minnki líkur
á að sátt náist um hugsanlegar
breytingar á búvörusamningi og
búvörulögum,“ segir í lokin á til-
kynningunni. – bb
Afurðastöðvar koma ekki að samningnum
Afurðastöðvar eru ekki í breyttri skipan um endurskoðun búvörusamningsins.
Flestir tengja þó Klitsko
við box en hann er
fyrrverandi heimsmeistari
í þungavigt.
1 . f e B r Ú a r 2 0 1 7 M i Ð V i K u d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a Ð i Ð