Fréttablaðið - 01.02.2017, Síða 22
Hl u t f a l l k v e n n a sem gegndu framk v æ m d a s t j ó r a stöðum hjá stærstu fyrirtækjum landsins var níu prósent í
fyrra og stóð í stað frá árinu á undan.
Konur voru þá tólf prósent fram
kvæmdastjóra hjá meðalstórum
fyrirtækjum líkt og árið 2015. Um
þrettán prósent stjórnarformanna
stórra fyrirtækja voru af kvenkyni
og 17 prósent hjá meðalstórum. Í
báðum stærðarflokkunum jókst
hlutur kvenna um eitt prósentu
stig milli ára en engin breyting varð
á hlutdeild þeirra í stjórnarsætum
fyrirtækja.
Þetta kemur fram í nýjum tölum
sem Creditinfo tók saman fyrir
Markaðinn. Í þeim sést að hlutfall
kvenna í framkvæmdastjórastöðum
stórra fyrirtækja, sem áttu eignir yfir
einn milljarð króna, hefur lækkað
úr tíu prósentum árið 2014 í níu í
fyrra. Hjá meðalstórum fyrirtækjum
hefur sama hlutfallið haldist óbreytt
síðustu þrjú ár. Konur áttu 24 pró
sent stjórnarsæta í stórum fyrir
tækjum í lok árs 2016 og 18 prósent
hjá meðalstórum.
„Í öllu falli eru þetta slæmar
tölur og tölur um stjórnarmenn
og framkvæmdastjóra finnst mér
sýna berlega að enn er mjög langt
í land með að konur komist með
tærnar þar sem karlar hafa hælana
þegar völd í íslensku atvinnulífi eru
skoðuð,“ segir Brynja Baldursdóttir,
framkvæmdastjóri Creditinfo.
„Sáralítil þróun“
Flokkurinn Stór fyrirtæki nær í
tölum Creditinfo yfir 857 félög.
Meðalstóru fyrirtækin voru alls
1.866 talsins og áttu öll í lok síð
asta árs eignir frá 200 milljónum
og upp að einum milljarði króna.
Lítil fyrirtæki, sem verða ekki sér
staklega skoðuð hér, áttu undir 200
milljónum og voru alls 28.962. Taka
ber fram að 5.190 félög enduðu ekki
í neinum stærðarflokki þar sem þau
hafa ekki skilað inn upplýsingum
um eignir til fyrirtækjaskrár. Fyrir
tækin sem um ræður eru öll einka
hlutafélög eða hlutafélög sem hafa
skilað inn ársreikningi fyrir 2015
eða síðar.
Konur voru samkvæmt tölunum
framkvæmdastjórar í 77 stórum
fyrirtækjum af þeim 857 sem
fylltu flokkinn. Þær áttu 223 fram
kvæmdastjórastöður í meðalstórum
fyrirtækjum. Þrettán prósenta hlut
deild í stjórnarformennsku í stórum
fyrirtækjum skilar 111 sætum og
kona var æðsti stjórnandi í 317 af
1.866 meðalstórum félögum.
„Það er tvennt sem blasir við.
Annars vegar að þróunin hefur
verið sáralítil og maður hefði ætlað
að eftir að lög um kynjakvóta tóku
gildi árið 2013 myndum við fara að
sjá stíganda í þessu sem er ekki að
gerast,“ segir Brynja og vísar í lög
sem voru samþykkt árið 2010 um að
hlutfall hvors kyns í stjórnum fyrir
tækja með yfir 50 starfsmenn skyldi
vera yfir 40 prósentum.
„Tilgangur laganna hlýtur að hafa
verið að auka völd kvenna í þjóð
félaginu eða jafna völd kynjanna
en síðan ef við skoðum til dæmis
stór fyrirtæki og þá sérstaklega
stjórnarformennina, sem eru eins
og allir vita valdamesta hlutverkið
í stjórnum, þá er hlutfallið ekki sér
staklega gott. Í stórum fyrirtækjum
eru þrettán prósent stjórnarfor
manna konur en 17 prósent hjá
meðalstórum,“ segir Brynja.
„Það er augljóst að á sumum
sviðum er einhver þróun en hún er
alltof lítil og hæg. Með þessu áfram
haldi verður komið jafnræði milli
kynjanna í stjórnarformannssætum
árið 2113. Barnabörnin okkar munu
ekki einu sinni vinna á vinnumark
aði þegar jafnrétti verður orðið að
veruleika með þessu áframhaldi.“
„Þetta eru vonbrigði“
Helga Hlín Hákonardóttir, héraðs
dómslögmaður og sérfræðingur í
góðum stjórnarháttum hjá Strat
egíu, segir tölur Creditinfo vera
ákveðin vonbrigði. Út frá þeim sé
ljóst að þróunin sé ekki einungis
hæg heldur kalli hún á ný á umræðu
um að auka enn hlut kvenna í
stjórnun.
„Þetta eru vonbrigði og kallar á
rýni hjá okkur öllum. Ég held að
þetta segi manni það að hlutur
kvenna í stjórnun aukist ekki frekar
en orðið er af sjálfu sér, heldur gerist
það með ákvörðunum sem hver og
einn þarf að taka. Hvort sem þú
Valdamiklum
lykilkonum
fjölgar ekki
Konur voru níu prósent af framkvæmdastjórum
stærstu fyrirtækja landsins í fyrra samkvæmt nýjum
tölum Creditinfo Lánstrausts. Um þrettán prósent
stjórnarformanna félaga af sömu stærð voru af
kvenkyni. „Þetta er að gerast allt of allt of hægt."
Haraldur
Guðmundsson
haraldur@frettabladid.is 13%
stjórnarformanna í stórum
fyrirtækjum voru konur 2016
↣
Brynja Baldursdóttir,
framkvæmdastjóri
Creditinfo Láns-
trausts, segir tölurnar
sýna sáralitla þróun
FréttaBLaðið/GVa
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r6 markaðurinn