Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 35

Fréttablaðið - 01.02.2017, Qupperneq 35
ert að tala um fjárfesti, stjórnar- mann eða aðra stjórnendur – að hver og einn ákveði hvorum megin veggjar hann ætlar að vera,“ segir Helga Hlín. „Maður heyrir vel þegar maður er í hópi fólks hvort það er „inn“ að ræða aukinn hlut kvenna og hverjir eru tilbúnir í þá umræðu og hvenær hún er ekki velkomin. Fullt af karl- mönnum hafa tekið ákvörðun um að vera virkir í að efla hlut kvenna og þá finnur maður strax hverjir eru búnir að átta sig á að annars vanti ákveðna þekkingu og bakgrunn. Svo eru hinir, bæði karlar og konur, þar sem þessi umræða á ekki upp á pallborðið. Ég velti fyrir mér hvort þetta sé ekki komið á þann stað að hver og einn stjórnandi og fjár- festir þurfi að taka þessa ákvörðun um hvar hann ætlar að vera í þess- ari umræðu og hvar hann ætlar að láta til sín taka. Hvort hagsmunum rekstrarins, hluthafa, viðskiptavina og samfélagsins alls sé betur borgið með því að þessi ákvörðun sé tekin og verkin látin tala. Það er auðvelt að vera meðvirkur og fljóta með og bíða eftir að hinir taki af skarið.“ Spurð um leiðir til að auka hlut kvenna enn frekar bendir Helga Hlín á að opin og skipuleg ráðn- ingarferli séu alltaf til þess fallin að vanda ákvarðanatöku að þessu leyti. Einnig vísar hún til umræðu síðustu ára um tilnefninganefndir sem er getið í íslenskum leiðbeiningum um stjórnarhætti, en þær sjá um að til- nefna fyrir aðalfund frambjóðendur með breiða þekkingu og reynslu til stjórnarsetu. Helga Hlín segir þær hafa átt erfitt uppdráttar en að þar geti falist ákveðin lausn fyrir félög í dreifðri eigu. Þær skapi jafnframt áframhaldandi umræðu og rýni í breidd í stjórnun. Aðrir hafi nefnt til sögunnar hugmyndir um kynja- n Stjórnarformenn n Stjórnir allra fyrirtækja n Framkvæmdastjórar ✿ Hlutfall kvenna í stjórnun fyrirtækja af öllum stærðum 2006 2016 25% 20% 15% Lítið MeðaL Stórt Stjórn 2016 24% 18% 24% 2015 24% 18% 24% 2014 26% 20% 25% Stjórnarformaður 2016 26% 17% 13% 2015 25% 16% 12% 2014 25% 17% 13% Framkvæmdastjóri 2016 22% 12% 9% 2015 22% 12% 9% 2014 22% 12% 10% ✿ Þróunin síðustu þrjú ár samkvæmt Creditinfo Þetta eru vonbrigði og kallar á rýni hjá okkur öllum. Ég held að þetta segi manni það að hlutur kvenna í stjórnun aukist ekki frekar en orðið er af sjálfu sér. Helga Hlín Hákonar- dóttir, sérfræðingur í góðum stjórnarháttum Það er augljóst að eigendur fyrirtækja þurfa að halda vöku sinni í þessum efnum og að sjálfsögðu nýta krafta beggja kynja í auknum mæli. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA Suðurhrauni 1 | 210 Garðabæ | Sími: 59 50 300 | www.isafold.is Tækni og reyndar hendur fara vel saman Ísafold er ein stærsta prentsmiðja landsins og þjónustar daglega stóran hóp viðskiptavina. Verkefni okkar eru jafn fjölbreytt og viðskiptavinir okkar eru margir. Allt frá einföldum nafnspjöldum til bæklinga sem dreift er á öll heimili landsins. Bækur, tímarit, bæklingar og umbúðir. Við komum hugmyndum þínum í framkvæmd. Hafðu samband og við klárum þetta saman. Ísafoldarprentsmiðja er umhverfisvottuð prentsmiðja af Svaninum, norræna umhverfismerkinu. Við erum aðilar að Rammasamningi Ríkiskaupa og Rammasamningi Reykjavíkurborgar. Við framleiðum dagblöð, bækur, tímarit, bæklinga, umbúðir, veggspjöld, bréfsefni, umslög, nafnspjöld, fjölpóst og margt fleira. kvóta í framkvæmdastjórnum fyrir- tækja sem henni þyki mjög framúr- stefnulegar. „Ég held að svona umræða sé til þess fallin að minna okkur á að þetta er endalaus vinna, langhlaup, og að við þurfum að halda boltanum á lofti. Það er aftur á móti jákvætt að formönnum er að fjölga lítillega því þar hafa konur vægi við stefnu- mótun og ráðningar framkvæmda- stjóra. En þetta er að gerast allt of, allt of hægt. Maður veltir því fyrir sér því nú hefur Ísland verið mjög framarlega í jafnréttismálum, hvort hugsanlega hafi orðið einhver við- spyrna við þróuninni. Að mönnum hafi þótt nóg um hlut kvenna, en í því felst útilokun á helmingi þjóðar- innar í stjórnun sem aldrei getur talist til heilla.“ Helga segir tölur Creditinfo sér- staklega athyglisverðar í ljósi þess að á síðustu vikum hafi tvær konur verið ráðnar í mikilvæg störf. Vísar hún þar annars vegar til ráðningar Landsbankans á Lilju Björk Einars- dóttur í starf bankastjóra og hins vegar ákvörðunar Viðskiptaráðs Íslands um að ráða Ástu Sigríði Fjeldsted sem nýjan framkvæmda- stjóra ráðsins. „Þarna fáum við tvær framúr- skarandi konur í áberandi og mikilvæg stjórnunarstörf. Konur sem hafa kosið að hasla sér völl og tekist frábærlega upp á erlendum vettvangi. Þær velja þennan tíma- punkt að koma heim af því að hér eru tækifæri. Svona ráðningar eru mikilvægar og eiga að vekja okkur af værum blundi um að við þurfum hvert og eitt að taka þessa ákvörðun og vera virkir þátttakendur.“ Vill breytingar Halldór Benjamín Þorbergs- son, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), segir ljóst að hlutdeild kvenna sé enn allt of lítil og að þróunin síðustu ár sé ekki góð. „Þetta eru ekki nógu uppörvandi tölur. Framsýn og vel rekin fyrirtæki eiga að vita að fjölbreyttar stjórnir eru góðar stjórnir. Mér þætti æski- legt að myndin væri önnur og jafn- ari. Það er augljóst að eigendur fyrir- tækja þurfa að halda vöku sinni í þessum efnum og að sjálfsögðu nýta krafta beggja kynja í auknum mæli. Annað er sóun í mínum huga og betur má ef duga skal,“ segir Halldór. Halldór segir aftur á móti að var- hugavert sé að byggja spár um þróun næstu ára og áratuga á reynslu síð- ustu ára. Íslenskt samfélag sé að taka ýmsum breytingum sem eigi án efa eftir að auka hlut kvenna í stjórn- unarstöðum. „Þar er um margbreytilega þætti að ræða. Til dæmis mun mennt- unarmynstur vafalítið hafa áhrif á næstu árum. Ef þú gefur þér að stjórnandinn í dag hafi verið í háskólanum fyrir 15-20 árum þá verður þróunin á annan veg á næstu árum. Í Háskóla Íslands eru núna 34 prósent karlar og 66 prósent konur. Betra jafnvægi í þessum efnum verður að nást,“ segir Halldór. Út frá stærð fyrirtækja eftir eignum ↣ markaðurinn 7M I Ð V I K U D A G U R 1 . f e b R ú A R 2 0 1 7

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.