Fréttablaðið - 01.02.2017, Síða 52
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Lagið „Paper“ samdi ég með Ein-ari Egilssyni, Lester Mendez og Lily Elise í Los Angeles þar sem
við Einar höfum verið búsett í
nærri átta ár. Við sömdum lagið
fyrir næstum ári og það var ekki
samið upprunalega fyrir Eurovision
heldur fyrir hljómsveitina okkar
Einars sem heitir Blissful,“ segir
Svala Björgvinsdóttir, en hún er
einn keppenda í Söngvakeppni
sjónvarpsins sem fram fer í lok
febrúar.
Svala segir að lagið sé samið
um persónu sem gengur í gegn-
um erfitt tímabil í sínu lífi.
„Við göngum öll í gegnum
svona tíma og ég vildi
semja lag sem flestir
gætu tengt við. Ég
hef verið opinská
í viðtölum um
mína reynslu
af kvíðarösk-
un sem ég
hef glímt við
síðan ég var
unglingur. Ég vildi
koma minni reynslu
inn í textann á einhvern hátt
og við og Lily náðum að gera
það. Við vildum nota orðið
paper sem myndlíkingu við
sál eða líf persónu. Því þú getur tekið
pappír, rifið hann, beyglað hann,
klippt hann, teiknað á hann, búið til
list úr honum, málað á hann, skorið
þig á honum, límt hann og margt
fleira, okkur fannst þessi myndlíking
áhugaverð og skemmtileg,“ útskýrir
Svala og bætir við að hún hafi
ákveðið að setja textann upp
eins og persónan sé að takast
á við erfitt samband en samt
sem áður gæti sambandið
átt við hvað sem er.
„Það er hægt að túlka
textann á svo marga
vegu,“ segir hún.
Stefán Hilmarsson
samdi íslenska text-
ann. „Hann tók
hugmyndina enn
lengra og náði að
koma þessu rosa-
lega vel til skila á
íslensku,“ segir
Svala þakklát.
Tóku skyndi-
ákvörðun og
sendu lagið í
keppnina.
Einum degi
fyrir skila-
frest tóku þau hjónin ákvörðun um
að senda lagið í keppnina, og sjá
ekki eftir því.
„Ég keppti 2008 sem lagahöfundur
í Söngvakeppninni og það var mjög
skemmtilegt. Ég var ekkert búin að
plana að taka þátt aftur. En svo stakk
Einar upp á þessu og ég sagði bara já,
gerum það,“ segir hún og bætir við
að ferlið hafi gengið virkilega vel.
Svala er komin með frábæran hóp
í kring um lagið sem mun aðstoða
hana við að gera atriðið sem flottast.
„Við vorum að setja saman okkar
teymi í kringum lagið og ráða bak-
raddasöngvara og fleira. Þetta er allt
að koma saman. Ég hlakka virki-
lega til að flytja lagið mitt. Eitt af því
skemmtilegasta sem ég geri er að
koma fram „live“,“ segir Svala.
Lagið hennar Svölu hefur slegið
í gegn á YouTube en frá því að lagið
fór í spilun fyrir rúmri viku hafa hátt
í 21.000 manns hlustað á það.
„Það er virkilega skemmtilegt.
Gaman líka að sjá að þarna eru
gamlir erlendir Steed Lord-aðdáend-
ur sem hafa fylgt mér í mörg ár. Er
bara mjög þakklát fyrir stuðninginn
frá öllum,“ segir Svala, en hún mun
keppa í seinni hluta undankeppn-
innar þann 4. mars í Háskólabíói.
gudrunjona@frettabladid.is
Samdi lagið út frá
persónulegri reynslu
Söngkonan Svala Björgvinsdóttir tekur þátt í Söngvakeppninni
2017, undankeppni Eurovision, með lag sitt Paper. Lagið fjallar um
persónu sem er að ganga í gegnum erfitt tímabil í lífi sínu.
Svala Björgvins tekur þátt í seinni undankeppni Söngvakeppni sjónvarpsins sem fram fer í Háskólabíói 4. mars. MYNDIR/SVALA
Mjúk og falleg
„satin striped“
Policotton sængurföt.
Sængurver 140x200 cm
Koddaver 50x70 cm
Fullt verð: 6.490 kr.
DORMA HOME
sængurföt
Aðeins 4.868 kr.
Stillanlegur hægindastóll.
með skemli. Ljósgrátt
slitsterkt áklæði.
Fullt verð: 69.900 kr.
WESTFIELD
hægindastóll
með skemli
ÚTSALA DORMA
NÚ Á FJÓRUM STÖÐUM
Nýttu tækifærið
Afgreiðslutími Rvk
Mánudaga til föstudaga kl. 10–18
Laugardaga kl. 11–17
Sunnudaga kl. 13–17 (Smáratorgi)
www.dorma.is
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
25%
AFSLÁTTUR
Aðeins 41.940 kr.
40%
AFSLÁTTUR
NATURE’S REST
heilsurúm m/classic botni
Verðdæmi
120 x 200 cm
Fullt verð: 79.900 kr.
25%
AFSLÁTTUR
af 120x 200 cm á meðan
birgðir endast.
Svart PU
leður á botni.
Aðeins 59.920 kr.
ÚTSALAN
LOKAVIKAN
ALLT AÐ
60%
AFSLÁTTUR
OP
IÐ
Á
SU
NN
UD
ÖG
UM
Í
DO
RM
A
SM
ÁR
AT
OR
GI
L O K AV I K A
N
1 . f e b r ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r28 L í f I Ð ∙ f r É T T a b L a Ð I Ð