Fréttablaðið - 01.02.2017, Side 56
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
mest lesna dagblað landsins.
ÞÚ GETUR NÁLGAST FRÍTT EINTAK AF
FRÉTTABLAÐINU VÍÐSVEGAR UM LANDIÐ.
Óskir þú eftir því að fá blaðið í áskrift, hafðu samband við Póstdreifingu.
Nú vakna ég og fæ mér kaffibolla og helli kornflexi í skál og les blaðið og gleymi í eitt guðsvolað
augnablik öllu þessu ömurlega sem
grasserar nú í veröldinni. Hér verða
því engar yfirfærðar merkingar eða
háfleygar yfirlýsingar. Engin sam
félagsrýni. Enginn boðskapur. Bara
upptalning á því sem fegrar og bætir
og auðgar mína persónulegu tilvist
á þessari jörð. Lítill minnismiði til
sælu.
Á morgun ætlar mamma að elda
góðu núðlurnar, þessar með pestó,
tófú og brokkólíi, og svo er mér
boðið í afmæli til kærrar vinkonu á
laugardaginn.
Í tölvunni minni er albúm. Það
inniheldur eingöngu myndir af
foreldrum dýraríkisins að kyssa
afkvæmi sín. Gíraffar, apar, selir
og pandabirnir. Alls konar dýr. Að
kyssa lítil dýrabörn. Þegar ég skrolla
í gegnum þessar myndir man ég að
ást og umhyggja eru kenndir sem
eru næstum öllum eðlislægar. Og
það er huggandi.
Öllum strákunum í One Direct
ion gengur vel að fóta sig í leik og
starfi eftir að hljómsveitin lagði
endanlega upp laupana í fyrra. Þeir
hafa þroskast og dafnað. Sumir eru
orðnir feður. Enn aðrir eru hættir að
lita á sér hárið og hafa hrifsað aftur
til sín sjálfræði yfir eigin persónu
leika.
Það eru nákvæmlega 100 dagar í
aðalkvöld Söngvakeppni evrópskra
sjónvarpsstöðva – sem þýðir öðru
fremur að vorið er í grenndinni. Nú
sér fyrir endann á hráslaganum og
áður en varir taka við bjartar sumar
nætur, grill með góðum vinum og
gallajakkar sem þurfa ekki endilega
að vera fóðraðir.
Þarna. Ég segi þessari upptaln
ingu lokið og býð öllum að útbúa
sína eigin. Ég heiti því að allt þetta
ömurlega verður fyrir vikið örlítið
minna ömurlegt.
Óður til þess
sem er gott
Kristínar
Ólafsdóttur
Bakþankar
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
SKRAUT FYRIR
ÁRSHÁTÍÐIR
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
BRÍETARTÚNI 13 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS
Settu starfsfólkið í fyrsta sæti
WOW Biz er fyrir þá sem vilja aukin þægindi, einfaldleika og greiða leið inn
í vélina. Innifalin er máltíð, forfallavernd og sömuleiðis BigSeat, eða besta
sætið sem er í boði hverju sinni. WOW air flýgur tvisvar á dag til London,
Kaupmannahafnar, Parísar, Berlínar, Dublin og Amsterdam. WOW Biz er því
kjörin leið fyrir þá sem þurfa að komast hratt og örugglega milli staða.
WOW Biz
Sumir þurfa einfaldlega
meira WOW en aðrir.