Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 8

Litli Bergþór - júl. 2018, Blaðsíða 8
8 Litli-Bergþór Starfsfólk leikskólans Álfaborgar fór í námsferð á vordögum og skoðaði tvo leikskóla. Fyrri leikskólinn sem við skoðuðum var í Fredensborg í Danmörku. Þar var um að ræða útileikskóla sem ber nafnið Skovlyset. Kathrine Andersen kennari í Bláskógaskóla í Reykholti kom okkur í samband við skólann. Við mættum í blíðskaparveðri og þegar börnin voru búin að fá sér brauðbita var haldið af stað út í skóg. Þegar komið var út í skóginn stoppuðu börnin og settu höndina á stein sem þar var. Þar máttu þau hætta að leiða hvert annað og fara að leika sér. Þetta var mjög skemmtilegur staður. Þar var hengiróla og þau fengu að saga trébúta. Þar sem þetta er útiskóli eru börnin úti allan daginn. Áhugahvöt barnanna er mikils metin og gaman var að sjá hversu mikil virðing er borin fyrir því sem börnin hafa að segja. Þegar við höfðum gengið áleiðis, stoppuðu börnin, þar sem þau höfðu séð frosk. Hann lá undir hrúgu af laufblöðum. Þau færðu froskinn og settu hann á öruggan stað. Þegar halda átti af stað aftur sagði eitt barnið: „Við verðum að bíða eftir konunni á hækjunum“. Þau sáu að einn af okkar kennurum var á hækjum og vildu ekki skilja hana eftir. Við fengum að gjöf steina sem þau höfðu tínt og blóm. Þau eru skemmtilega opin og glöð börnin í þessum leikskóla. Seinni leikskólinn var í Trelleborg í Svíþjóð og ber nafnið Modeshögs. Þar skoðuðum við leikskóla sem er með sömu stefnu og við, þ.e. Reggio Emilia. Þar tók Alma Tómasdóttir á móti okkur. Öllum starfsmönnum bæjarskrifstofunnar var boðið að koma í leikskólann í tilefni af komu okkar. Fyrir hádegi fengum við fyrirlestur um starf og stefnu leikskólans. Eftir hádegi fórum við í Starfsfólk Álfaborgar í námsferð til Danmerkur og Svíþjóðar Þetta er steinninn sem börnin settu hendurnar á til að mega sleppa hvort öðru og fara að leika sér. Frá vinstri: Eyrún, Dagný, Lovísa, Heiða, Dröfn, Guðbjörg, Dinna, Ellisif. Gaman saman. Frá vinstri: Heiða Björk, Lovísa Tinna, Sigga og Eyrún.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Litli Bergþór

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Litli Bergþór
https://timarit.is/publication/884

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.