Litli Bergþór - jul. 2018, Síða 9
Litli-Bergþór 9
vettvangsferð niður að strönd og fengum verkefni
þar sem hvert okkar átti að finna ákveðna hluti
og búa síðan til eitthvað úr efniviðnum saman.
Samvinnan gekk mjög vel, enda frábært starfsfólk
í leikskólanum og samstillt.
Fréttamaður frá bæjarblaði í Trelleborg fylgdi
okkur og tók viðtöl við okkur.
Okkur leist mjög vel á leikskólann. Það sem
stóð upp úr var hversu mikið pláss börnin höfðu
til að leika sér. Í lok dagsins fengum við að koma
í herbergi sem heitir ,,skattekystan“ og þar er
alls konar efniviður geymdur fyrir börnin til
að leika sér með og skapa úr. Við vorum settar
í hópa og látnar búa til mandölu*. Okkur fannst
þetta skemmtilegt verkefni og gaman að sjá hve
fjölbreytileg útkoman var. Í leikskólanum er
núna verið að vinna með þemað bærinn okkar og
samfélagið. Börnin fara í vettvangsferðir niður í
bæ og skoða sögulegar byggingar og fá fræðslu
um þær. Þau koma síðan í leikskólann og búa til
það sem þau hafa séð.
Að lokinni heimsókninni í skólann bauð Alma
okkur heim til sín í súpu. Við færðum báðum
leikskólunum bókina Litla lundapysjan eftir
Hilmi Högnason, á þeirra tungumáli. Lundabrúða
fylgdi með bókunum. Auk þess fengu kennararnir
íslenskt lakkrískonfekt til að smakka. Við keyptum
einnig íslenskt sælgæti, harðfisk og íslenskt smjör
fyrir Ölmu, sem var búin að standa í heilmikilli
vinnu við undirbúning. Auk þess fékk hún eina
Ruglu, listaverk frá Dröfn sem býr þær til sjálf,
og hún var alsæl með þetta allt saman. Það má því
segja að við höfum komið heim fullar af eldmóði
og fróðleik um það sem hægt er að gera með
okkar börnum og bæta í það góða starf sem unnið
er í Álfaborg.
Leikskólastjórinn í Svíþjóð talaði um að koma
jafnvel í heimsókn til okkar. Hver veit nema við
séum búin að finna okkar vinaskóla í Svíþjóð
og getum unnið frekar að nánu samstarfi á milli
leikskólanna?
Regína Rósa Harðardóttir,
leikskólastjóri Álfaborgar
* Mandölur (orðið mandala kemur úr Sanskrít) eru
hringlaga form, sem koma úr asískum trúarbrögðum eins
og Hindúisma og Búddisma og tákna alheiminn. Í miðju
er oft ferningur, eða „höll“ með fjórum dyrum, sem liggja
til hinna fjögurra horna heimsins og í kring um miðjuna
eru svo hringlaga form, sem hafa andlega og trúarlega
merkingu.
Fréttakonan mætt á svæðið í Trelleborg þaðan sem
hún fylgdi okkur niður að strönd í samvinnuverkefni.
Við ferðuðumst mikið með
lestum á milli landa og staða.
Frá vinstri: Dinna, Guðbjörg, Dröfn,
Lovísa, Regína, Sigga, Ellisif og Magga.