Litli Bergþór - jul 2018, Qupperneq 20
20 Litli-Bergþór
Við erum núna að klára annan
veturinn okkar í bráða birgða-
húsnæði í grunnskólanum og vil
ég byrja á því að þakka starfsfólki
leikskólans Álfaborgar fyrir þraut-
seigju og mikla útsjónarsemi við
að láta allt ganga upp eins og best
verður á kosið.
Einnig fær starfsfólk grunnskólans,
og þá sérstaklega nágrannar okkar
á yngsta stigi, bestu þakkir fyrir
sambýlið, sem gengur mjög vel,
þrátt fyrir að þrengt hafi verið að
þeim.
Ekki má gleyma börnunum sem gera daginn
betri með gleði, brosi og kátínu. Það má með sanni
segja að allir hafi gert sitt besta og gott betur.
Nú er verið að hanna nýjan leikskóla og þegar
hann verður kominn í gagnið, má segja að brotið
hafi verið blað í sögu Bláskógabyggðar, með því
að skólinn kemst þá í varanlegt húsnæði. Það má
þó ekki halla á gamla leikskólann sem á hug og
hjörtu margra hér í samfélaginu. Það eru margir
sem sakna hans og því er mikilvægt að geyma
sögu hans vel.
Það eru spennandi tímar framundan og ef
fólksfjölgunin heldur áfram með sama hætti og
verið hefur, þá verður leikskólinn vel nýttur.
Í nýja leikskólanum er gert er ráð fyrir 60
börnum á aldrinum eins til sex ára og nú þegar
eru 38 börn í leikskólanum og í fyrsta sinn í sögu
hans er biðlisti. Nágrannar okkar í leikskólanum
Undralandi á Flúðum hafa verið okkur afar
hjálplegir og tekið inn börn sem ekki hafa komist
að hjá okkur og færum við þeim okkar allra bestu
þakkir fyrir. Það er gott að eiga svona góða að.
Allt er hægt með góðri samvinnu og jákvæðni.
Ég er nú á förum frá Bláskógabyggð
og held aftur á heimaslóðir
mínar í Reykjanesbæ. Ég vil nota
tækifærið og þakka kærlega fyrir
alla þá reynslu sem ég hef fengið
hér sem leikskólastjóri. Það hefur
verið einstaklega ánægjulegt að
fá að taka þátt í hönnun nýrrar
leikskólabyggingar og það er mikils
virði hversu vel var að þessu staðið.
Það má segja að þetta hafi verið
samfélagsverkefni þar sem allir
fengu á einhvern hátt að taka þátt.
Þegar byrjað var að teikna
leikskólann var settur upp hugmyndakassi fyrir
utan skrifstofuna hjá mér og öllum, bæði börnum
og foreldrum, gefinn kostur á að koma með
hugmyndir. Auk þess fengu foreldrar tækifæri
til að koma að verkinu þegar lengra var liðið og
koma með sínar athugasemdir ef einhverjar voru.
Ég kynnti þetta fyrir grunnskólabörnunum og
það voru skemmtilegar spurningar sem komu í
kjölfarið. Ég var spurð hversu mörg börn yrðu í
þessum leikskóla og hvort það væri til nægilega
mikið húsnæði fyrir öll þessi börn. Það er
greinilegt að börnin ykkar eru vel með á nótunum
hvað varðar samfélagið og það komu alveg
frábærar hugmyndir frá þeim.
Ég set með nokkrar myndir af hugmyndum
barna ykkar (sjá næstu síðu) og vona að þið
hafið gaman af. Ég vil að lokum þakka ykkur,
kæru sveitungar, fyrir samveruna og ykkur, kæru
foreldrar, fyrir samstarfið í gegnum árin og óska
ykkur velfarnaðar og heilla í framtíðinni.
Með vinsemd og virðingu,
Regína Rósa Harðardóttir,
leikskólastjóri Álfaborgar.
Fréttir frá Álfaborg
Regína Rósa, fráfarandi leikskólastjóri
Börnin úr Krummaklettum við leik í íþróttahúsinu.
Frá vinstri: Torfi Guðjón, Laufey Sól, Unnur, Nökkvi Steinn, Ásgerður,
Þórður Óðinn, Elva Sofia, Emelía Ísold, Greipur Guðni, Aðalbjörg,
Guðbjörg, Sigurrós, Bergur Páll.
Lambadalsbörnin á bekknum fyrir utan Aratungu.
Frá vinstri: Þorleifur Máni, Áki Hlynur, Alexander Þór, Hallgrímur Valur,
Baltasar Þór, Jan Mikael.