Litli Bergþór - jul. 2018, Side 24
En það þurfti að ferma og fólki fannst ómögulegt
að hafa engan kór. Var það þá að nokkrar mömmur
og gamlir kórfélagar hóuðu saman fólki til að
syngja við fermingu vorið 1989. Sr. Guðmundur
Óli var á þeim tíma búinn að ráða sem organista
ungan mann, Hilmar Örn Agnarsson, sem þá var
enn við nám í Þýskalandi. Fékk Hilmar Jónínu G.
Thordarson, sem starfaði við aðventistakirkjuna
á Selfossi, til að stjórna kórnum. Var hún með
kórinn í tvo vetur og síðan stjórnaði annar ungur
organisti, Örn Falkner kórnum í einn vetur, árið
1990-1991, þar til Hilmar Örn kom til starfa
haustið 1991.
Þá hófst enn eitt blómatímabil í kórstarfi og
tónlistarlífi í Tungunum. Hilmar starfaði í 17
ár sem organisti í Skálholti og kórstjóri, eða til
2008. Stjórnaði hann þar Skálholtskórnum, en
einnig Barna- og kammerkór Biskupstungna,
Kammerkór Suðurlands, Kór Menntaskólans að
Laugarvatni og var auk þess boðinn og búinn
til að aðstoða þar sem þess var þörf, t.d. þegar
vantaði undirleikara eða æfa þurfti söng- eða
leikhóp. Verður tónlistarstarfi hans gerð skil síðar
í þessu blaði.
24 Litli-Bergþór
Réttir 1969. Þorsteinn á Vatnsleysu finnur tóninn. Frá vinstri fremst Húnbogi á Hjálmsstöðum, ofar Magnús Erlendsson á Vatnsleysu, Kristján Guð-
mundsson Reykjavík, Erlendur í Dalsmynni (bak við Þorstein), Þorsteinn á Vatnsleysu, óþekktur, Kormákur frá Hvítárbakka, óþekktir og Ingvar
á Hvítárbakka.
beðinn um að syngja fyrir Margréti Þórhildi
Danadrottningu, forseta og biskup og aðra preláta
í Skálholti í júlí 1973, en skipuleggjendur höfðu
gleymt að útvega organista. Kórmeðlimir voru
spurðir hvort einhver í kórnum treysti sér til að
spila undir og lét Margrét tilleiðast, en þurfti að
fá lánuð gleraugu. Einu gleraugun sem pössuðu í
styrk voru gleraugun hans Ingólfs á Iðu, sem var
með stærri mönnum, en Margrét smávaxin. Þurfti
hún því að halla höfðinu aftur til að þau dyttu
ekki af henni meðan hún spilaði. Þótti þetta hin
spaugilegasta uppákoma, en allt fór það vel og
drottning tók sérstaklega í höndina á henni eftir
athöfnina til að þakka fyrir undirleikinn.
Á þessum tíma var einnig stofnaður blandaður
Ungmennafélagskór, sem starfaði í tvö ár
undir stjórn Lofts S. Loftssonar og söng við
nokkrar samkomur. Var Sigurður á Heiði einnig
frumkvöðull að stofnun þess kórs.
Vatnsleysukarlarnir voru síðan fengnir til að
syngja við ýmsar samkomur, oft í tengslum
við félagsmálastörf Sigurðar og þeirra Vatns-
leysufrænda. Var handhægt að nota söngkraftana
af hlaðinu og sungu þeir bræðurnir Sigurður og
Einar Geir Þorsteinssynir og Magnús og Sigurður
Erlendssynir í kvartett, sem söng á ýmsum
samkomum, t.d. í Aratungu og á Geysi. Einnig
söng töfaldur kvartett, sem gat verið 5-8 karlar,
við ýmis tækifæri. Voru þeir Sigurður og Bragi
Þorsteinssynir, Sigurður Erlendsson og bræðurnir
Kristinn í Austurhlíð og Ingvar frá Hvítárbakka
og fleiri í þeim hóp.
Eftir að starf gamla Skálholtskórsins lagðist
niður árið 1988 var enginn kór við Skálholtskirkju.