Litli Bergþór - Jul 2018, Page 38
38 Litli-Bergþór
Klúbburinn var stofnaður árið 1984 og er því 34
ára um þessar mundir. Hann hefur alla tíð verið
mjög virkur og lagt margt gott til samfélagsins.
Helstu verkefni klúbbsins eru, meðal annars,
gróðursetning í afmarkaðan uppgræðslureit á
afréttinum og tilfallandi fjáraflanir. Í þessum
fjáröflunum hafa félagar tekið að sér hin ýmsu
verkefni fyrir sveitarfélagið og einstaklinga, má
þar nefna hreinsun meðfram þjóðvegum sem
vegagerðin hefur styrkt, blóðsykur mælingar fyrir
sveitunga, en þær voru nú framkvæmdar þann 25.
nóvember síðastliðinn og var þátttaka mjög góð.
Félagið hefur í fjölda ára staðið að útgáfu
símaskrár fyrir svæðið og síðast, en ekki síst
verður að nefna villimannakvöldið, sem ávallt er
haldið á Þorraþræl. Þar koma saman 150 – 200
karlar og haga sér eins og sannkallaðir villimenn,
eta hrossakjöt, syngja og gleðjast saman. Þessi
skemmtun hefur fest sig rækilega í sessi og er
kjölfestan í fjáröflun klúbbsins.
Félagar í klúbbnum eru núna 34 eftir að fjórir
nýir félagar voru teknir inn í klúbbinn í vetur.
Fundað er tvisvar í mánuði og lögð rík áhersla á
innra starfið, hafa ánægju af því að koma saman og
kynnast samfélaginu með heimsóknum í fyrirtæki
og stofnanir annan hvern fund. Við erum duglegir
að sækja samkomur hjá öðrum klúbbum og
reynum að lifa og starfa eftir máltækinu „maður
er manns gaman”.
Við höfum ávallt styrkt Alþjóða hjálparsjóð
Lionshreifingarinnar og „Sjóðinn góða“ í Ár-
nessýslu, sem leggur ýmsum góðum málum
lið í sýslunni. Einnig hefur klúbburinn stutt við
starfsemi Heilsugæslunnar í Laugarási, Grunn-
skóla Bláskógabyggðar, Aratungu, Íþróttamið-
stöðvarinnar í Reykholti og Leikskólans Álfa-
borgar og hlúir gjarnan að góðum verkefnum í
nærsamfélaginu.
Bæði haust og vor leggjum við land undir fót og
eru þá farnar dagsferðir, annars vegar með mökum
og hinsvegar án. Þetta eru mjög skemmtilegar
ferðir hvor á sinn hátt.
Vetrarstarfið að þessu sinni hófst með ákaflega
skemmtilegri ferð í Ölfusið s.l. haust, þar sem
Einar Gíslason, sveitungi okkar, búsettur í
Ölfusinu, tók á móti okkur og leiddi hópinn um
Ölfus og Þorlákshöfn. Skoðuð voru fyrirtæki og
stofnanir með traustri leiðsögn Einars, sem reyndi
af öllum mætti að sýna okkur fram á að Ölfusið
væri hið merkilegasta sveitarfélag, ekki síður en
Bláskógabyggð. Einn gestgjafinn okkar í ferðinni,
gamall sjóarajaxl, kvartaði sáran yfir skilningsleysi
bæjarstjórnar á útgerðar- og hafnarmálum í
Þorlákshöfn. Sagðist hann mikið frekar myndu
treysta góðum og gildum bændum úr Tungunum
til að fara með þau mál heldur en „krökkunum“í
bæjarstjórn. Niðurstaða samtals okkar varð
eitthvað á þá leið að við beittum okkur fyrir því
að skaffa þeim góðan reynslubolta úr Tungunum
í nýja hafnarstjórn í vor og í staðinn fengju þeir
fulltrúa í nýja Fjallskilanefnd Biskupstungna. Nú
kemur í ljós hvort völd Lionsklúbbsins eru eins
mikil og við héldum á þeirri góðu stund þegar
málin voru rædd.
Í vetur höfum við t.d. skoðað glæsilega
hótelbyggingu á Geysi, þar sem systkinin,
Mábil og Sigurður tóku á móti okkur með
konunglegri veislu og sýndu okkur metnaðarfulla
uppbyggingu á 77 herbergja glæsihóteli ásamt
stórum veislusölum. Sannarlega stórbrotin
framkvæmd sem á eftir að lyfta ferðaþjónustunni í
sveitarfélaginu á hærra plan. Félagsmenn í Dynk,
Lionsklúbburinn Geysir
í Biskupstungum
Hákon, Svavar, Þorsteinn og Bjarni á hestabúgarðinum Grænhóli í Ölfusi.
Heimsókn vara umdæmisstjóra og inntaka nýs félaga. Sveinn formað-
ur, Örn meðmælandi, Sigurður Jónsson, nýr félagi ásamt Geirþrúði.