Litli Bergþór - jul. 2018, Síða 48
48 Litli-Bergþór
Geirþrúður Sighvatsdóttir:
Skrapp í burtu í hálfa öld
Viðtal við Örn Erlendsson og
Gígju Friðgeirsdóttur í Lindatungu
Það er í blíðviðri á pálmasunnudag þegar ég
banka uppá hjá þeim hjónum Erni Erlendssyni
og Gígju Friðgeirsdóttur í Lindatungu, til að
heyra sögu þeirra. Lindatungu er skipt út úr
landi Dalsmynnis hér í Tungunum, og þeir sem
muna eftir honum Linda heitnum í Dalsmynni,
Erlendi Gíslasyni, föður Arnar, geta getið sér
þess til hvernig nafnið á bústaðnum er til komið,
- þarna í tungunni milli lindanna, í landi Linda
í Dalsmynni. - Bústaðinn ber hátt og þaðan
er fagurt útsýni yfir Suðurlandsundirlendið.
Andrúmsloftið er notalegt og í hugann koma
góðar minningar um heimsókn okkar krakkanna í
eldhúsið í Dalsmynni á Hlíðaréttadaginn í gamla
daga, eða sem unglingur á leið á fjall í fyrsta sinn,
með Linda sem leiðsögumann og sagnaþul. Alltaf
glaður, áhugasamur og ræðinn við unglinginn.
Þau hjón taka vel á móti mér og Örn dregur fram
sérrýstaup meðan ég dáist að útsýninu.
Örn, eða Össi, eins og við Hlíðamenn þekkjum
hann, er fæddur í Grindavík en uppalinn og á ættir
sínar hér í Tungunum. „Ég var sveitastrákur til
tvítugs, skrapp þá í burtu í hálfa öld og er kominn
heim aftur. Við byggðum þennan bústað og
fluttum hingað 2009. Er nokkuð meira um þetta
að segja?“, segir Össi og kímir um leið og hann
lyftir sérríglasinu!
Ég er ekki á því að sleppa honum svo vel og
byrja eins og venjulega á því að forvitnast um
ættir hans og uppruna.
Jú, mamma, Guðrún Guðmundsdóttir var ættuð
frá Austurhlíð, fædd á Laug árið 1911. Móðurafi
minn, Guðmundur Hjartarson, var elsti sonur og
erfðaprins hjónanna í Austurhlíð, þeirra Guðrúnar
Magnúsdóttur (kenndum við Bráðræði) og Hjartar
Eyvindssonar.
Hjörtur Eyvindsson langafi minn var fæddur
að Sogni í Ölfusi, ólst upp að hluta til hjá
foreldrum sínum á Syðri-Brú í Grímsnesi og
að hluta til austur í Rangárvallasýslu. Hann
giftist uppeldissystur sinni og bjó með henni á
föðurleifð hennar, en missti hana unga. Giftist
Lindatunga, Mýrarskógur og Úthlíðarbrúnir í baksýn.
Rauðafell og Högnhöfði fjær.
Hjónin í borg ástarinnar, Veróna á Ítalíu, á 54. ára brúðkaupsdaginn
árið 2015.