Fréttablaðið - 05.01.2019, Síða 85
Systir mín,
María Björk Þórsdóttir
Bakka, Öxnadal,
lést 25. desember. Útför hennar
fer fram frá Bakkakirkju þriðjudaginn
8. janúar kl. 13.30.
Ólöf Þórsdóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir,
afi, langafi og langalangafi,
Guðni Ingimundarson
(Guðni á trukknum)
heiðursborgari Garðs,
frá Garðstöðum í Garði,
lést í faðmi fjölskyldunnar
á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
sunnudaginn 16.desember sl.
Jarðarförin fer fram frá Útskálakirkju þriðjudaginn 8. janúar
kl. 15.00. Útsending verður frá athöfninni í Miðgarði,
sal Gerðaskóla.
Sigurjóna Guðnadóttir Ásgeir M. Hjálmarsson
Ingimundur Þórmar Guðnason Drífa Björnsdóttir
Árni Guðnason Hólmfríður I. Magnúsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
i ll i undirbúnings og
framkvæmd útfar r ásamt vinnu við dánarbús-
skiptin. Við þjónum með virðingu o umhyggju
að leiðarljósi og f fa legum metnaði.
Ellert Ingason,
umsjón sálmaskrár
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 9, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242
ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Auðbrekku 1, Kópavogi síðan 1996
ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA
Símar allan sólarhringinn: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is
Komum heim til aðstandenda og ræðum skipulag útfarar ef óskað er.
Margrét Ásta GuðjónsdóttirSverrir EinarssonKristín Ingólfsdóttir
Vegna skertra rekstrarframlaga til kirkjugarða verður
afgreiðslutími skrifstofu Kirkjugarða Reykjavíkur-
prófastsdæma í Gufuneskirkjugarði styttur um
helming frá 2. janúar 2019.
Frá og með nýju ári verður skrifstofa KGRP í Gufunes-
kirkjugarði opin frá klukkan 9 til 13 alla virka daga.
Styttur opnunartími skrif-
stofu í Gufuneskirkjugarði
Elsku hjartans eiginkona mín, dóttir,
móðir okkar, tengdamóðir og amma,
Sólveig Katrín Ólafsdóttir
Blásölum 7, Kópavogi,
sem lést á Landspítalanum, Hringbraut,
mánudaginn 31. desember, verður
jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn
11. janúar kl. 13.00.
Oddbjörn Friðvinsson
Sigrún Jónsdóttir
Ólafur Oddbjörnsson Guðlaug Stella Jónsdóttir
Friðvin Logi Oddbjörnsson
Dagný Björk Oddbjörnsdóttir Albert M. S. Guðmundsson
og barnabörn.
,
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Theodóra Steffensen
(Dídó)
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði
27. desember. Útförin hefur farið fram
í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Björn Finnbjörnsson Sigríður Aradóttir
Finnbjörn Finnbjörnsson Kathia Rovelli
Þorvaldur Finnbjörnsson Anna Árnadóttir
Sigríður Finnbjörnsdóttir Halldór G. Hilmarsson
Gunnar Þór Finnbjörnsson Eyrún Magnúsdóttir
Halldóra Svala Finnbjörnsdóttir
Úlfar Finnbjörnsson Sigrún Hafsteinsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Eiður A. Breiðfjörð
blikksmíðameistari,
Laugateigi 27, Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Grund
þriðjudaginn 1. janúar.
Útför auglýst síðar.
Bertha R. Langedal
Leifur Breiðfjörð Sigríður Jóhannsdóttir
Gunnar Breiðfjörð Elín Aune
5 . J A N Ú A R 2 0 1 9 L A U G A R D A G U R36 T Í M A M Ó T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
TÍMAMÓT
Bergur Þór fyllir fimmta tuginn á morgun en kveðst ekki hafa undirbúið sig andlega fyrir stórafmælið. „Ég hef undir-búið fimmtugsafmælið jafn
vel og dauða minn. Veit að dagurinn
kemur en hef ekki gert frekari ráðstaf-
anir. Við hjónin verðum samanlagt 100
ára á árinu. Það getur vel verið að það
verði partí. Þetta eru bara hugleiðingar
– ekki loforð.“ Hann kveðst alltaf verða
jafn hissa á afmælinu. „Frá því ég man
eftir mér hefur alls konar fólk, kunnugt
sem ókunnugt, skotið upp flugeldum á
afmælisdaginn minn. Hvernig á ég að
fara að því að kolefnisjafna það? Eigin-
lega er ég með endalaust samviskubit
yfir þessu.“
Bergur Þór er nú að leikstýra stórsöng-
leiknum Matthildi í Borgarleikhúsinu
og kveðst verða þar á kafi til 15. mars.
„Verkefni eru eins og afmælisdagar. Ég
geri mér fulla grein fyrir því að það koma
ný þegar önnur klárast,“ svarar hann.
„Þau endast samt lengur en afmælin.“
Hann kveðst eiga mörg uppáhalds-
hlutverk á ferlinum. „Það hljómar
kannski undarlega en mér leið mjög vel
í hlutverki Hitlers í sýningunni Mein
Kampf þótt ég sé enn að kljást við álags-
meiðsli í öxl rúmum tólf árum síðar, eftir
hörkulegar handauppréttingar. Hlut-
verkið í sjónvarpsþáttunum Rétti 3 er
mér líka kært.“
Allar sýningar sem Bergur Þór hefur
leikstýrt eru honum eftirminnilegar,
stórar og smáar með fólki á öllum aldri.
„Sú síðasta, Svartlyng, er mér kannski efst
í huga núna. Ég gæti líka nefnt Hamlet
litla, Mary Poppins, Horn á höfði, eða …
nei, nú fer ég að telja þær allar upp. Ég
hef lært helling af þeim öllum hvort sem
það var í grunnskóla, Stúdentaleikhúsi,
í billjarðstofu bakherbergis pítsastaðar
eða á stærsta leiksviði landsins.“
Hvað um önnur áhugamál en leiklist?
„Ég vildi ég óska að ég væri hjálpar-
sveitarskáti en öll áhugamál mín snúa að
listum og dægurmenningu. Ég á ágætis
plötusafn. Elska til dæmis allt eitísið
sem ég fyrirleit sem unglingur. Ég þyrfti
eiginlega að biðja Boy George afsökunar
sem samtímamaður hans. Bíð bara eftir
tækifærinu.“
Útafliggjandi finnst Bergi Þór best
að slaka á. „Bækur, tónlist og myndlist
örva huga minn of mikið til að ég geti
slakað á. Ég fer alltaf að bæta einhverju
við og sjá efnið fyrir mér á sviði eða
í bíó. Núvitund þekki ég ekki nema í
skíðabrekkum með fjölskyldunni. Það
er besta útivistin.“
Að lokum: Strengdir þú áramótaheit?
„Ég steig ekki á stokk en mig langar
mjög að vera slakari en skítugt sokka-
par á þessu ári. Var líka að hugsa um að
koma mér upp sterkri bullvörn gegn
íslenskri pólitík og pirrandi opinberri
umræðu.“ gun@frettabladid.is
Veit að dagurinn kemur
Bergur Þór Ingólfsson leikari á afmæli á morgun, þrettándanum. Hann kveðst alltaf jafn
hissa á hvað fólk fagnar því með mikilli viðhöfn, flugeldum og látum. En nú er tilefni til.
Bergur Þór er með endalaust samviskubit yfir kolefnissporinu sem afmælinu hans fylgir. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR ÁRNASON