Fréttablaðið


Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 4

Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 4
Afmælisveisla! Fögnum eins árs afmæli nýrra verslana okkar að Fiskislóð og á Akureyri með pomp og prakt. Allskyns tilboð í tilefni dagsins. Líttu inn og fagnaðu með okkur – og gerðu kjarakaup í leiðinni. Opið mánud.–föstud. 8–18, laugard. 10–16 og sunnud. 12–16 H im in n o g h af /S ÍA Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.isTryggvabraut 1–3, Akureyri • Sími 460 3630 Fjórir menn voru sak- felldir í Hæstarétti í gær fyrir brot í rekstri félaga tengdra Frjálsri fjölmiðlun á árunum 2000- 2003. Fangelsisdómar voru í þremur tilvikum þyngdir en sekt- argreiðslur lækkaðar úr 141,6 milljónum króna í 41,3 milljónir. Eyjólfur Sveinsson hlaut þyngsta dóminn, tólf mánaða fang- elsi, þar af níu mánuði skilorðs- bundna, fyrir brot í rekstri fjög- urra fyrirtækja. Auk þess var honum gert að greiða 20,5 milljónir króna í sekt í ríkissjóð og tæplega 3,2 milljónir í málskostnað. Í héraði var Eyjólfur dæmdur í fimmtán mánaða fangelsi, þar af tólf skilorðsbundið, og til greiðslu rúmlega 67 milljóna sektar. Málið er afar umfangsmikið og tengist brotum við rekstur sex fyrirtækja; Fréttablaðsins, Dags- prents, Póstflutninga, Visir.is, Infó skiltagerðar og ÍP prentþjónust- unnar. Utan við Info skiltagerð tengdust þau öll Frjálsri fjöl- miðlun. Eyjólfur var dæmdur fyrir umboðssvik með því að hafa sem daglegur stjórnandi Visir.is yfir- dregið bankareikning um tæpar 24 milljónir króna í heimildar- leysi. Hann var einnig dæmdur fyrir að hafa ekki staðið skil á vörslusköttum; staðgreiðslu opin- berra gjalda og virðisaukaskatti, vegna Fréttablaðsins, Dagsprents, Póstflutninga og Visir.is. Þótti dóminum brot Eyjólfs stór- felld, en þau voru framin í rekstri fjögurra félaga. Brotin hafi verið alvarleg og snúist um verulegar fjárhæðir. Svavar Ásbjörnsson, sem var fjármálastjóri Visir.is, var sak- felldur fyrir umboðssvik með því að hafa yfirdregið reikning félags- ins. Hann hlaut átta mánaða fang- elsisdóm, þar af fimm mánuði skilorðsbundna. Í héraðsdómi var hann dæmdur í sex mánaða skil- orðsbundið fangelsi. Marteinn Kristinn Jónsson, sem var framkvæmastjóri Info skilta- gerðar, var dæmdur í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi og var að auki gert að greiða 12,2 milljónir króna í sekt og 965 þús- und krónur í málskostnað fyrir að standa ekki skil á vörslusköttum. Í héraðsdómi var hann dæmdur í tíu mánaða skilorðsbundið fang- elsi og til að greiða 69 milljóna króna sekt. Ólafur Haukur Magnússon, sem var framkvæmdastjóri ÍP prent- þjónustunnar, var dæmdur í þrjá- tíu daga fangelsi, skilorðsbundið, og var gert að greiða 8,6 milljóna króna sekt og málskostnað upp á 810 þúsund krónur fyrir að standa ekki skil á vörslusköttum. Hann var dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur og til að greiða 5,5 milljóna króna sekt. Upphaflega voru tíu ákærðir í málinu en dómi Héraðsdóms Reykjavíkur var áfrýjað vegna sjö. Hæstiréttur sýknaði eða stað- festi frávísun héraðsdóms vegna þriggja ákærðu, þeirra Sveins Eyjólfssonar, Karls Þórs Árna- sonar og Ómars Geirs Þorgeirs- sonar. Fjórir sakfelldir en sektir lækkaðar Hæstiréttur sakfelldi fjóra menn vegna brota í rekstri fyrirtækja sem tengdust Frjálsri fjölmiðlun. Þrír sýknaðir eða ákærum vísað frá. Sektargreiðslur fjór- menninganna lækkaðar um 100 milljónir frá dómi Héraðsdóms Reykjavíkur. Áfengisdrykkja tíðkast í svokölluðu VIP- rými Laugardalsvallar, sem ætlað er útvöldum gestum, en almennum áhorfendum er óheimilt að drekka áfengi inni á vallarsvæðum þar sem kappleikir fara fram á vegum KSÍ. Gæsluverðir á völlunum hafa meðal annars það verkefni að fylgjast með hvort reglunum sé framfylgt og taka áfengi af fólki sem er með það undir höndum. Lengi hefur verið deilt um hvort heimila eigi sölu áfengis á leikjum, líkt og tíðkast víða erlendis, en KSÍ hefur í áraraðir haldið stíft í þá stefnu að banna áfengisdrykkju, og sölu, með öllu á vallarsvæðum. Ekki síst hefur þetta verið gert í forvarnarskyni til þess að senda ungu kynslóðinni þau skilaboð að áfengisneysla og metnaðarfullt knattspyrnustarf fari ekki saman. Ekki bara kaffi og brauð Lars-Emil Johansen sagði af sér sem fjármálaráð- herra í grænlensku landsstjórn- inni í gær, aðeins mánuði eftir að hann tók við embættinu. Johansen, sem er fyrrverandi forsætisráðherra, er einnig annar tveggja þingmanna Grænlands á danska þjóðþinginu. Landsþingið í Grænlandi komst að þeirri niðurstöðu að hann mætti ekki gegna báðum embættunum í senn, og því sagði Johansen af sér. Í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér ítrekaði hann þó fyrri yfirlýsingar um að hann væri fullfær um að sinna báðum embættunum. Þingið ósátt Rússneski kaup- sýslumaðurinn Andrei Lugovoi, sem ríkissak- sóknari Bretlands telur sekan um morðið á Alexander Litvinenko, segist nú hafa sannanir fyrir því að breska leyniþjónustan hafi átt hlut að morðinu. Hann segir að Litvinenko hafi verið njósnari fyrir bresku leyniþjónustuna MI6, og sömu- leiðis hafi rússneski auðkýfingur- inn Boris Berezovsky, sem er í útlegð á Bretlandi, einnig starfað fyrir MI6. Þá fullyrðir Lugovoi að breska leyniþjónustan hafi reynt að fá sig til að vinna fyrir sig. Segir Breta eiga hlut að máli Örlygur Hnefill Jónsson Samfylkingunni tók í gær við formennsku í stjórn Byggðastofnunar af Kristni H. Gunnarssyni, þingflokksformanni Frjálslynda flokksins. Örlygur sagðist í samtali við Fréttablaðið hlakka til að takast á við mörg krefjandi verkefni sem stjórn stofnunarinnar hefur inni á borði sínu. Örlygur tók við stjórnarfor- mennskunni á aðalfundi stofnunarinnar sem fram fór í Rúgbrauðsgerðinni. Aðrir í nýrri stjórn stofnunar- innar eru Drífa Hjartardóttir, Einar Oddur Kristjánsson, Anna K. Gunnarsdóttir, Herdís Sæmundardóttir, Bjarni Jónsson og Guðjón Guðmundsson, sem jafnframt er varaformaður stjórnar. Örlygur for- maður stjórnar Þórunn Sveinbjarnar- dóttir umhverfisráðherra hefur ráðið Önnu Kristínu Ólafsdóttur sem aðstoðar- konu en Anna Kristín var áður aðstoðar- kona fyrrver- andi borgar- stjóra, Ingibjargar Sól- rúnar Gísladótt- ur. Róbert Marshall, fyrsti varaþingmaður Samfylkingar- innar í Suður- kjördæmi, verður aðstoðar- maður Kristj- áns L. Möller samgönguráð- herra. Kristján og Róbert handsöluðu ráðahaginn í bíl ráðherra á Hellisheiði á miðvikudag þar sem þeir voru á leið á fund Samfylkingarinnar í Inghól á Selfossi. Anna Kristín og Róbert til aðstoðar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.