Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 16

Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 16
nær og fjær „ORÐRÉTT“ Nemendur í meistaranámi við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands kynna í dag lokaverkefni sín á opnum fyrirlestri í Eir- bergi. Ída Arnardóttir er ein þeirra. Hún hefur rann- sakað ráf meðal aldraðra á hjúkrunar- og vistheimil- um. „Ég hef alltaf haft mikinn áhuga á að vinna með heilabiluðum sem eru með hegðunartruflandi ein- kenni eins og ráf. Þetta er hópur sem heilbrigðisstarfsfólki finnst erfitt að sinna og það vantar tví- mælalaust fleiri úrræði fyrir þetta fólk,“ segir Ída, sem er forstöðu- maður á sambýli fyrir aldraða með heilabilun í Kópavogi. Aldraðir með skerta vitræna getu vegna heilabilunar eiga það til að ráfa og stundum verður ráfið að vandamáli, til dæmis þegar við- komandi ráfar út og týnist eða fer sér að voða. Í lokaverkefni sínu rannsakaði Ída, eðli, einkenni og algengi ráfs og áhrif vitrænnar getu á ráf. „Ráf hefur ekki verið rannsakað áður hér á landi. Í svokölluðu RAI- mati sem allir vistmenn á hjúkrunar- og öldrunarheimilum gangast undir er spurt hvort viðkomandi ráfi. Því er svarað jákvætt eða neikvætt en niðurstöðurnar hafa ekki verið rannsakaðar frekar. Við rannsókn mína notaði ég þessar upplýsingar, auk bakgrunnsspurninga og ráf- kvarða Algase sem er amerískur mælikvarði sem ekki hefur verið notaður áður í Evrópu,“ segir Ída en með ráfkvarðanum sem Ída þýddi má greina ráfið í fimm teg- undir: gönguáráttu, rýmisskyns- stol, athyglisbreytingu, strok- hneigð, eltingu og heildarráf. „Ég vona að þessi kvarði verði notaður í framtíðinni því þegar ráfið hefur verið greint er auðveld- ara að meðhöndla það,“ segir Ída og útskýrir að ólíkar meðferðir nýtist við ólíkum tegundum ráfs. „Meðferð við ráfi er af ýmsum toga og alls kyns óhefðbundnar aðferðir eins og nudd eða ilmolíu- meðferðir hafa reynst vel. Margir eiga það til að ráfa upp frá matar- borðinu og nærast því ekki sem skyldi. Ég hef prófað að spila tón- list við matarborðið en það fær fólk til þess að sitja lengur,“ segir Ída og bendir á að mestu skipti að viðhalda jafnvægi milli hvíldar og virkni svo einstaklingurinn ofreyni sig ekki. Í rannsókn Ídu kemur fram að algengi ráfs er á bilinu 18,2 pró- sent til 29,7 prósent. Ekki er fylgni milli ráfs og aldurs eða kyns en hins vegar er skýr fylgni milli vit- rænnar getu og ráfs. Þeir sem eru með mikla vitræna skerðingu ráfa meira. Ída segir að þótt ráf geti vissu- lega verið vandamál hafi það einnig jákvæðar hliðar. „Hreyfingin er holl en það þarf að fylgjast vel með þeim sem ráfa og tryggja að umhverfi þeirra sé öruggt,“ segir Ída. Ída kynnir niðurstöður rann- sóknar sinnar í dag ásamt öðrum meistaranemum í hjúkrunarfræði. Fyrirlestrarnir fara fram í Eir- bergi og eru öllum opnir. Mikilvægt að greina ráf aldraðra Reykingar afar óaðlaðandi Þegar Marta Guðmundsdóttir greindist með brjóstakrabba- mein í október 2005 einsetti hún sér að ná fullum bata og hét því að ganga yfir Grænlandsjökul að veikindunum afstöðnum. Hún lagði af stað yfir jökulinn 23. maí síðastliðinn og hefur nú lokið við um þriðjung leiðarinnar. Ferðin er farin á vegum Krabbameinsfélags Íslands með stuðningi Deloitte og 66°N og er markmiðið tvíþætt. Annars vegar að safna fé til styrktar krabba- meinsfélaginu og hins vegar að vekja konur til umhugsunar um mikilvægi þess að fara reglulega í skoðun. Meðan á göngunni stendur eru seld póstkort til styrktar Krabbameinsfélaginu sem Marta mun undirrita og póst- leggja í Tassilaq þegar hún kemur niður af jöklinum. Gústaf Gústafsson, markaðs- og fjáröflunarstjóri Krabba- meinsfélagsins, segir að söfunin gangi vel. „Við erum ákaflega stolt af Mörtu enda er hún frá- bær fyrirmynd. Við hvetjum fólk til þess að setja sér markmið þegar það greinist með krabba- mein og viljum vekja athygli á því að fólk á góða möguleika á að ná fullum bata,“ segir Gústaf. Gönguleiðin er um 600 kíló- metra löng og tekur um þrjár vikur. Hægt er að fylgjast með ferð Mörtu á síðunni: www. martag.blog.is Stuttur í spuna Naflaskoðun fjöl- miðlamanns Ætlar á fullu í lögmennskuna
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.