Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 22
[Hlutabréf]
Flaga tapaði 605 þúsund Banda-
ríkjadölum eftir skatta á fyrsta
ársfjórðungi 2007. Það samsvarar
um 37,4 milljónum íslenskra króna.
Tapið á sama ársfjórðungi í fyrra
nam 877 þúsund Bandaríkjadöl-
um. EBITDA-framlegð, rekstrar-
hagnaður fyrir afskriftir, var nei-
kvæður um 202 þúsund Banda-
ríkjadali. Tekjur ársins námu 7,2
milljónum Bandaríkjadala sem
var samdráttur upp á 2,4 prósent.
Í tilkynningu frá Flögu segir að
endurskipulagningu á starfsemi
Emblu, svefnrannsóknarverk-
efni félagsins, sé nú farsællega
lokið. Verkefnið fram undan sé að
styðja við vöxt félagsins og afger-
andi skref hafi verið tekin í þá átt.
Yfirstjórn Flögu sé bjartsýn á að
markmiðum þessa árs verði náð.
Líkur á langtímarekstrarárangri
félagsins séu góðar.
Flaga tapar
37 milljónum
Peningaskápurinn...
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
37
74
8
06
/0
7
Deuter Aircontact
50+10 SL
Dömupoki í Aircontactlínunni frá Deuter.
Sérhannaður fyrir konur.
Verð 21.990 kr.
Deuter Futura 32 AC
Futura línan, sú mest selda í Evrópu!
Dagpoki ársins í Outdoor tímaritinu 2004 og 2006.
Regnvörn, Aircomfort burðarkerfi, 32 lítrar.
Verð 10.990 kr.
Futura 22 l.: 8.990 kr.
Futura 28 l.: 8.990 kr.
Futura 38 l.: 12.990 kr.
Millet Hiker 38 l
Frábær dagpoki.
Innbyggð regnvörn.
Verð 12.990 kr.
Hiker 28 l verð: 10.990 kr.
Hiker 22 l verð: 9.990 kr.
.
Deuter - bakpokaframleiðandi árs
Aircontact pokarnir frá Deuter
eru með stillanlegu baki,
óviðjafnanlegu loftflæði,
og innbyggðum regnpoka.
Frábærir í lengri ferðir.
„Fyrirætlanir um að taka félagið
úr Kauphöll á grundvelli þessarar
verðlagningar hugnast ekki
mínum umbjóðendum,“ segir Hró-
bjartur Jónatansson hrl. sem er
talsmaður Stillu. Baráttan um yfir-
ráð yfir Vinnslustöðinni tók á sig
nýja mynd í gær þegar bræðurnir
Guðmundur og Hjálmar Kristjáns-
synir frá Rifi á Snæfellsnesi
greindu frá því að þeir myndu í
nafni Stillu leggja fram 85 pró-
senta hærra gagntilboð í allt hluta-
fé Vinnslustöðvarinnar en yfir-
tökutilboð Eyjamanna ehf. hljóðar
upp á. Stilla ætlar að greiða 8,5
krónur á hlut en Eyjamenn, sem
framkvæmdastjórinn Sigurgeir
Brynjar Kristgeirsson og ráðandi
hluthafar úr Eyjum fara fyrir,
bjóða hins vegar 4,6 krónur.
Stilla og tengdir aðilar fara með
ríflega fjórðungshlut í Vinnslu-
stöðinni en þó er sennilegt að raun-
verulegur hlutur þeirra sé yfir 32
prósentum. Eyjamenn eiga rúman
helming hlutafjár og hafa auk þess
stuðning annarra hluthafa.
Forsvarsmenn Stilllu ætla ekki
að breyta áherslum í starfsemi fé-
lagsins ef yfirtakan gengur eftir.
„Það eru áfram kjöraðstæður í
Eyjum fyrir svona rekstur,“ segir
Hróbjartur. Ólíkt áformum Eyja-
manna ætlar Stilla að reyna að
halda félaginu skráðu í Kauphöll-
inni og stuðla að dreifðari eignar-
aðild en nú er með því að bjóða
öðrum fjárfestum bréf til kaups.
Umtalsverður hluti kaup-
verðs Stillu verður fjármagnað-
ur með lánsfé en Landsbankinn
ábyrgist greiðslur. Miðað við til-
boð félagsins er Vinnslustöðin
metin á 13,3 milljarða króna, sem
er 6,1 milljarði króna yfir til-
boði ráðandi hluthafa. Hróbjart-
ur segir að menn reikni ekki með
því fyrirfram að 70 prósent hlut-
hafa selji en útiloki það ekki
heldur. „Menn vænta þess að
þeir hluthafar sem vilja selja taki
ákvörðun um það á viðskiptalegum
forsendum.“
Forvígismenn Stillu telja að til-
boð Eyjamanna sé fjarri því að
endurspegla raunverulegt virði
Vinnslustöðvarinnar þegar tekið
er tillit til afkomu og eigna eins og
aflaheimilda. Eyjamenn eru á önd-
verðum meiði og benda á að sjóðs-
streymislíkan tveggja banka gefi
að verðmatsgengi Vinnslustöðvar-
innar sé 4,7-5,0 krónur á hlut
miðað við óbreyttan rekstur til
framtíðar. Talið er að virði á afla-
heimildum félagsins fari yfir
tuttugu milljarða króna ef þær
væru leystar upp.
„Við munum hittast og fara vel
yfir málin en ég reikna ekki með
að við gerum neitt. Það er öllum
frjálst að bjóða,“ segir Sigurgeir
Brynjar eða Binni í Vinnslustöð-
inni. Hugmyndin með yfirtökutil-
boði Eyjamanna var sú að eiga fé-
lagið og reka það. Hann reiknar
með því að Eyjamenn ehf. eigi
áfram hlutinn, en býst ekki við því
að félagið hækki tilboð sitt til ann-
arra hluthafa Vinnslustöðvarinn-
ar. „Það er ekki bæði hægt að eiga
kökuna og éta hana.“
Bræðurnir frá Rifi bjóða sex milljörðum króna meira í Vinnslustöðina en sem nemur tilboði ráðandi hlut-
hafa. Binni í Vinnslustöðinni reiknar hvorki með að Eyjamenn taki tilboði Stillu né hækki sitt eigið boð.