Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 24

Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 24
greinar@frettabladid.is Harkaleg átök eru framundan um Vinnslustöðina, einn stærsta ein- staka vinnuveitanda í Vestmanna- eyjum. Guðmundur og Hjálmar Kristjánssynir í Stillu ehf. hafa lagt fram yfirtökutilboð í fyrirtækið. Eyja- menn gera sér vel grein fyrir alvöru málsins, enda á Vinnslustöðin umtals- verðar aflaheimildir og hverfi þær úr bænum verður það gríðarleg blóðtaka fyrir samfélagið. Benedikt Jóhannsson, ritstjóri Viðskiptablaðs- ins skrifaði nýlega um hagræðingu í íslenskum sjávarútvegi. Niðurstaða hans var að staðan í sjávarútveginum væri eðlileg hagræðing sem kæmi þjóðarbúinu mjög vel. Íbúar þeirra byggðarlaga sem verða að gjalda fyrir aukna hagsæld þjóðarinnar ættu bágt, en fólk yrði bara að hafa í huga að hagræðingarferlið myndi ekki vara að eilífu. Þetta er ekki mikil huggun harmi gegn fyrir íbúa sjávarbyggða. Heimamenn ætla sér að berjast en ljóst er að slagurinn verður þeim dýrkeyptur. Þurfi þeir að kaupa upp 50% hlutabréfa Vinnslustöðvarinnar á meira en 8,5 á hlut, mun það kosta þá að lágmarki 6,5 milljarða króna. Og þeir peningar eru ekki ókeypis. Þurfi að taka alla þá peninga að láni kostar hvert vaxtaprósent 65 milljónir króna á ári og þá á eftir að borga af lánunum. Takist heima- mönnum að fjármagna þessi kaup má því búast við að þeir muni greiða sér arð úr félaginu sem nemur að lágmarki vaxtagreiðslum og afborg- unum af þessum lánum, og þeir peningar verða ekki notaðir í fjárfestingar í Eyjum. Ljóst er því að óháð því hver vinnur kapp- hlaupið um Vinnslustöðina, á það eftir að verða félaginu dýrt. Og Eyjamönnum öllum. Höfundur er varaþingmaður Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi. Næsta Flateyri? Þegar Tony Blair vann kosn-ingasigur í Bretlandi 1997, birti bandaríska vikuritið Newsweek mynd af Margréti Thatcher á forsíðu undir fyr- irsögninni „Sigur Thatchers“. Það voru orð að sönnu, því að Blair vék lítt frá þeirri stefnu, sem Thatcher hafði markað frá 1979 við heiftarlega andstöðu flokkssystkina Blairs. Hinn nýi forsætisráðherra Verkamanna- flokksins hafði óbeint viðurkennt, að járnfrúin hafði haft rétt fyrir sér. Þegar Samfylkingin gekk til samstarfs við Sjálfstæðisflokkinn eftir kosningarnar 12. maí 2007, gerðist svipað. Fylgt var nær óbreyttri stjórnarstefnu. Þetta var sigur Davíðs Oddssonar. Eftir hörð átök fyrri ára viðurkenndi hinn nýi samstarfsflokkur óbeint, að Davíð hafði haft rétt fyrir sér. Við erum fljót að gleyma. Þegar Davíð Oddsson myndaði fyrstu ríkisstjórn sína 30. apríl 1991, þótti eðlilegt, að ríkið ræki atvinnufyrirtæki í samkeppni við einkaaðila. Enn sjálfsagðara var talið að ríkið styrkti þau fyrirtæki, sem gætu ekki staðið á eigin fótum. Skattar á fyrir- tæki voru þungir, 45%, þótt fæst greiddu þá vegna tapreksturs. Skattar á einstaklinga voru einn- ig þungir. Verðbólga hafði um langt skeið verið miklu meiri en í grannríkjunum og þrálátur halla- rekstur á ríkissjóði. Stjórnmála- menn og umboðsmenn þeirra skömmtuðu mestallt tiltækt fjár- magn, og þá skiptu flokksskír- teini ósjaldan meira máli en hæfileikar til nýsköpunar. Davíð lagði til atlögu við þennan Golíat. Hann tæmdi hjá sér biðstofuna með því að leggja niður opinbera sjóði. Hætt var að nota almannafé til að halda uppi taprekstri fyrirtækja. Með að- haldi í peningamálum og ríkis- fjármálum hjaðnaði verðbólga niður í hið sama og í grannlönd- unum (en þjóðarsáttin svonefnda frá 1990 snerist í raun aðeins um tímabundna verðstöðvun). Halla- rekstri ríkisins var snúið í afgang, sem nýttur var til að greiða upp skuldir. Skattar á fyrirtæki voru lækkaðir í 18%, en skatttekjurn- ar jukust samt stórkostlega. Þær runnu til stóraukinnar velferð- araðstoðar. Á Íslandi eru barna- bætur til láglaunafólks og líf- eyristekjur að meðaltali hæst- ar á Norðurlöndum. Fátækt er hér samkvæmt alþjóðlegum mæl- ingum ein hin minnsta í heimi og tekjuskipting tiltölulega jöfn. Eignaskattur, sem bitnað hafði á öldruðu fólki með lágar tekjur og talsverðar eignir og þess vegna verið kallaður ekkna- skattur, var felldur niður. Erfða- fjárskattur var stórlækkaður. Tekjuskatturinn, sem ríkið inn- heimtir af einstaklingum, lækk- aði úr 31% í 23% á tíu árum. Þó hafa skatttekjur ríkisins af þess- um skatti stóraukist. Áður hafði ríkissjóður haft litlar sem engar tekjur af fjármagnseigendum, enda hafði arður verið lítill í fyrirtækjum, húsaleigutekjur lítt komið fram í skattframtölum og vaxtatekjur verið skattfrjálsar. Nú varð til nýr fjármagnstekju- skattur, sem reynst hefur ríkinu drjúg tekjulind. Hinar stórfelldu skattalækkanir frá 1991 hafa skilað stórkostlegum árangri. Einkavæðingin skilaði ekki síður árangri. Fyrirtæki ríkisins voru seld fyrir mikið fé, röska 100 milljarða króna. Það var eins og þau lifnuðu þá við, sérstak- lega viðskiptabankarnir. Önnur tegund einkavæðingar fólst í því, að fjármagn, sem áður var óvirkt, eigendalaust, óskráð, óveðhæft og óframseljanlegt, varð nú virkt. Það var leyst úr læðingi í orðsins fyllstu merkingu. Þetta á bæði við um samvinnufyrir- tæki og fiskistofna, en árin eftir 1990 festist kvótakerfið í sessi og er nú öfundarefni annarra þjóða, sem tapa stórfé á fiskveið- um. Mikið fjármagn hefur safn- ast saman í íslensku lífeyrissjóð- unum, sem eru að fyllast, á sama tíma og lífeyrissjóðir margra grannþjóða eru að tæmast. Hina ævintýralegu útrás síðustu ára má rekja til þess, að hér mynd- aðist feikilegt nýtt fjármagn, um leið og fyrirtækjum var búið hag- stætt umhverfi. Stjórnarsáttmáli Þingvalla- stjórnarinnar nýju ber með sér, að Samfylkingin vill læra af reynsl- unni. Þar er lögð áhersla á að skapa íslensku atvinnulífi sam- keppnishæft umhverfi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, sem forð- um virtist lifa og nærast á and- stöðu við Davíð Oddsson, tekur nú undir þau sjónarmið, sem hann beitti sér fyrir. Áður hafði gamall mótherji Davíðs, Ólafur Ragnar Grímsson, vakið á sér athygli með ötulum stuðningi við íslensku út- rásina. Sinnaskiptum þessara fornu fjandmanna Davíðs ber að fagna. Sumir eru önnum kafnir að strika út af listum, til dæmis Jóhannes í Bónus, eins og alræmt varð í nýliðnum þingkosningum. Aðrir telja betra að bæta við á listum, fjölga frekar samherjum en andstæðingum, sættast, þar sem sættast má. Forsætisráð- herra Þingvallastjórnarinnar, Geir H. Haarde, er bersýnilega í þeim hópi. Hann lyftir merkinu frá Davíð fumlaust. Sigur DavíðsÍ ræðu sinni við setningu Alþingis í gær hrósaði forseti Ís- lands, Ólafur Ragnar Grímsson, frammistöðu fjölmiðla landsins í aðdraganda nýafstaðinna kosninga. Eftir að hafa farið nokkrum orðum um þróttmikla lýðræðishefð hér á landi vék forsetinn að þætti fjölmiðlanna með þessum orðum: „Að auki veitti nú fjölmiðlaflóran öllum flokkum fjöl- þætt tækifæri til að koma boðskap til skila. Hin margradda umræða í sérhverjum miðli er ótvíræð framför frá fyrri árum þegar flokksmálgögnin þrengdu að og umræðuþættir í ljós- vakamiðlum voru fáir.“ Forsetanum eru hér með þökkuð hlý orð. Okkur á Fréttablað- inu þykir hrósið gott og teljum okkur eiga hluta í því. Fyrir áhugamenn um forsetann, fjölmiðla og stjórnmálalífið er athyglisvert að leggjast í örlítinn lestur á milli lína þessa kafla. Sérstaklega þar sem forsetatíðar Ólafs Ragnars mun vafalítið einna helst verða minnst fyrir að hann varð fyrstur forseta lýðveldisins til þess að synja lögum staðfestingar, sem einmitt voru lögð fram til höfuðs frjálsum fjölmiðlum lands- ins. Auðvelt er að gera sér í hugarlund að forsetinn hafi með orðum sínum í ræðustóli Alþingis í gær verið að kinka kolli til vorsins 2004 þegar allt ætlaði um koll að keyra vegna þessara áforma þáverandi ríkisstjórnar. Fjölmiðlalögin sem ríkisstjórnin hafði fengið samþykkt á Alþingi voru ekki annað en illa dulbúinn draumur ákveðinna stjórnmálmanna um að koma á föstum tökum ríkisvaldsins yfir einkareknum fjölmiðlum. Með setningu sérstakra fjölmiðlalaga átti að tryggja að fjöl- miðlarnir gætu sinnt þeirri skyldu sinni gagnvart almenningi að birta ólíkar skoðanir, fjölbreytt sjónarhorn, veita yfirvöldum og sterkum hagsmunaaðilum aðhald og efla lýðræðislega um- ræðu, sem er einmitt það sem fjölmiðlarnir eru sífellt að streða við, án þess að sérstök lög þurfi til. Staðreyndin er sú að íslensk fjölmiðlun er í ágætis lagi. Auð- vitað má þar ýmislegt styrkja og lagfæra eins og í öllum rekstri en það er ekkert sem lagasetning á borð við margboðuð fjöl- miðlalög getur bætt úr um. Fjölbreytni fjölmiðlanna er margfalt meiri en hún var á dögum flokksblaðanna og einkareksturs ríkisins á ljósvaka- markaði. Einkareknir miðlar stóðu til dæmis sína vakt með prýði í umfjöllun um kosningabaráttuna og báru af í sumum tilfellum. Kosningaumfjöllun Stöðvar 2 var til fyrirmyndar og Silfrið hans Egils Helgasonar á sömu stöð langbesti umræðu- þátturinn um pólitíkina. Fjölmiðlalögin náðu ekki fram að ganga sumarið 2004, þökk sé forsetanum. Á hverju þingi síðan þá hafa verið lögð fram samsvarandi lagafrumvörp. Góðu heilli hefur ekkert þeirra verið samþykkt. Orð forsetans á þingi í gær verða vonandi lóð á vogarskálar þess að öll slík áform verði lögð til hliðar. Forsetinn og fjölmiðlarnir

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.