Fréttablaðið - 01.06.2007, Qupperneq 31
Ágústa Backman keypti sér
Lancer sem entist henni í sex
ár. Það sama er ekki hægt að
segja um tískukápuna hennar.
Bestu kaup Ágústu gerði hún,
eða öllu heldur faðir hennar fyrir
hennar hönd, þegar hún var átján
ára. „Ég keypti mér Mitsubishi
Lancer árgerð ´82 og var alls ekki
sátt við hann til að byrja með,“
segir Ágústa. „Hann var brúnn og
það þótti mér ekki flott.“
Endanleg ákvörðun um kaup
bílsins var í höndum föður Ágústu
og niðurstöðinni varð ekki haggað.
Lancerinn var einfaldlega besti
fáanlegi bíllinn miðað við þau fjár-
ráð sem í boði voru, hvað svo sem
Ágústu fannst um litinn.
Bíllinn var hinsvegar fljótur
að sanna sig og gott betur en það.
„Hann var bestur í heimi, alveg
þangað til hann dó fyrir nokkrum
mánuðum greyið,“ segir Ágústa.
„Hann entist í sex ár, þurfti ekkert
að gera við hann, fór með mig og
vinkonur mína út um allt, upp á
fjöll og yfir vötn.“
Þegar bíllinn dó var haldin lík-
vaka og vinkonur Ágústu hittust
og syrgðu bílinn. „Ég á aldrei eftir
að finna bíl sem passar jafn vel við
rauða hárið mitt og freknurnar,“
segi Ágústa.
Ágústa segist vera svo góð
viðskiptakona að hún geri aldrei
slæm kaup, næstum aldrei. Eitt
sinn keypti hún þó kápu og þrátt
fyrir að líta út eins og „tveggja
tonna hvalur“ að eigin sögn lét hún
vinkonu sína sannfæra sig um að
kaupa hana. „Kápan var í tísku og
þess vegna átti hún að vera flott,“
segir Ágústa. „Hún var það samt
ekki og þetta var í síðasta skiptið
sem ég keypti eitthvað bara út af
því að það átti að vera í tísku.“
Til að bæta gráu ofan á svart fór
Ágústa út í kápunni um kvöldið
en fékk svo hressileg ofnæmis-
viðbrögð við efni kápunnar að
hún gat einfaldlega ekki gengið
í henni. Kápan olli Ágústu því
ekki bara andlegum skaða heldur
einnig líkamlegum. Góð kaup það.
Bíll fyrir freknurnar
Fallegar íslenskar
peysur
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Við bjóðum ykkur hjartanlega
velkomin á Blómadaginn
laugardaginn 2. júní
Innbyggt salerni
kr. 24.900
allt settið
Mörkinni 6, Símí 588-5518
Opið virka daga frá kl. 10-18 og laugardaga frá kl. 10-16
Langur
laugardagur
20% afsláttur
af öllum vörum
föstudag og
laugardag
550 5000
AUGLÝSINGASÍMI