Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 34
BLS. 2 | sirkus | 1. JÚNÍ 2007 Heyrst hefur B arnabörnin eru orðin tiltölu-lega mörg á skömmum tíma. Á síðustu níu mánuðum eignað- ist ég þrjú barnabörn og svo átti ég tvö fyrir svo þau eru orðin fimm í heildina auk þess sem ég er einnig afi hennar Ragnheiðar sem Geir og Jóhanna eiga,“ segir Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson borgarstjóri en Jóhanna, dóttir hans og einn umsjónarmaður Kastljóssins, og Geir Sveinsson, fyrr- verandi handboltastjarna, eignuðust son hinn 25. maí. Sonur Jóhönnu og Geirs vó tæpar 19 merkur og mældist 54 cm. „Ég er búinn að kíkja á hann, þetta er fjallmyndarlegur strákur,“ segir Vilhjálmur og stoltið leynir sér ekki. „Helga Björk, dóttir mín, átti stelpu í byrjun ársins og Baldur, sonur minn, eignaðist stelpu í september. Þetta eru allt yndisleg og falleg börn og heilbrigð og það er fyrir öllu,“ segir borgarstjórinn, sem hefur gaman af barnabörnunum. „Ég hef gaman af afahlutverkinu en vildi að ég hefði meiri tíma til að eyða með börnun- um. Ég hitti þau þó reglulega og fylg- ist með þeim. Það er svo gaman að sjá persónuleika þeirra myndast og fylgj- ast með þeim styrkjast og mannast.“ Vilhjálmur segist ekki vita hvort hann fái nafna þegar Jóhanna og Geir Sveinsson skíra nýjasta fjölskyldu- meðliminn. „Ég hef ekki hugmynd um það og hef ekkert velt því fyrir mér. Það er til svo mikið af Vilhjálmum í ættinni. Þetta hefur mikið breyst, krakkarnir finna sér nöfn sem eru ekkert endilega tengd fjölskyldunni og það er engin pressa frá mér. Aðal- atriðið er að barnið sé heilbrigt og að því líði vel.“ indiana@frettabladid.is JÓHANNA VILHJÁLMSDÓTTIR FJÖLMIÐLAKONA OG GEIR SVEINSSON EIGNUÐUST SON Á DÖGUNUM. VILHJÁLMUR BORGARSTJÓRI BÝST EKKERT ENDILEGA VIÐ NAFNA EN NÝTUR SÍN Í AFAHLUTVERKINU. ÞRJÚ BARNABÖRN Á NÍU MÁNUÐUM FEÐGIN Vilhjálmur ásamt Jóhönnu dóttur sinni. M agnús Scheving og félagar í Latabæ eru búnir að gera samninga um gervalla Suður-Ameríku um sýningar á leikriti sem byggt er á sögunni um Latabæ. Um er að ræða sýningar í að minnsta kosti tólf löndum, þar á meðal Chile, Brasilíu, Ekvador, Hondúr- as og Mexíkó, en fyrsta sýningin verður í Buenos Aires, höfuð- borg Argentínu, hinn 16. júní næstkomandi. „Leikritin eru unnin í samvinnu við heimafólk en við tökum mismikinn þátt í uppsetningunum,“ segir Þórólfur Beck, sem er yfir viðskiptaþróun hjá Latabæ. „Í öllum tilvikum útvegum við þó leikritið sjálft.“ Með sýningunum í Suður-Ameríku má segja að Latibær sé kom- inn aftur á byrjunarreit. Magnús Scheving gaf upphaflega út bók um Latabæ en í kjölfarið fylgdu tvær leiksýningar, sem sýndar voru í Loftkastalanum og Þjóðleikhúsinu, sem nutu gríðarlegra vinsælda hér á landi og lögðu að einhverju leyti grunninn að Latabæjarveldinu. „Þetta eru í raun sömu leikrit en við setjum þau upp á annan hátt og kararkterarnir eru orðnir þróaðri, búningarnir breyttir og svo fram- vegis. Það stendur ekki á áhuganum og það eru margir sem vilja vera með,“ segir Þórólfur en Latibær er nú sýndur í 109 löndum. „Þeir suður- amerísku aðilar sem við erum að vinna með eru mjög reyndir á þessu sviði og hafa sett upp sýningar fyrir stóra aðila á borð við Disney og Barney. Þeir segja að miðað við viðbrögðin sem við höfum fengið í miðasölu hafi engin sýning fengið jafn góðar viðtökur. Latibær er jú líka mjög vinsæll hérna en þættirnir eru talsettir á spænsku og portúgölsku.“ Latibær í Suður- Ameríku Latibær er á leið til Suður- Ameríku þar sem hann verður settur á svið í tólf löndum. LATIBÆR Á SVIÐ Í SUÐUR-AMERÍKU Fyrsta plata færeyska folans Plata Jógvans Hansen, fyrstu X-factor stjörnu landsins, kemur út hinn 11. júní. Samkvæmt staðfestum fréttum frá útgáfufyrirtækinu Senu mun plata Jógvans einfaldlega bera nafnið Jógvan. Á plötunni verða lög sem Jógvan syngur á ensku, bæði eftir hann sjálfan sem og aðra þekkta listamenn. Hinn færeyski Jógvan heillaði þjóðina í X-factor sjónvarpsþættinum og fékk 70% atkvæða í úrslitaþættinum en þar keppti hann við vinkonur sínar í Hara, þær Hildi og Rakel Magnúsdætur. Þessi 28 ára hárgreiðslumaður sýndi og sannaði í raunveruleikaþættinum að hann er alvöru poppstjarna sem getur sungið og flutt alls konar tónlist og því bíða án efa margir eftir fyrstu plötu færeyska folans. Sirkusbloggið vinsælt Sirkus hefur opnað sitt eigið blogg. Á blogginu verður hægt að fylgjast daglega með fréttum frá blaðamönnum Sirkuss sem og lesa það helsta úr blaði hvers föstudags. Bloggið fór á fullt á miðvikudaginn og þá skoðuðu um fimm þúsund manns það, sem gerir Sirkus- bloggið eitt vinsælasta blogg landsins. Slóð Sirkusbloggs- ins er www. blogg.visir.is/ sirkus. PABBINN Geir Sveinsson og Jóhanna eignuðust son á dögunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.