Fréttablaðið - 01.06.2007, Side 40
BLS. 8 | sirkus | 1. JÚNÍ 2007
Ég hlakka ofboðslega til að fara í frí og vera bara með Garðari. Það er eina planið sem ég hef
næstu mánuðina,“ segir Tinna Lind
Gunnarsdóttir, unnusta Garðars
Thors Cortes, en hún er um þessar
mundir að útskrifast af leiklistar-
braut Listaháskóla Íslands.
„Skólinn er búinn að vera mikið
ævintýri. Það hefur bæði verið ofsa-
lega gaman og ofsalega leiðinlegt í
skólanum en hann hefur verið mjög
lærdómsríkur. Ég hef kynnst sjálfri
mér vel við hinar ýmsu aðstæður og
stundum jafnvel betur en ég vildi,“
segir Tinna Lind. „Það er svo mikil
gagnrýni sem nemendur í svona
námi fá og sú gagnrýni er svo per-
sónuleg. Það er ekki bara sett út á
einhver verkefni sem þú hefur gert
heldur er sett út á göngulag þitt, tal-
anda og svo framvegis og maður fær
alveg nóg af því. Seinni part námsins
er aðaláherslan samt á að þjálfa
okkur í að vera skapandi listamenn
þar sem maður nýtir sér þá tækni
sem hefur verið kennd, svona þegar
maður er farinn að ganga rétt og tala
eins og manneskja,“ segir hún og
hlær. „Skólinn hefur oft verið erfiður
en það stafar oftast nær af því að
maður er eitthvað að flækjast fyrir
sjálfum sér. Það sem situr samt eftir
er hvað þetta er skemmtilegt.“
Tinna Lind, sem er 28 ára, ákvað
að sækja um í Listaháskólanum fyrir
um fjórum árum. Áður hafði hún
ætlað að gerast flugmaður. Hóf
atvinnuflugmannanám en hætti
þegar hún átti lítið eftir og komst inn
í leiklistina. „Þegar ég var að læra að
fljúga sögðu vinkonur mínar að
þetta væri ekki nógu gefandi vinna
fyrir mig í framtíðinni. Ég gat ekki
hugsað mér að gera neitt annað en
að fara í leiklist en sagði þeim að ég
tímdi ekki að eyða fjórum árum í
leiklistarskóla. Ári eftir að ég hafði
látið þau orð falla tímdi ég því hins
vegar,“ segir Tinna Lind og segist alls
ekki sjá eftir því. „Ég sé heldur ekkert
eftir tímanum og peningunum sem
fóru í flugið og ég held að það séu
mikil forréttindi að fá að framkvæma
bæði draum númer eitt og draum
númer tvö.“
Flutti ung að heiman
Tinna Lind er sveitastelpa, alin upp
á Kirkjubæjarklaustri, en fluttist ung
að heiman. „Foreldrar mínir voru
einmitt að flytja þaðan og ég var að
ná í gömlu gullin mín til þeirra. Er
með dúkkur, barnatennur og gömul
listaverk úti í bíl,“ segir Tinna bros-
andi. „Æskuárin á Kirkjubæjar-
klaustri voru voðalega góð og mikið
frelsi fyrir börn að geta hlaupið úti
fram á kvöld en á unglingsárunum
fór ég að verða órólegri. Ég á ekkert
nema góðar minningar þaðan en
þegar ég var sextán ára var ég meira
en tilbúin að fara þaðan.“
Tinna fluttist til Reykjavíkur og
fór í Menntaskólann við Hamrahlíð.
Hún bjó í eitt ár hjá vinafólki foreldra
sinna, í eitt ár leigði hún íbúð með
vinum sínum í Laugarnesi en endaði
í Hvassaleiti. „Ég er alltaf að flytja,“
segir Tinna kímin. „Ég vissi alltaf að
ég myndi flytja að heiman ung enda
á ég eldri systur sem hafði gert það
sama. Ég viðurkenni það hins vegar
alveg að mér finnst skrýtið að vita til
þess að sextán ára krakkar geri slíkt
hið sama í dag. En ég var allavega
alveg tilbúin.“
Tinna segist alltaf hafa verið einn
af foringjunum í bekknum á Klaustri.
Segist samt frekar vera baka til nú
orðið en láti í sér heyra þegar henni
sýnist svo og geti ekki setið á sér sé
henni misboðið á einhvern hátt. „Ég
get líka stundum verið skvetta en ég
er samt ekki svona út um allt,“ segir
hún og brosir.
Kærulaus á flugi í Los Angeles
Tinna kláraði menntaskólann á
þremur og hálfu ári. Fór þá í flug-
skólann og starfaði meðfram námi
sem gjaldkeri í banka. „Blekið var
varla þornað á skírteininu mínu
þegar ég fór til Los Angeles með vin-
konu minni til að safna flugtímum.
Ég var þar í mánuð og það var mikið
ævintýri. Ég veit hins vegar ekki
hvort ég myndi hætta mér út í það
núna,“ segir Tinna Lind og skellir
upp úr þegar hún rifjar upp þennan
tíma. „Ég var svo kærulaus þá. Það er
mjög mikil flugumferð í Los Angeles,
ekki eins mikil tilkynningaskylda hjá
flugvélum eins og hér á landi, og þær
þurfa jafnvel ekki að vera með radíó
svo enginn veit af þeim. En mér þótti
þetta mikið stuð þá og við flugum í
marga klukkutíma á dag.“
Skúffuskáld
Tinna segist ekki vita hvað taki við
nú þegar hún er að útskrifast úr
Listaháskólanum. Ætlar að minnsta
kosti að byrja á því að elta unnust-
ann til Englands. „Ég vil vera alveg
róleg og læra að vera í fríi, því það er
eitthvað sem ég kann ekki. Ég er líka
með hálfgerða gelgju gagnvart leik-
húsinu – sem er kannski bara eðli-
legt fyrir þá sem eru að útskrifast, úr
hvaða námi sem það svo er. Ég held
að það sé hollt að fólk komi gagnrýn-
ið út úr námi og að í því felist þróun-
in í hvaða fagi sem er. Þó að það eigi
ekki að kollvarpa öllu þá held ég að
nýjungarnar komi með nýju fólki.
Nýútskrifaðir hjúkrunarfræðingar
hafa örugglega sitthvað að segja um
gang mála á sjúkrahúsunum o.s.frv.
Ég ætla kannski að reyna að skapa
eitthvað sjálf – skrifa og svona,“ segir
Tinna sem á eitthvað af efni í skúff-
unni. „Hver veit nema það fái ein-
hvern tímann að líta dagsins ljós,“
segir hún.
Tinna segist ekki vita hvort hún
eigi eftir að reyna fyrir sér í leiklist-
inni á Englandi. „Þetta eru mjög ólíkir
heimar. Ég þarf bara að kynna mér
málið í rólegheitunum og sjá hvernig
allt virkar þar og hvernig mér líst á.
Það eru ábyggilega einhverjir hópar
sem eru að gera eitthvað í anda þess
sem ég vil gera og þá verð ég bara að
leita þá uppi. En ég er rosalega óráðin
núna. Ég vil ekki festa mig í einhverju
heldur gefa sambandi okkar Garðars
meiri tíma,“ segir Tinna, sem hefur
verið með Garðari Thor í ein sex ár.
Hitti hann fyrst á rölti í miðbæ
Reykjavíkur. Tinna segist ekki vilja
tala mikið um samband þeirra. Segir
þau ekki vera gift en bendir á trúlof-
unarhring á hendi sér. „Ekki ennþá en
ætli við munum ekki enda uppi við
altarið,“ segir Tinna sposk og vill lítið
ræða málin. Sirkus hefur þó heimildir
fyrir því að Tinna og Garðar muni
ganga í það heilaga í sumar.
Sjómannslíf
Það hefur verið mikið ævintýri í
gangi hjá Garðari Thor síðustu mán-
uði en plata hans kom út í Bretlandi
fyrir skömmu. Tinna segir flakkið
ekki koma neitt sérlega illa við sig.
„Hann hefur alltaf verið á miklu
flakki milli landa, jafnvel þótt það
hafi ekki allt komið fram í fjölmiðl-
um,“ segir Tinna. Þau Garðar reyna
að hittast eins oft og þau geta. „Við
fundum það út að þrjár vikur eru
svona hámarkið sem við getum verið
í sundur og þá reynum við að hittast.
Svo koma líka stundir sem mig lang-
ar allt í einu að fara út og hitta hann.
En þetta venst svo sem eins og allt
annað. Þetta er svolítið eins og að
eiga mann sem er sjómaður,“ segir
Tinna. „Svo vitum við ekkert hvernig
þetta á eftir að þróast eða í hvaða
farveg hans mál fara. Hann er alla-
vega búinn að koma plötunni út og
hún gengur bara vel.“
Kynþokkafullur Garðar
Tinna og Garðar Thor vinna að vissu
leyti í sama bransanum og reyna að
veita hvort öðru stuðning. „Við erum
mjög heppin með það og við skipt-
umst á að hífa hvort annað upp,“ segir
Tinna, sem hefur þó nokkrum sinn-
um séð Garðar Thor syngja eftir að
plata hans kom út í Bretlandi. „Ég
verð stundum svolítið meðvirk og fer
sjálf öll að svitna þegar hann stígur á
svið,“ segir hún og hlær.
Spurð hvernig það komi við hana
að Garðar sé trekk í trekk valinn kyn-
þokkafyllsti karlmaður landsins
svarar Tinna um hæl: „Mér finnst
hann allavega voða kynþokkafullur.“
Tinna stefnir á að flytja út til Garð-
ars Thors eftir tónleika hans með Sin-
fóníuhljómsveit Íslands 7. júní næst-
komandi. Hún segist ekki vita hvað
taki við. „Ég vil bara vera frjáls og ef
það er eitthvað rosalega spennandi
sem kemur upp get ég stokkið á það.
Mig langar ekki að vera í þeim spor-
um að hafa lent einhvers staðar held-
ur vil ég vanda mig við að velja það
sem ég geri og standa með því – gera
það sem ég hef áhuga á sem listamað-
ur og manneskja.“ kristjan@frettabladid.is
Fylgir ástinni til Englands
Tinna Lind Gunnarsdóttir er að útskrifast af leiklistarbraut í Listaháskólanum í haust en ætlar að fylgja Garðari Thor til London.
SIRKUSMYND/ANTON
Tinna Lind Gunnarsdóttir er nýútskrifuð leikkona og unnusta
Garðars Thors Cortes. Tinna rifjar upp æskuna, námið og veltir
fyrir sér framtíðinni í samtali við Sirkus.
„ÉG VERÐ STUNDUM SVOLÍTIÐ MEÐ-
VIRK OG FER SJÁLF ÖLL AÐ SVITNA
ÞEGAR HANN STÍGUR Á SVIÐ.“
Garðar Thor Mun giftast Tinnu Lind í
sumar en þau eru búin að vera
saman í sjö ár.