Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 42
1. JÚNÍ 2007 FÖSTUDAGUR2 fréttablaðið dýrin stór og smá
Páfagaukurinn Tóbías lék
nýverið stórt hlutverk í sjón-
varpsauglýsingu fyrir Wrigley ś
tyggigúmmíið, sem er gerð
fyrir erlendan markað. Ef
marka má eigandann gæti vel
farið að verkefnin yrðu fleiri,
þar sem hann sýndi stjörnu-
takta.
„Auglýsingin var tekin uppi á Geit-
landsjökli, við Langajökul, og við
fengum sérstaka undanþágu svo
hann fengi að gista í Reykholti. Við
vorum þarna í tvær nætur þar sem
það var of kalt í veðri fyrir Tobba
fyrsta daginn til að gera nokkurn
skapaðan hlut. Þann næsta var
aftur á móti logn og blíða þótt það
væri fimmtán stiga frost, þannig að
þá var hægt að mynda. Við hefðum
aldrei unnið án þess að vera örugg
um að hann þyldi veðurfarið,“
segir eigandi Tóbíasar, Jennifer
Elinor Ester Einarson.
Að sögn Jennifer stóð Tóbías sig
með stakri prýði á meðan tökur
fóru fram og ekki leið á löngu þar
til flestir í tökuliðinu höfðu fallið
kylliflatir fyrir persónutöfrum og
dugnaði þessa litskrúðuga Green
Wing Macaw-páfagauks. „Það er
alveg óhætt að segja að hann búi
yfir ómældum leikhæfileikum
og hafi jafnvel náð að skyggja á
mennsku leikaranna,“ segir hún
og hlær.
Tóbías á að vísu ekki langt
að sækja hæfileikana, þar sem
hann var áður í eigu leikarapars-
ins Stefáns Karls Stefánssonar og
Steinunnar Ólínu Þorsteinsdóttur,
og hafði aðeins reynt fyrir sér í
leiklistinni þegar hann lék á móti
Stefáni í þætti af Latabæ. Eins og
flestir vita eiga páfagaukar auð-
velt með að líkja eftir eigendum
sínum, þannig að ekki er ólíklegt
að hann hafi lært eitthvað af at-
vinnumönnunum meðan á vistinni
stóð.
„Tobbi talaði að vísu ekki alveg
eins mikið og búist var við, þar sem
hann er einstaklega málglaður að
upplagi,“ segir Jennifer og bætir
við að henni finnist þó ekki óeðli-
legt að smá feimni geri vart við sig
hjá listamanni sem er að stíga sín
fyrstu spor á framabrautinni.
Þótt Tóbías hafi enn ekki náð að
skapa sér stórt nafn í kvikmynda-
bransanum segir Jennifer að engu
að síður hafi verið komið fram
við hann eins og stjörnu meðan á
tökum stóð. Til marks um það fékk
páfagaukurinnn sérstaka aðstöðu
líkt og um Hollywood-stjörnu væri
að ræða og var þess ávallt gætt að
vel færi um hann í tökum.
En skyldi frammistaða páfa-
gauksins í Wrigley´s-auglýsing-
unni hafa kallað á fleiri verkefni?
„Ekk ennþá, enda er enn verið að
vinna í auglýsingunni úti í Pól-
landi,“ segir Jennifer. „Við bíðum
spennt eftir að fá eintak sent til
landsins.“ Hún útilokar þó ekki að
framhald verði á, að því tilskildu
að þeim Tobba lítist vel á hug-
myndina.
roald@frettabladid.is
Upprennandi kvikmyndastjarna
Jennifer er hér með Tóbías en hún og eiginmaður hennar reka gæludýraverslunia Furðufugla og fylgifiska. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR
Hundurinn hefur fylgt mannin-
um frá ómunatíð. Hann hefur
trítlað á eftir húsbónda sínum
hvert sem leiðin liggur. Út í búð,
um ókunn lönd og jafnvel út í
geim. Hann hefur jafnvel fylgt
upp á hvíta tjaldið.
Sumir hundar hafa heillað
okkur svo í bíómyndunum að þeir
skyggja á mennska meðleikara
sína. Sumir vegna þess hversu
vel þeir eru þjálfaðir, aðrir vegna
þess hversu sætir þeir eru og
enn aðrir einfaldlega vegna þess
hversu ógeðslegir þeir eru.
Lassí hefur átt hug og hjörtu
vesturheims síðan hún kom fyrst
fram á sjónarsviðið árið 1938.
Frægðarsól þessa viðkunnanlegu
Rough Collie-tíkur reis hæst í
sjónvarpsþáttum 1954 til 1974 og
á þeim tíma var varla það barn
sem ekki þekkti Lassí og vildi
alveg eins hund á heimilið.
Þrátt fyrir að kjölturakkinn
Benji væri ekki jafn glæsileg-
ur og Lassí var hann engu síður
vinsælli. Svo skemmtilega vill til
að kvikmyndin um Benji kom út
sama ár og sjónvarpsþættirnir
um Lassí hættu, árið 1974, og því
um eiginlegan arftaka að ræða.
Margir hafa jafnframt gengið
svo langt að kalla myndina um
Benji eina bestu fjölskyldumynd
allra tíma.
Þegar kemur að lögregluhund-
um deila Hooch, Rex og K-9 titl-
inum. Rex og K-9 eru keimlík-
ir, enda báðir Schäfer-hundar.
Hooch er af öðru sauðahúsi og
ein óvenjulegasta hundastjarna
hvíta tjaldsins. Það skýrir
kannski af hverju aldrei var gerð
framhaldsmynd.
Einn frægasti hundur kvik-
myndasögunnar verður samt að
teljast Cujo en öfugt við hinar
stjörnurnar er ekki nokkurt barn
sem vill fá þetta skrímsli inn á
heimilið. tryggvi@frettabladid.is
Besti vinurinn á hvíta tjaldinu
K-9 og Rex voru báðir af Schäfer-kyni
og miklar hetjur.
Lassí er Audrey Hepburn hundastjarnanna. Á því er enginn vafi.