Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 44

Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 44
 1. JÚNÍ 2007 FÖSTUDAGUR4 fréttablaðið dýrin stór og smá Linda Ósk Sigurðardóttir starfar sem verkefnisstjóri við verkefnið Heim- sóknarvinir hjá Rauða krossinum, en það er almenn heimsóknarþjónusta við ýmsa þjóðfélagshópa. Fyrir rúmu ári hóf hún tilraunir með að láta hunda heim- sækja fólk og hafa þær gefið góða raun. „Verkefni þetta var sett á laggirnar eftir að það kom í ljós að hér á landi eru margir sem búa við töluverða félagslega einangr- un,“ segir Linda. „Þetta er mjög góð leið til að ná til þeirra sem eru einmana en þó erum við alltaf að reyna að auka á fjölbreytnina. Það er mjög sjaldgæft að þau sem eru fé- lagslega einangruð hringi og biðji um að fá heimsókn og því reynum við að finna leiðir til að ná til þeirra. Ein þeirra var að nota hunda við heimsóknir, en hundur getur virkað sem eins konar ísbrjótur við fyrstu heimsóknirnar. Þær geta verið svo- lítið erfiðar, en hundar hjálpa fólki að losa um feimnina. Þeir bjóða líka upp á hlut- verk eins og að gefa þeim að borða, fara út að ganga og fleira. Mér finnst þetta í raun bara vekja fólk til lífsins,“ segir hún og bætir við að það að strjúka hundinum og sýna honum hlýju losi oft um tilfinninga- legar hömlur og gefi þeim sem eru heim- sótt mikið. Um tilkomu þess að fara með hunda í heimsóknir segir Linda hugmyndina hafa komið til sín úr ýmsum áttum, meðal ann- ars af því að fylgjast með sjónvarpsþátt- um á Animal Planet og fleira. „Svo vissi ég af verkefni sem var í gangi á Landakoti hjá Ingibjörgu Hjaltadóttur hjúkrunarfræð- ingi, en það gekk út á að leyfa hundum að heimsækja heilabilaða. Verkefni þetta gaf ákaflega góða raun og sýndi fram á að fólk hefur gott af þessu.“ Eftir viðtal í sjónvarpi höfðu margir hundaeigendur samband við Lindu og lýstu yfir áhuga sínum að fara með hundana í heimsóknir til fólks. „Við byrjuðum með af- markaðan hóp og eina Rauða kross-deild til að sjá hvernig gengi. Fyrst var þetta bara ein heimsókn en í dag eru þær orðnar um ellefu hér á höfuðborgarsvæðinu og hafa staðið í rúmt ár. Eins og staðan er núna eru nokkrir hundaeigendur að bíða þess að geta hafið heimsóknir en þeir hafa allir farið á námskeið og eru tilbúnir í verkefnið.“ Jón, sem er með geðklofa og býr á sam- býli, hefur fengið tíkina Ídu ásamt eigand- anum Bjarna Sigurðssyni til sín einu sinni í viku í heilt ár. „Þessar heimsóknir hafa gert Jóni mjög gott. Til dæmis vill hann mun frekar fara út í gönguferðir og bíður alltaf spenntur eftir því að Ída komi í heimsókn. Hann kennir henni ýmsar kúnstir og verður fyrir vikið virkari og opnari,“ segir Linda Ósk að lokum. - mhg Kærkomnir gestir Ída er orðin besta vinkona Jóns eftir að hann fór að fá heimsóknir frá henni einu sinni í viku. MYND/INGA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR Þessar sætu prúðbúnu systur heimsækja reglulega langveik börn í Rjóðrinu, en það er hvíldarvistun í Kópavogi. Ída, Jón og Bjarni í gönguferð. MYND/INGA BJÖRK GUNNARSDÓTTIR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.