Fréttablaðið - 01.06.2007, Side 50

Fréttablaðið - 01.06.2007, Side 50
BLS. 10 | sirkus | 1. JÚNÍ 2007 Litla Ellý fædd Ellý Ármanns þula, vinsælasti bloggari landsins og fyrrverandi ritstjóri Hér og nú, eignaðist dóttur á dög- unum. Litla Ellý fæddist 10. maí, var 13 merkur og 51 cm. Ellý og sambýlismaður hennar, Freyr Einarsson, fyrrverandi ritsjóri DV og núverandi sjónvarpssjóri Sirkuss, eiga bæði börn frá fyrri samböndum. Ellý á tvo drengi en Freyr tvær dætur. Ellý hafði látið hafa eftir sér að hún vildi heldur eignast dóttur og fékk ósk sína upp- fyllta. ÓTRÚLEGA MARGAR FJÖLMIÐLAKONUR EIGA VON Á SÉR EÐA ERU NÝBÚNAR AÐ EIGA. Fjölmiðlakonur fjölga sér Sjónvarpsstjörnur eignast barn Katrín Rut Bessadóttir, nýr liðmaður Íslands í dag, á von á sínu fyrsta barni í byrjun desember. Kata, sem starfaði áður sem blaðamaður á DV og sem skrifta á Stöð 2, er kærasta sjónvarpsstjörnunnar Helga Seljan úr Kastljósinu. Parið kynntist á DV en um fyrsta barn þeirra beggja er að ræða. Katrín staðfesti við Sirkus að hún væri ófrísk en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Hún viðurkenndi þó að vita ekki um hvort kynið væri að ræða. Kynið kemur á óvart Katrín Brynja Hermannsdóttir, þula hjá Sjónvarpinu, á von á sínu öðru barni. Barnið er væntanlegt í heiminn um miðjan september en fyrir á Katrín Brynja fimm ára gamlan son. Hún og sambýlismaður hennar, Auð- unn Svafar Guðmundsson forstjóri, ætla að láta kynið koma sér á óvart. Fyrsta barn á leiðinni Sólveig Kr. Bergmann, fréttakona Stöðvar 2, á von á sínu fyrsta barni í byrjun ágúst. Kærasti Sólveigar er Kristján Haagensen en barnið er einnig fyrsta barn hans. Í viðtali við Sirkus í febrúar sagðist Sólveig ekki ætla að fá að vita kyn barnsins. Hún vildi láta koma sér á óvart. Full eftirvæntingar Hjördís Rut Sigurjónsdóttir, blaðamaður á DV og fyrr- verandi fréttakona á Stöð 2, á von á sínu fyrsta barni. Barnið er væntanlegt í heiminn í september en um fyrsta barn hennar og Óskars Finnbjörnssonar, kær- asta hennar, er að ræða. Í viðtali við Sirkus sagðist Hjördís Rut afar spennt. „Ég er full eftirvæntingar og ætla ekki að vita kynið. Það skiptir ekki máli þótt það væri gaman að geta keypt eitthvað á barnið fyrir fram. Ég kaupi bara hvítt, grænt og gult.“ ottustu óléttufötin hjá okkur. Stærðir xs-xxl einnig mikið úrval í stærðum 46-54 Opnunartími: Mán- fös 11-18 • Laugardaga 11-16

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.