Fréttablaðið - 01.06.2007, Blaðsíða 52
BLS. 12 | sirkus | 1. JÚNÍ 2007
É g hafði unnið með íslenskum arkitektum og hönnuðum á sýn-
ingum um allan heim og fundið áhuga
fólks á íslenskum vörum. Þegar ég
sagði þeim að vörurnar fengjust
aðeins á Íslandi missti fólk áhuga því
Ísland þykir fjarlægt. Mér fannst því
að einhver yrði að opna verslun með
vörum eftir íslenska hönnuði ein-
hvers staðar í Evrópu og eftir að hafa
beðið eftir einhverjum öðrum að
framkvæma það dreif ég í því sjálf,“
segir Dagmar Þorsteinsdóttir,
sem rekið hefur verslunina
og galleríið Design
Center Knightsbridge í London,
ásamt maka, í tæp tvö ár. Verslunin er
sett upp eins og gallerí svo hver ein-
asti hlutur fær að njóta sín. Eins og er
býður Dagmar Bretum upp á samsýn-
ingu listakvennanna Hafdísar Bennett
og Röggu Ólafs og í tilefni af opnun
sýningarinnar hélt Dagmar heljar-
innar opnun þar sem Dorrit forseta-
frú var meðal gesta auk þess sem
sendiherrann hélt ræðu og söngkon-
an Lay Low söng. Dagmar segir um
90% vöruúrvalsins íslenskt en hún
selur meðal annars íslenska
skartgripi, húsgögn, lampa,
glervörur, keramik og mál-
verk auk þess sem þau eru
nýkomin með skó eftir
Mörtu Rúnarsdóttur. „Við
erum opin fyrir því sem
fólk er að gera og tökum
reglulega inn nýjar vörur
í prufu. Það tekur fólk
mislangan tíma að fatta
vörurnar en ef þær
ganga ekki sendum við
þær til baka og gefum
einhverjum
öðrum tæki-
færi.“
indiana@
frettabladid.is
Þetta var heljarinnar sýning og Lorenzo var mjög hrifinn af
íslenska hestinum. Þetta er í fyrsta
sinn sem íslenski hesturinn er sýndur
í Rússlandi,“ segir athafnamaðurinn
Fjölnir Þorgeirsson sem fór ásamt
hópi Íslendinga til að sýna íslenska
hestinn á stórri sýningu sem haldin
var í Pétursborg fyrir skömmu.
Stjarna sýningarinnar var hinn
heimsfrægi knapi Lorenzo frá Frakk-
landi en hann er vanur að setja á svið
stórkostlegar sýningar þar sem hann
stendur á baki á átta hestum. Knap-
inn heillaðist svo um munaði af
íslenska hestinum og fór þess á leit
við íslensku sendinefndina að fá að
sitja hann, sem hann og fékk.
Fjölnir fór út ásamt félögum sínum
sem reka vefsvæðið hestafrettir.is.
„Við fórum út til að taka upp efni
fyrir vefinn. Við gerum jafnvel eitt-
hvað meira úr því síðar meir,“ segir
Fjölnir, sem í Rússlandi hitti fyrir
systur sína, Guðrúnu Sigríði Þor-
geirsdóttur. „Hún hefur starfað hjá
íslenska sendiráðinu í Rússlandi í sjö
ár og er með doktorspróf í samfé-
lagsþróun Rússlands og Kína – talar
rússnesku og fleiri tungumál,“ segir
Fjölnir.
Hugrún Jóhannsdóttir og Páll
Bragi Halldórsson á Austurkoti höfðu
veg og vanda af sýningu íslenska
hestsins í Pétursborg ásamt íslenska
sendiráðinu í Moskvu, Icelandair,
Sirpu, Hafliða Halldórssyni í Ármóti,
Íshestum og Finnanum Pekka
Kuuma. - kh
HEIMSFRÆGUR KNAPI HEILLAÐUR
AF ÍSLENSKA HESTINUM
Lorenzo, einn fremsti knapi heims, sýndi listir sínar í Pétursborg og heillaðist af
íslenska hestinum. Myndir/Úr einkasafni
Fjölnir og félagar skemmtu sér vel á hestasýningu í Péturs-
borg.
Guðrún Sigríður Þorgeirsdóttir er systir Fjölnis en hún hefur
starfað hjá íslenska sendiráðinu í Moskvu í sjö ár.
Dorrit mætti á opnunina
DESIGN CENTER KNIGHTSBRIDGE Dagmar og maður hennar hafa rekið verslunina í
tæp tvö ár.
DAGMAR ÞOR-
STEINSDÓTTIR
Dagmar hafði
beðið eftir að
einhver annar
opnaði verslun
en dreif sig
svo sjálf af
stað.