Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 61

Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 61
Undanfarin ár hefur námsfram-boð Háskóla Íslands aukist og námsleiðum innan hans fjölgað. Ein elsta deild Háskólans, guðfræði- deildin, hefur einnig aukið náms- framboð sitt með tilkomu djákna- náms og almennrar trúarbragða- fræði, auk framhaldsnáms. Í nær hundrað ár hefur Háskól- inn menntað og útskrifað guðfræð- inga með áherslu á akademískt nám, ásamt því að undirbúa þá fyrir fjöl- breytt og krefjandi starf prestsins. Komið er inn á ýmis fræðasvið í guðfræðináminu, sem sum hver tengjast öðrum greinum háskóla- náms, eins og sálfræði og félags- fræði, siðfræði, sagnfræði, heim- speki og tungumál. Einnig má nefna trúfræði, sálgæslu, litúrgíu, trúar- bragðasögu, nýja testamentisfræði og gamla testamentisfræði. BA- próf í guðfræði er hægt að taka til 90 eininga eða á móti öðru fagi til 30 eða 60 eininga. Nám í guðfræðideild býður því upp á ýmsa möguleika og er góður grunnur fyrir framhalds- nám í fjölmenningarsamfélagi nú- tímans. Djáknafræðin eru kennd til BA- prófs, en einnig er boðið upp á 30 eininga viðbótarnám til djákna- prófs að loknu háskólaprófi í hjúkr- unar- eða uppeldisfræðum. Í guðfræðideild er ekki aðeins boðið upp á guðfræði- eða djákna- nám heldur einnig þverfaglegt nám í almennum trúarbragðafræðum. Enn sem komið er er námið aðeins til 30 eininga en stefnt er að því að auka það og gefa kost á því sem að- alnámsgrein. Allar nánari upplýsingar um nám í guðfræðideild má fá á heimasíðu deildarinnar: www.gudfraedi.hi.is. Í guðfræðideild er ekki aðeins boðið upp á fjölbreytt nám í aka- demískum fræðum undir leiðsögn eftirsóttra kennara á heimsmæli- kvarða, heldur er einnig sterkt fé- lagslíf í deildinni. Kapp er lagt á að nemendur og kennarar eigi gott samfélag sem einkennist af vin- semd og virðingu. Flóra nemenda og kennara er fjölbreytt og skemmti- leg, nemendur eru á öllum aldri og með mismunandi bakgrunn. Fjöl- breytni deildarinnar er því ekki að- eins í námsframboði heldur einnig þeim sem þar stunda nám og end- urspeglast það í félagslífinu. Félag guðfræðinema stendur fyrir fjölda viðburða á hverri önn, sem sameina nemendur á öllum aldri. Háskóla- kapellan er vel nýtt með vikuleg- um messum og öðru helgihaldi sem nemendur taka virkan þátt í. Há- degisfundir, heimsóknir í prófasts- dæmi og í fyrirtæki og stofnan- ir, kokkteilboð og margt fleira er meðal þess sem í boði er. Óhætt er að geta þess að margir hafa kynnst sínum bestu vinum við nám í deild- inni. Heimasíða Félags guðfræði- nema er á slóðinni www.fiskurinn. is. Fyrir áhugasama er hægt að skrá sig í grunnnám við Háskóla Íslands til næstkomandi þriðjudags, 5. júní, sjá nánar á síðu Háskólans www. hi.is. Höfundar eru nemendur við guðfræðideild Háskóla Íslands. Fjölbreytt nám – fjölbreyttir möguleikar Sádi-arabísk-ur maður framdi sjálfs- morð í Guantanamó- fangabúðunum síðastlið- inn miðviku- dag. Í fanga- búðunum sem Bandaríkja- menn halda úti á Kúbu dvelja hátt í fjögur hundruð manns og hafa sumir hverjir verið þar í allt að fimm ár án þess að mál þeirra hafi farið fyrir dómstóla. Fang- arnir njóta ekki þeirra réttinda sem stríðsföngum ber samkvæmt Genfarsáttmálanum og mega þeir sæta miskunnarlausum pynting- um og barsmíðum. Sádi-arabinn sem fyrirfór sér í gær var ekki sá fyrsti til þess að gera það í Guant- anamó. Upp á þetta getum við ekki horft aðgerðalaus og þaðan af síður verið virkir þátttakendur. Við vitum að Bandaríkjamenn hafa notað íslenska flugvelli í þeim til- gangi að flytja fanga í pyntinga- búðir, hvort heldur á Guantanamó eða í leynilegu fangelsi í Austur- Evrópu. Umræddur aðili sem framdi sjálfsmorð á miðvikudag- inn gæti allt eins verið einn þeirra „Íslandsvina“ sem hafa millilent hér á leið sinni til Guantanamó. Með þessum hætti eru Íslending- ar óbeinir þátttakendur í skipu- lögðum mannréttindabrotum og er það ólíðandi með öllu. Ég skora á Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur utanríkisráðherra að fara fram á tafarlausa lokun Guantanamó- fangabúðanna á Kúbu eða segja að öðrum kosti upp varnarsamn- ingnum við Bandaríkjamenn og neita þeim um afnot af íslenskum flugvöllum. Höfundur er varaformaður Ungra jafnaðarmanna í Hafnarfirði. Pyntingar og sjálfsvíg Við vitum að Bandaríkjamenn hafa notað íslenska flugvelli í þeim tilgangi að flytja fanga í pyntingabúðir, hvort heldur á Guantanamó eða í leynileg fangelsi í Austur-Evrópu.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.