Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 66

Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 66
Kl. 21.00 Söngvarinn Páll Óskar og Monika hörpuleikari halda tónleika í Víði- staðakirkju á vegum hátíðarinnar Bjartir dagar í Hafnarfirði. Þar koma þau fram ásamt strengja- kvartett. Flutt verður bæði nýtt og gamalt efni eftir íslenska og erlenda höfunda, þar á meðal eftir Hreiðar Inga Þorsteinsson, Magnús Þór og Burt Bacharach. Jómfrúardjassinn kynntur Steingrímur Eyfjörð stend- ur í stórum móttökusal við Stóra kanalinn í Feneyjum og stýrir uppsetningu á sýn- ingu sinni sem verður fram- lag Íslands til tvíæringsins þar í borg sem er haldinn í 52. sinn í sumar. Það er rétt tæp vika í opnun þar og gólfið og salinn eru menn í óða önn að klæða með vatnsþéttum krossvið, ekki vegna flóðahætt- unnar þótt salurinn sé rétt ofan við vatnsborðið í kanalnum, held- ur vegna þess að Steingrími þykir hlutlaus liturinn á krossviðnum rýma vel við fornt umhverfi sal- arins og máða liti sem eru ráð- andi í sýningunni hans. Gólfið í nær tvö hundruð fer- metra salnum er steinlagt en mynstrið undir fótum manna er líka máð. Hér lyktar allt af forn- ri sögu: yfirskrift tvíæringsins er upp á alþjóðlega verslunartungu engilsaxa: Think with the Senses – Feel with the Mind. Steingrímur segir að þá hann fékk það verkefni síðasta haust að taka saman sýningu hafi hann afráðið að leggja af stað eins og smalinn forðum og leita ekki enn finna: „Ég tók viðtöl við fjölda manna og þá komu upp í hendurn- ar á mér hugmyndir sem ég tók að velta fyrir mér. Ég var ráðinn í að fara ekki af stað með fyrirfram ákveðna hugmynd, heldur hafa ferlið lifandi og opið en ekki af- ráðið og vélrænt.“ Sýningin skipt- ist enda í nokkur hólf. Grunnhug- myndin tengist íslenskasta allra fugla, vorboðanum ljúfa, lóunni. „Það eru fuglar í öllum menn- ingarheimum sem boða vorið, koma þeirra staðfestir árstíðirn- ar. Það er lóan hjá okkur og rauð- brystingurinn hjá Ameríkönum.“ Þegar honum er bent á að far- fuglar vorsins voru veiddir í net og háfa á Ítalíu og notaðir sem veislumatur, hlær hann við og segir það dæmigert: „Íslendingar bjuggu við matarforða en kunnu ekki að notfæra sér hann.“ Hann varð fengsælli á veiðum sínum á hugmyndum sem efni- við í sýninguna: í tengslum við lóuna sem vorboða sem á upptök sín í rómantísku stefnunni var honum staðar numið við ævi og verk fjölfræðingsins Benedikts Gröndal. Um það leyti var deilt um flutning á húsi Gröndals við Vesturgötu. „Í flestum löndum væri slíkt hús lagt undir safn um merkilegan mann. Benedikt skrif- aði árið 1853 merkilega grein um fagurfræði sem ég birti í sýning- arskránni. Þar er undirstrikað að listin á sér engin landamæri, hún er ekki bundin þjóðerni. Hann var 28 ára gamall og stóð báðum fótum í klassískri menningu forn- aldar og menningu norrænna þjóða. Mér finnst þessi hugsun eiga erindi hingað til Feneyja og merkilegt að við höfum átt mann um miðja nítjándu öld sem hugs- aði svona.“ Þriðji þátturinn í efnivið sýn- ingarinnar er líka frá fyrri tíð: Steingrímur gerir sér mat úr þjóðfræði, hugmyndum okkar um huldufólk sem veruleika. Á sýn- ingu hans eru gripir sem sagð- ir eru úr eigu huldufólks og hann höndlar frásagnir af samskiptum manna og huldufólks sem stað- reynd sem hlýtur að koma flest- um Evrópumönnum á óvart, svo langt er síðan upplýsingin drap í dróma hugmyndir á meginland- inu um yfirskyggða staði, álfa, tröll og goðmögn ýmiss konar, þótt hinn goðsögulegi heimur hafi eflst mjög í skáldskap og kvik- myndum að sama skapi hin síð- ari ár. „Þetta tengist allt saman sem íslenskur veruleiki,“ segir Stein- grímur og hefur litlar áhyggjur af þessu efnisvali sínu og samþætt- ingu. Hann er að vonum sæll með dvöl sína í Feneyjum. Fáar borgir halda jafn vel utan um þegna sína á þröngum götum lausar við bíla- umferð. Íslenski sýningarsalurinn er nú nokkuð langt frá hinu stóra sýningarsvæði þar sem flestar sýningar tvíæringsins fara fram. Það er Hanna Styrmisdóttir sem er framkvæmdastjóri verkefn- isins en með þeim þar suður frá eru þau Úlfur Grönvold, Sigrún Sirra Sigurðardóttir og Erling Klingenberg að vinna við upp- setninguna. Yfir öllu vakir svo dr. Christian Schoen, forstöðumaður Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, fyrir hönd mennta- málaráðuneytis. Opnun verður að kvöldi 6. júní en almenningi verður greiður aðgangur að sýn- ingunni hinn 10. og stendur sýn- ingin uppi í Feneyjum til hausts. Hundruð þúsunda manna munu leggja leið sína til Feneyja að sjá tvíæringinn þetta sumar sem hin fyrri en sýningin heldur enn sinni yfirburðastöðu meðal stór- sýninga á myndlist Evrópu. Auk framlags frá menntamálaráðu- neyti er Baugur helsti styrktar- aðili sýningar Íslands þetta árið en að auki leggja margir aðrir minna til: Landsvirkjun, Glitnir, Landsbankinn, Reykjavíkurborg, utanríkisráðuneytið, Straumur- Burðarás, Tryggingamiðstöðin, Icelandair, Island Tours og Vod- afone. Steingrímur segir sýninguna verða komna upp nú um helgina og segist spenntur að sjá hvern- ig safn sitt af íslenskum sérkenn- um muni njóta sín í fimm hundr- uð ára gömlum móttökusal við vatnsborð lónsins mikla þar sem Feneyjar rísa úr hafi. Þangað er enda stefnt miklum fjölda gesta og ekki ólíklegt að þessi sneið af veruleika okkar verði mörgum minnisstæð sem þangað rata. Í dag eru fjörutíu ár síðan hljómplatan Sgt. Pepper‘s Lonely Hearts Club Band kom út. Platan, sem kom upp- runalega út á vínyl, var áttunda plata The Beatles og er af flestum talin hafa markað tíma- mót í efnisvali og hljóð- ritunartækni poppsins. Ólíkt fyrri plötum með nýjum lögum eftir Lennon, McCartney og Harrison hafði platan yfir sér heildarsvip, en þar voru í bland lög sem vísuðu til fornra tíma og nýrri vandamála ungra sem aldinna. Platan var var miklum mun lengur í vinnslu en fyrri verk The Beatles, tók marga mánuði, sem réðst af því að margrása tæknin sem var enn í bernsku var notuð til hins ítrasta af George Martin og Geoff Emerick í Abbey Road- hljóðverinu. Keimlík- ar tilraunir var verið að vinna víðar á vegum hljóm- sveita á borð við Rolling Stones, Kinks og Beach Boys. Sagan hefur dæmt Bítlunum vinninginn. Platan var heillengi á vinsældalistum og er ótvírætt eitt áhrifamesta safn dægurlaga sem kom út á seinni helmingi síðustu aldar. Sgt. Pepper fertug „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.