Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 70

Fréttablaðið - 01.06.2007, Page 70
Morr Music er eitt áhugaverðasta sjálfstætt starfandi plötufyrirtæki Evrópu. Því ber að fagna heimsókn þess hingað til lands, ekki síður í ljósi þeirrar staðreyndar að þar eru að mála tvær af vonarstjörnum ís- lensks tónlistarlífs, Seabear og Benni Hemm Hemm. Tvennir stórir tónleikar á vegum Morr (Morr er einnig nafn á einum af guðunum í Warhammer) eru á döfinni hérlendis á næstu dögum, annars vegar á AIM-tónleikahátíðinni á Akureyri núna um helgina og hins vegar í Iðnó í næstu viku. Morr Music var stofnað af Berlínarbúanum Thomas Morr árið 1991 og frá upphafi hefur fyrirtækið sérhæft sig í framsækinni raftón- list og indí-tónlist af ýmsum toga. Reyndar var það áhugi Thomasar einn og sér sem réði úrslitum um hvort listamenn fengu að gefa út hjá Morr eða ekki. Thomas hefur sem dæmi sérstaklega mikinn áhuga á shoegaze og draumkenndu rokki. Thomas hefur meðal annars unnið að því að vinna sér inn útgáfuréttinn á plötum Slowdive. Það gekk víst erfiðlega en endaði með því hin tvöfalda Blue Skied an’ Clear kom út árið 2002. Platan innihélt ábreiður listamanna hjá Morr af hinum ýmsu Slowdive lögum, meðal annars ein ábreiða með Múm. Sú kjarngóða ís- lenska sveit hefur einnig gefið út eina endurhljóðblöndunarplötu undir merkjum Morr. Hjá Morr ber ýmissa grasa. Líklegast eru þekktustu nöfnin Lali Puna, B. Fleischmann og Ms. John Soda en þarna er einning að finna Miami poppsveitina Electric President (sem hefur átt lag í The O.C.), danska rafpiltinn Manual, hinn mjúka Styrofoam frá Belgíu og margar fleiri. Tónlistarmennirnir sem heimsækja okkur á klakann í þessum mánuði eru heldur ekki af verri endanum. Isan er líklega þekkt- asta nafnið en sveit sú er breskur dúett sem hefur sent frá sér fjölmargar plötur sem þykja margar með bestu rafplötum síðasta áratugs. Tarwater er líka annar dúett sem hefur verið lengi í bransanum og þykja margar plötur sveitarinnar afbragð, en sveitin byrj- aði reyndar ekki hjá Morr fyrr en 2005. Þriðja erlenda Morr hljómsveitin er einmenningsveit Belgans Dieter Sermeus, The Go Find, og er eink- ar skemmtileg. Spilar heillandi raf- popp sem minnir helst á Death Cab for Cutie. Erlendu Morr sveitirnar þrjár, ásamt íslensku Morr sveitunum Sea- bear og Benna Hemm Hemm, spila á tónleikum á Græna hattinum á Akureyri í kvöld og sveitirnar endur- taka síðan leikinn á Iðnó, þriðjudaginn næsta. Það verður síðan enginn annar en sjálfur Thomas Morr sem mun sjá um að þeyta skífum bæði kvöldin. Morr á Íslandi Plötusnúðurinn og upp- tökustjórinn Mark Ronson hefur nóg að gera þessa dagana. Hann á stóran þátt í velgengni bæði Lily Allen og Amy Winehouse, starf- rækir eigið plötufyrirtæki og var að senda frá sér sína aðra plötu, Version. Trausti Júlíusson skoðaði Mark. Nafnið Mark Ronson hefur verið töluvert í umræðunni undanfarið. Hann hefur spilað mikið sem plötusnúður (kom m.a. til Íslands fyrir fáum árum) og hefur verið duglegur að pródúsera stjörnur eins og Christinu Aguilera, Robbie Williams, Lily Allen og Amy Win- ehouse. Lily og Amy eiga honum mikið að þakka en honum tókst reyndar ekki að bjarga síðustu plötu Robbies, en það hefði senni- lega enginn getað. Mark sendi fyrir nokkrum vikum frá sér nýja plötu, Version, sem hefur að stærstum hluta að geyma hans útgáfur af lögum með jafn ólíkum listamönn- um og Radiohead, Britney Spears, Coldplay, The Smiths. The Jam og The Zutons. Um sönginn á plöt- unni sjá m.a. Lily, Amy, Robbie, Kasabian, Daniel Merriweather og Paul Smith úr Maximo Park. Mark Ronson er stjúpsonur Mick Jones úr hljómsveitinni Foreigner (en ekki sonur Mick Ronson, gít- arleikara David Bowie, eins og lengi var haldið fram). Hann bjó fyrstu átta ár ævi sinnar í Eng- landi, en flutti svo með móður sinni til Brooklyn. Mark stofnaði hljómsveit í skóla (spilaði á gítar), en fékk fönk og hip-hop bakteríuna þegar hann var 16 ára og byrjaði að spila sem plötusnúður. Hann varð mjög vinsæll og fékk viðurnefn- ið „plötusnúður fræga fólksins“. Hann spilaði mikið á tískusýn- ingum og Puff Daddy fékk hann til að spila í 29 ára afmælisveisl- unni sinni. Fyrsta plata hans, Here Comes The Fuzz, árið 2003. Á henni var m.a. lagið Ooh Wee sem Ghost- face Killah og Nate Dogg röppuðu. Það komu margar stjörnur við sögu á Here Comes The Fuzz (m.a. Mos Def, M.O.P. og Rivers Cuomo), en á nýju plötunni eru „lögin sjálf stjörnurnar,“ að sögn Marks. Fyrsta tökulagið sem hann gerði var Radiohead-lagið Just sem hann setti í hálfgerða djass-fönk út- gáfu og bætti við blásarasveit sem hefði getað spilað inn á einhverja Stax-soul plötuna. Flott útgáfa sem fékk góðar viðtökur. Mark notar svipuð meðul á flest lögin á plöt- unni. Þetta er fönkað upp og sett í Motown/Stax búning. Og það verð- ur að segjast eins og er að oft er út- koman þrælskemmtileg. Britney Spears-lagið Toxic fær nýtt líf og það sama má segja um God Put a Smile Upon Your Face með Cold- play, Jam-lagið Pretty Green, Val- erie með The Zutons og Smiths- slagarann Stop Me If You‘ve Heard This One Before. Aðspurður segir Mark um þess- ar djörfu útgáfur að tilgangurinn hafi ekki endilega verið að gera út- gáfur sem féllu aðdáendum upp- runalegu útgáfunnar í geð. Og hann segir líka að hann trúi því að alvöru stjörnur vilji frekar heyra lögin sín í gjörólíkum útgáfum heldur en einhverja eftiröpun. Fram undan hjá Mark er fullt af pródúsera-vinnu og svo plötur með Rhymefest, Daniel Merriweather og hljómsveitinni Domino, en þessi þrjú nöfn eru á mála hjá Allido- plötuútgáfunni sem Mark stofnaði og stýrir. Breska hljómsveitin Kaiser Chiefs hefur hætt við að gefa út plötu með nýju efni á þessu ári. Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti bassaleikar- inn Simon Rix að þeir félagar ætluðu að gefa út efni sem þeir tóku upp á sama tíma og þeir tóku upp síð- ustu plötu sína Yours Truly, Angry Mob. Forsprakki Kaiser Chiefs, Ricky Wil- son, hefur borið þetta til baka og segir að Rix hafi einfaldlega verið að grínast. Segir hann að platan, sem átti að byggja á persónu Will Ferrell úr kvikmyndinni Anchorman, sé hræðileg og muni aldrei líta dags- ins ljós. „Eina nótt- ina vorum við stadd- ir í hljóðverinu með hljóðmanninum okkar. Við tókum upp plötu á 45 mínútum og sömdum hana jafn- óðum. Við kölluðum hana Bad vegna þess að hún er hræðileg. Við fengum innblást- ur frá persónu Will Ferrell í Anchorman sem segir bara frá öllu sem hann sér,“ sagði Wilson. „Ég hef ekki hlustað á hana síðan við tókum hana upp. Ég væri til í það en ég veit að ég fengi hroll því hún er virkilega ófyndin.“ Gerðu plötu með Ferrell Píanó sem Bítillinn fyrrverandi John Lennon spilaði á kvöld- ið sem hann var myrtur hefur verið boðið til sölu af fyrirtækinu Moments in Time. Verðmiðinn er um 23 milljónir króna. Píanóið var notað í Record Plant-hljóðverinu í New York þar sem Lennon tók upp plöt- una Imagine árið 1971. Það var í miklu uppáhaldi hjá Lennon og spilaði hann á það í margar klukkustundir áður en hann var skotinn fyrir utan heimili sitt í New York 8. desember 1980. Var hann svo hrifinn af hljóðfærinu að hann lét flytja það á milli þeirra hljóðvera sem hann not- aðist við hverju sinni. Á meðal fleiri þekktra nafna sem hafa spilað á píanóið eru Bob Dylan og Don McLean. Það hefur verið í geymslu síðan hljóðverinu var lokað á tíunda áratugnum. Sama fyrirtæki, Moments in Time, hefur einnig til sölu plöt- una sem Lennon skrifaði nafn sitt á fyrir Mark Chapman, sem skömmu síðar skaut hann til bana. Jafnframt er til sölu eiginhandar- áritun Lennons sem hann gaf starfsmanni hljóðversins í New York, en sú er talin vera það síð- asta sem Lennon skrifaði. „Síðasta“ píanóið til sölu

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.