Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 76
DELTA FARCE kl. 4, 6, 8 og 10 10
SPIDERMAN 3 kl. 5 og 8 10
SEVERANCE kl. 8 16
SHOOTER kl. 10 16
ÚTI ER ÆVINTÝRI kl. 4 og 6 -450 kr.- L
www.laugarasbio.is Sími: 553 2075
- bara lúxus
LAUGARÁSBÍÓ - SÝNINGARTÍMAR
www.SAMbio.is 575 8900
ÁLFABAKKA
PIRATES CARRIBEAN 3 kl. 4 - 6 - 8 - 10 10
PIRATES 3 VIP kl. 6 - 10
ZODIAC kl. 6 - 9 16
THE REAPING kl. 8:10 - 10:10 16
BLADES OF GLORY kl. 6 - 8 - 10:10 12
ROBINSON FJ... ÍSL TAL kl. 4 L
GOAL 2 kl. 3:50 - 6 7
AKUREYRI
PIRATES 3 kl 6 - 9 10
MR. BEAN kl 6 L
ZODIAC kl. 8 16
KRINGLUNNI
DIGITAL
PIRATES OF THE CARIBEAN 3
kl. 4:15 - 6:15 - 7:20 - 8:15 - 10:15 - 10:30 10
MR BEAN´S HOLIDAY kl. 4 L
ROBINSON F.. M/- ÍSL TAL kl. 4 LDIGITAL-3D
HJ MBL
PANAMA.IS
VJV TOPP5.IS
HÖRKUSPENNANDI MYND BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM.
Nánari upplýsingar
á www.SAMbio.is
sannur sumarsmellur,
fínasta afþreyingarmynd
Trausti S blaðið
KEFLAVÍK
PIRATES 3 kl. 8 7
THE REAPING kl. 10 16
BLADES OF GLORY kl. 6 L
IT’S A BOY GIRL THING kl. 6 - 8 L
30.000
manns á
7 dögum!
VIPSALURINNER BARA LÚXUS
ER STAÐSETTUR Í SAMBÍÓUNUM ÁLFABAKKA
Missið ekki af þessu blóðuga framhaldi af 28 Days Later.
Myndin hefur hlotið frábæra dóma.
Robert Carlyle er viðurstyggilega góður!
SÍMI 551 9000
SÍMI 462 3500
SÍMI 564 0000
MIÐASALA Á
SÍMI 530 1919
28 WEEKS LATER kl. 6 - 8 - 10
UNKNOWN kl. 5.50 - 8 - 10.10
THE PAINTED VEIL kl. 5.30 - 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 8 - 10.10
SPIDERMAN 3 kl. 5.20
28 WEEKS LATER kl. 6 - 8 - 10
ANNAÐ LÍF ÁSTÞÓRS kl. 6
FRACTURE kl. 8 - 10.30
THE LIVES OF OTHERS kl. 5.30 - 8 - 10.30
SPIDERMAN 3 kl. 5.40 - 8.20
PIRATES OF THE CARIBBEAN 3 kl. 3 - 5 - 7 - 9 - 10.45
PIRATES OF THE C. 3 LÚXUS kl. 5 - 9
FRACTURE kl. 8 - 10.30
IT´S A BOY GIRL THING kl. 3.45 - 5.50
SPIDERMAN 3 kl. 5 - 8 - 10.50
10
14
10
16
16
10
16
14
10
28 WEEKS LATER kl. 6 - 8 - 10
PATHFINDER kl. 6 - 8
THE HILLS HAVE EYES 2 kl. 10
16
16
16
!óíbí.rk045
Gildir á allar sýningar í
Regnboganum merktar með rauðu
STRANGLEGA BÖNNUÐ
INNAN 16 ÁRA
Eins og nafnið gefur til kynna
þá hefur þessi nýja plata Bry-
ans Ferry eingöngu að geyma
lög eftir Bob Dylan. Ferry hefur
gert plötur með lögum annarra
áður, en þetta er í fyrsta sinn sem
hann gefur út plötu eingöngu með
lögum eftir einn höfund.
Það kemur engum á óvart sem
hefur fylgst með ferli Ferry að sá
höfundur skuli vera Bob Dylan.
Ferry hefur margoft lýst yfir dá-
læti sínu og djúpri virðingu fyrir
textum Dylans og hann hefur
áður tekið lög eftir hann, það
fyrsta var A Hard Rain‘s Gonna
Fall sem kom út á fyrstu töku-
lagaplötunni hans, These Foolish
Things, árið 1973.
Það má að sjálfsögðu deila um
gildi tökulagaplatna, en í tilfelli
Dylanesque getur maður verið
viss um tvennt. Í fyrsta lagi er ör-
uggt að öll lög og textar eru af-
bragð og í öðru lagi má bóka það
að þau eru vel sungin. Ég hef
reyndar lengi verið mikill Ferry-
maður. Hann er einn af mínum
uppáhalds söngvurum; hefur
rödd og raddbeitingu sem er ein-
stök og sem menn annaðhvort
dýrka eða þola jafnvel ekki.
Það eru ellefu lög á Dylanesque
sem er að stórum hluta unnin með
sömu hljóðfæraleikurum og hafa
margoft áður unnið með Ferry.
Lagavalið er fínt ef frá eru talin
lögin Knockin’ On Heaven’s Door
og All Along the Watchtower sem
að mínu mati hafa bæði verið
„koveruð“ of oft og of vel til þess
að þessar útgáfur Ferrys eigi rétt
á sér. Just Like Thumb’s Blues,
Positively 4th Street, Simple
Twist of Fate og Gates of Eden
eru hins vegar frábær í meðför-
um Ferrys.
Á heildina litið er þetta fín plata
sem rennur ljúft í gegn og þó að
hún hafi ekki neitt nýtt fram að
færa þá getur maður bókað að
hún á eftir að hljóma jafn vel eftir
20 ár og hún hljómar í dag.
Til heiðurs meistaranum
„Þetta er bara svona nánast eins
og Forbes-listinn,“ sagði Jón Gnarr
upp með sér þegar blaðamaður
Fréttablaðsins
greindi honum
frá því að nafn
hans væri hið
fimmta sem
kæmi upp á
uppslátt-
arvefritinu
wikipedia.
org, ef leitað er að frægum
nördum, eða „famous nerds“. Jóni
þótti staðsetningin á listanum
mikil upphefð, en á Wikipediu fást
ríflega 700 leitarniðurstöður með
þessum orðum. Hann kvaðst mjög
stoltur af nördískunni.
„Það gætir samt stundum mis-
skilnings meðal Íslendinga,“ sagði
hann alvarlegur. „Margir Íslend-
ingar halda að nördar og lúðar séu
eitt hið sama, samanber „nerd“ og
„geek“,” sagði Jón, sem telur mik-
inn mun vera
þar á. „Þetta
er ekki komið
í íslensku
orðabókina
ennþá, en það
kemur einhvern tíma,“ sagði hann.
„Munurinn á nörd og lúða er sá að
nördar eru gáfaðir og skemmti-
legir en lúðar eru vitlausir og leið-
inlegir. Leikmanni virðast þeir
kannski svipaðir, en svo er ekki,“
sagði Jón.
Steve Jobs, forstjóri Apple, sem
iðulega er sæmdur titli tækni-
nörds, kemur fyrir í 141. sæti á
sama niðurstöðulista, og sjón-
varpspersónan Ross Geller, úr
Vinum, í 154. sæti. Í fyrsta sæti
trónir hins vegar tyrknesk söng-
kona, sem hefur gefið út plötuna
Nerde. Í toppsætunum er jafn-
framt að finna leikara og töku-
stað úr myndinni Revenge of the
Nerds.
Fimmti frægasti nörd í heimi
Ísleifur B. Þórhallsson
hjá dreifingarfyrirtæk-
inu Græna ljósið gerðu
góða ferð til Cannes en þar
tryggðu þeir sér sýningar-
rétt á mörgum af eftirtekt-
arverðustu kvikmyndum
hátíðarinnar.
Stóru fréttirnar eru eflaust þær
að rúmenska sigurmyndin 4 luni, 3
saptamini si 2 zile eða Fjórir mán-
uðir, þrjár vikur, tveir dagar verð-
ur tekin til sýningar á allra næstu
misserum. Miklar vangavelt-
ur hafa verið meðal kvikmynda-
áhugamanna á netinu hvort örlög
hennar yrðu þau sömu og hjá
mörgum öðrum evrópskum verð-
launamyndum; að hún yrði fáan-
leg á næstu myndbandaleigu eftir
dúk og disk. „Við tryggðum okkur
dreifingarréttinn í blábyrjun há-
tíðarinnar. Ég horfði á myndina á
fyrsta degi mínum í Cannes, fór á
tvö sýningu, mætti á fund klukk-
an fjögur með útgáfufyrirtækinu
og sendi inn tilboð í kjölfarið sem
var samþykkt nánast samstund-
is,“ segir Ísleifur og telur þessi
kaup ef til vill varpa hvað bestu
ljósi á hlutverk Græna ljóssins.
„Við höfum lagt mikla áherslu á
að fá myndir hingað til lands sem
að öðrum kosti myndu aldrei rata
í íslensk kvikmyndahús,“ útskýr-
ir hann.
Ísleifur útilokar ekki að reynt
verði að fá leikstjóra myndarin-
ar, Cristian Mungiu, til að koma
og verða við frumsýningu mynd-
arinnar. „Við höfum enda gert
mest af því að kynna fyrir gest-
um okkar fólkið á bakvið mynd-
irnar. Hins vegar er ég viss um
að myndin sjálf eigi eftir að vekja
töluverða athygli vegna umfjöll-
unarefnisins,“ bætir Ísleifur við
en hún fjallar um unga konu sem
lætur framkvæma á sér ólöglega
fóstureyðingu í Rúmeníu skömmu
fyrir fall Nicolae Ceaucescu og
kommúnista- flokksins.
En það var
ekki bara
rúmenska
sigur-
mynd-
in sem
Græna
ljósið
festi
kaup á
við strendur við
Miðjarðarhafsins. Ís-
leifur klófesti einnig
meðal annars Sicko,
nýjustu heimildar-
mynd hins umdeilda
Michael Moore
og My Blueberry
Nights en hún er
frumraun söngkon-
unnar Noruh Jones
á hvíta tjaldinu. Síðan er
nokkuð víst að heimild-
armyndin Rebellion: The
Litvinenko Case eigi eftir
að vekja mikla athygli. Hún fjall-
ar um fimm síðustu árin í lífi rúss-
neska njósnarans Alexander Lit-
vinenko sem lést eftir að eitrað
var fyrir honum en meðal þeirra
sem hafa verið bendlaðir við
morðið eru Vladimir Putin, forseti
Rússlands. Þá er nokkuð ljóst
að Terror‘s Advocate eftir
Barbet Schroeder á einn-
ig eftir að vekja upp spurn-
ingar en hún fjallar um lög-
fræðinginn Jacques Vergés
sem hefur tekið að sér
að verja menn á borð
við Slobodan Milos-
evic, Mao Tse Tung
og sjálfan Saddam
Hussein.