Fréttablaðið - 01.06.2007, Side 78

Fréttablaðið - 01.06.2007, Side 78
Fæ tækifærið þegar ég verð heill af meiðslunum Arnór Guðjohnsen batt enda á feril sinn í landsleik gegn Liechtenstein árið fyrir tíu árum síðan í undankeppni HM 1998. Ís- land vann leikinn, 4-0, og Arnór Guðjohnsen skoraði eitt mark- anna í leiknum. „Jú, eitthvað rámar mig í þetta,“ sagði Arnór þegar Fréttablaðið bað hann að rifja þetta upp. Hann mundi þó ekki vel eftir leiknum. „Það eru margir aðrir leikir á ferlinum sem mér þykir svo sem vænna um en ég á auðvitað góðar minningar frá þessum leik líka,“ sagði Arnór. Hann verður vitanlega í stúk- unni á Laugardalsvellinum á morgun. Hann býst við sigri ís- lenska liðsins. „Ég held að menn geri sér alveg grein fyrir því að sigurs verði krafist í þessum leik. Ég er nokkuð bjartsýnn á það og það væri gaman að sjá þessa nýja stráka spreyta sig í leiknum.“ Meðal þeirra nýju leikmanna sem Arnór á við eru Theódór Elmar Bjarnason og Matthías Guðmundsson. „Theódór Elmar er framtíðar- leikmaður á miðjunni að mínu mati. Það ætti að geta byggst upp mikið af spili í kringum hann,“ sagði Arnór. „Maður hefur svo lengi beðið eftir því að Matthías springi út og vonandi að hann geri það á þessu ári. Hann býr yfir miklum hraða og þarf að vera dug- legur að nýta sér hann.“ Sonur Arnórs, Eiður Smári Guð- johnsen, gæti bætt markamet hans og Ríkharðs Jónssonar á morgun. „Það er tímaspursmál hvenær hann slær metið og hann er vel upplagður fyrir þennan leik. Hann hefur gott af því að fá fullar níu- tíu mínútur.“ Mikið hefur verið rætt um framtíð Eiðs Smára hjá Barcelona en Arnór er umboðsmaður hans. „Þetta eru árlegar vangaveltur og kannski eðlilega svo. En hann hugsar ekki um neitt annað en að klára tímabilið og sjá svo til hvað tekur við eftir það.“ Krafan hlýtur að vera sigur Lottomatica Roma, með Jón Arnór Stefánsson innan- borðs, vann óvæntan en frábæran sigur á deildarmeisturum Monte- paschi Siena í undanúrslitum ít- ölsku úrvalsdeildarinnar í körfu- bolta. Roma vann leikinn á úti- velli, 88-74, og hefur þar með tekið forystu í einvíginu en þrjá sigurleiki þarf til að spila til úr- slita. Næstu tveir leikir fara fram á heimavelli Roma. Jón Arnór spilaði 23 mínútur en brenndi af öllum fjórum skot- um sínum og komst þar af leið- andi ekki á blað. Hann átti eina stoðsendingu, stal einum bolta og tók eitt frákast. Staðan í hálfleik var 48-41 Roma í vil en liðið hafði undirtökin allan fyrri hálfleikinn. Roma slakaði þó á klónni í þriðja leik- hluta þegar Siena náði að jafna og spennan var mikil fyrir síðasta fjórðunginn. Siena var skrefinu á undan þar til 15-4 áhlaup Roma kom þeim í bílstjórasætið og liðið vann að lokum glæstan fjórtán stiga sigur. Næsti leikur í rimm- unni fer fram á morgun, laugar- dag. Unnu óvæntan sigur Í SAMVINNU BYLGJAN 989 Rauði kross Íslands Gambia Red Cross Society ÍSLAND GAMBIA Tekið verður á móti söfnunarmunum við Eimskipsgáma sem staðsettir verða við verslanir Bónus við Skútuvog, Smáratorgi, Helluhrauni og Spönginni á eftirfarandi tímum: Föstudaginn 1. júní...........kl. 12:00 - 19:30 Laugardaginn 2.júní.........kl. 10:00 - 18:00 SÖFNUN Á AFGANGSFÓTBOLTABÚNAÐI BOLTUM, SKÓM OG BÚNINGUM ÚTSPARK Jafnframt verður móttaka í Laugardal í tengslum við landsleik Íslands gegn Liectenstein 2.júní. Hlutabréf i KR Sport óskast til kaups. Tilboðsverð ásamt nafnverði bréfanna, nafn seljanda og símanúmer sendist til hlynur@sb.is Íslenska kvennalandslið- ið byrjaði undankeppni Evrópu- mótsins vel og vann 3-0 sigur á Grikkjum í Grikklandi í gær. Ís- lensku stelpurnar skoruðu tvö mörk á fyrsta korterinu og bættu síðan við einu marki í blálokin. „Það er mjög jákvætt að vinna 3-0 á útivelli og byrja mótið mjög vel. Íslenska liðið hefur undanfar- in ár verið frekar óstöðugt á úti- velli. Í síðustu keppni tapaði liðið fyrir Tékkum bæði á útivelli og á heimavelli en það er lið sem við áttum að vinna samkvæmt bók- inni. Það þarf að spila þessa leiki og klára þá, sem stelpurnar gerðu vel. Þær mættu vel stefndar til leiks og voru vel undirbúnar.,” sagði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari eftir leikinn. „Við byrjuðum leikinn frá- bærlega vel og skorum tvö góð mörk. Ég var gríðarlega ánægð- ur með fyrstu 25 mínúturnar. Svo fóru stelpurnar að gera hlutina of flókna. Ég var því ekki ánægður með síðasta korterið í fyrri hálf- leik, við hættum að spila einfalt og öruggt og botninn datt úr leik okkar. Það kom líka annar kafli þar sem ég vildi sjá meira spil í liðinu. Ég vildi líka sjá stelpurn- ar finna Ásthildi og Margréti Láru meira í fæturna,” sagði Sigurður Ragnar. Margrét Lára Viðarsdóttir kom íslenska liðinu yfir eftir aðeins átta mínútur þegar hún skoraði úr vítaspyrnu sem hún krækti í sjálf. Ásthildur Helgadóttir tók síðan strax til sinna ráða í sínum fyrsta landsleik síðan í september þegar hún skoraði laglegt skallamark eftir aukaspyrnu Eddu Garðars- dóttur. Þriðja markið skoraði síðan varamaðurinn Greta Mjöll Samú- elsdóttir í lok leiksins eftir horn- spyrnu Eddu Garðarsdóttur. Sigurður Ragnar var ánægður með stjörnuframlínu íslenska liðs- ins. „Það var jákvætt að Ásthildur gat spilað allar 90 mínúturnar. Hún og Margrét Lára eru báðar frábærir leikmenn en þær náðu hinsvegar ekki að æfa saman fyrir leikinn því Ásthildur var meidd og ekki með á æfingunum. Samt voru þær að ná vel saman og finna hvor aðra vel og Ásthildur spilaði Margréti Láru í gegn í tvö skipti í leiknum. Þær eru með frábæran leikskilning og frábæra hæfi- leika og bara eftir að slípast betur saman, sem er mjög jákvætt fyrir okkur,“ sagði Sigurður. Íslenska liðið varð fyrir tveimur áföllum í leiknum, fyrst fór af- mælisbarnið Katrín Jónsdóttir meidd af velli í lok fyrri hálfleiks og síðan meiddist félagi hennar úr Val, Rakel Logadóttir, í seinni hálf- leik. „Ég vona það besta, Katrín á við tognun að stríða og Rakel fékk einhvern slink á hnéð. Það skýr- ist ekkert fyrr en á næstu dögum hversu alvarleg þessi meiðsli eru,” sagði Sigurður Ragnar. Íslensku stelpurnar spila næst við Frakka á Laugardalsvellin- um 15. júní og það verður verð- ugt verkefni enda Frakkar með fullt hús og markatöluna 12-0 eftir fyrstu tvo leiki sína. „Nú er hörkuleikur fram undan við Frakka sem er mjög spennandi dæmi. Það er stefnt að því að slá aðsóknarmetið á þeim leik enda eru við að fá sjöunda besta liðið í heimi á Laugardalsvöllinn,” sagði Sigurður. Íslenska kvennalandsliðið vann 3-0 sigur á Grikkjum í fyrsta leik sínum í undankeppni Evrópumótsins 2009. Margrét Lára Viðarsdóttir og Ásthildur Helgadóttir voru báðar búnar að skora eftir aðeins fjórtán mínútna leik.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.