Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 81

Fréttablaðið - 01.06.2007, Síða 81
 Mario Frick, sóknarmað- ur í landsliði Liechtensteins, er langþekktasti knattspyrnumaður landsins. Hann var fyrsti knatt- spyrnumaður landsins sem gerð- ist atvinnumaður erlendis en hann leikur nú með Siena í Seríu A á Ítalíu. Hann er 33 ára gamall og á að baki þrettán ára atvinnu- mannaferil. Hann á margt líkt með Eiði Smára Guðjohnsen en báðir eiga þeir markamet sinna landsliða. Eiður deilir reyndar sínu með Ríkharði Jónssyni en Frick hefur skorað ellefu landsliðsmörk, flest landa sinna. Eiður Smári Liechtensteins Íslenska landsliðið mætir á morgun sínum veikasta and- stæðingi í undankeppni EM 2008 á heimavelli. Samkvæmt því ætti krafan á íslenska landsliðið að vera ekkert annað en sannfær- andi sigur. Stuðningsmenn lands- liðs Liechtenstein eru hins vegar á öðru máli og útiloka ekki óvænt úrslit í leiknum þó Ísland sé vissu- lega sigurstranglegri aðilinn. Árangur liðsins síðustu ár er eftirtektarverður. Í síðustu undan- keppni, fyrir HM 2006, náði liðið átta stigum og fékk á sig 23 mörk í tólf leikjum. Ísland fékk í sömu keppni fjögur stig og 27 mörk á sig í tíu leikjum. Liechtenstein kemur hingað til lands fullt sjálfstraust eftir sigur á Lettum á heimavelli í síðasta leik. Lettar fóru hins vegar létt með Ís- lendinga á sínum heimavelli fyrr í haust, 4-0. Það er því margt sem bendir til þess að lið Liechtenstein sé sýnd veiði en ekki gefin. Þó er því ekki að neita að á pappírnum lítur lið Liechten- stein ekki neitt sérstaklega vel út. Þrír leikmenn leika með nokkuð þekktum liðum en aðrir leikmenn koma úr neðri deildum Sviss, Austurríkis og Þýskalands. Deildum sem íslensku landsliðs- mennirnir myndu sjálfsagt aldrei telja áhugavert að spila í. Umhverfið lítur einnig allt öðru- vísi út. Aðeins sjö knattspyrnufé- lög eru starfrækt í Liechtenstein á meðan að fjöldi knattspyrnufé- laga á Íslandi nálgast 130. Gríðar- lega mikill munur er á öllu innra starfi knattspyrnunnar og upp- byggingu leikmanna. Félögin sjö í Liechtenstein taka þó árlega þátt í bikarkeppni þar í landi og sigurvegarinn fær sæti í UEFA-bikarkeppninni. Stærsta félagið í Liechtenstein er FC Vaduz. Það leikur í B-deild- inni í Sviss og hefur á undanförn- um árum þrisvar verið nálægt því að komast í úrvalsdeildina. Mikil uppstokkun hefur átt sér stað í liðinu, heimamönnum til mikillar gremju. Aðeins fjórir leik- menn liðsins koma frá Liechten- stein og eru þeir allir í landslið- inu. Leikmenn frá Suður-Ameríku, Afríku og Austur-Evrópu eru áber- andi og fyrir vikið hafa vinsældir liðsins hrunið. Aðeins 6-700 manns mæta að meðaltali á heimaleiki liðsins í svissnesku deildinni. Þjóðarstoltið er því knatt- spyrnulandsliðið, sem hefur verið að ná góðum árangri sem fyrr segir. Í kjölfarið eru væntingarn- ar sem gerðar eru til liðsins sífellt að aukast. Landslið Liechtensteins mætir því íslenska á Laugardalsvelli á morgun. Þær vonir og væntingar sem gerðar eru til liðsins aukast með ári hverju. Í síðasta leik liðsins vann það góðan sigur á Lettum, 1-0. 25% afmælisafsláttur af: • útivistarfatnaði • skóm • ferðavörum • stangveiðivörum og fatnaði • gasvörum • gasgrillum • aukahlutum fyrir ferðatæki Fiskislóð 1 • Sími 580 8500 • www.ellingsen.is • Póstsendum um allt land sveisla! Stangveiðivörur og fatnaður frá Loop Útivistarfatnaður m.a. frá Devold FerðavörurPermasteel-gasgrill Primusar Aukahlutir fyrir ferðatæki Vandaðir gönguskór Primus-ferðagasgrill AFMÆLISAFSLÁTTUR AFMÆLISAFSLÁTTUR AFMÆLISAFSLÁTTUR
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.